Frækorn - 28.06.1906, Blaðsíða 1
VII. ÁRG. REYKJAVÍK 28. JÚNÍ 1906. 26. TBL.
Hákon VII. Norogskonungur
var krýndur með mikilli viðhöfn í Rránd-
heimi 22. júní. Upphaflega var ætlast
til, að krýningin færi fram 12. júlí, en
Hákon kaus þann 22. júní, af því að
----£--;----------- — -
í '
það var trúlofunar- og giftingar-dagur
hans og drotningar hans, Maud Játvarðar-
dóttur Englakonungs.
Krýningin mun hafa verið mjög svo
hátíðleg, af öllum hinum mikla viðbún-
aði að dæma. Hinn mesti fjöldi af kon-
unglegum útsendingum og ferðamönn-
um hafa verið á ferð til gamla Rránd-
heims þessa dagana, og um allan endi-
langan Noreg hefir verið hátíðisbragur
yfir fólkinu. Og það er ástæða til þess:
Eftir 6 langar aldir er Noregur aftur orð-
inn sjálfstætt konungsríki, og það er eins
og nýtt líf og ný von færist yfir alla
þjóðina. Mætti blessun drottins krýna
bæði konung og drotning og Noregs
land og þjóð!
Krýndir Noregskonungar.
Nú, er Noregur aftur hefir fengið sinn
eigin konung, og hann krýndan, gæti
það ef til vill verið vel til fallið að minn-
ast áður krýndra Noregskonunga með ör-
fáum orðum.
Magnús Erlingsson
var fyrsti krýndi konungur Noregs. Hann
var krýndur í Björgvin árið 1163. Hann
var ekki konungborinn, og faðir hans,
Erlingur Skakki, ákvað að reyna að bæta
úr þessu með því að láta hann krýna,
og þar með festa hann betur í konungs-
sætinu. Vígslan var í þá daga í miklum
metum, en bann kirkjunnar óttaðist fólk-
ið meir en alt annað ilt. Erlingur náði
þó ekki þessari tígn til handa syni sín-
um nema með miklum »fórnfæringutn«
til kirkjunnar. Eysteinn erkibiskup Er-
lendsson, byggingarmeistari dómkirkjunn-
ar í Þrándheimi, tók það loforð 'af Er-