Frækorn


Frækorn - 28.06.1906, Side 4

Frækorn - 28.06.1906, Side 4
204 FRÆKORN kristins safnaðar, þá mundu eftir því, að þú ert k minn þangað ekki að eins til þess að neyta góðs, heldur líka til þess að veita gott, til þess að starfaaf óeigin- girni að heill safnaðarins og að frelsun annara. Alvara og kostgæfni er nauðsynleg. Eftir E. G. Whiie. Undir stjórn hins illa reyna þjónar hans kappsamlega að fjölga tölu þeirra, sem fót-troða guðs boðorð, og lands- lögin styðja fráfallið. Til grundvallar fyrir sérhverri hreifingu, sem miðar að því, að upphefja leyndardóm ranglætis- ins, liggur tilraun til þess, að fyrirlíta og ónýta sannleika guðs og hans heilögu skipanir. Sumir reyna til þess að gjöra menn háða mannasetningum. Er ekki tími til kominn, að þeir, sem fylgja guðs orði, standi sem sporgöngumenn Krists, í þeirrri ábyrgðarmiklu stöðu, sem Kristur hefir sett þá í ? I’egar þjónar syndarinnar, hvattir af valdi hins illa, eru mjög ötulir að vinna fyrir sitt málefni; skyldu þá ekki þeir, sem standa með sannleika og réttlæti, sýna alvöru og kostgæfni í starfi sínu ? Hvað gjörir það til, þó starfsmaður drottins sé kallaður ofsafenginn. Þetta er nafn, sem margur guðs þjónn hefir orðið að bera. Vantrúarmenn hafasagt: »Ef eg tryði því, sem þeir kristnu segjast trúa, skyldi eg vera langt um kostgæfn- ari en þeir eru.« Regar jafnvel vantrúað- ir sjá í þeim, sem þeir kalla trúarofsa fyrirmynd upp á kristinn mann, skyldum vér þá ekki vilja af öllu hjarta vera með guði, og kostgæfnir að starfa fyrir hann ? Endi þessa heims er nálægur. O, að allir væru umkringdir og upplýstir af guðs sannleiksljósi! Ó, að allir væru leiddir af guðs anda! Guðs boðorð eru fótum troðin og vald hins vonda dregur heiminn á tálar. Eigum vér ekki að gefa sjálfa oss drotni, og alt, sem vér eigum, svo sálir verði unnar fyrir Krist? Pað er einungis skamt eftir af náðar- límanum; á kærleikurinn til guðs og hans sannleika að kólna í hjörtum vor- um, á þessum síðasta tíma ? Eiga ljós vor að dofna og deyja út, af því vér höfum ekki olíu náðarinnar með, á ker- um vorum? Vér verðum að standa rösklega í því stríði, sem vér höfum að heyja. En vér skiljum ekki þessa baráttu og þýð- ingu hennar eins og vér ættum að gjöra. Öllu óvinarins veldi er stefnt móti þeim, sem vilja stríða með guði. En vér stríðum ekki einir. Allar himn- anna hersveitir eru með okkur, og höfð- inginn fyrir guðs her er leiðtogi vor. Hann er hershöfðinginn, og þegar hann leiðir her sinn út á stríðsvöllinn, heyrist raust hans yfir hávaða stríðsins: »Verið öruggir, eg hefi sigrað heiminn.« I.eið- togi vor er sigurvegari. Pess vegna : á- fram til sigurs! Prestspróf. Enskur prestur heimsfrægur segir svo frá: Eg var einusinni beðinn um að prófa ungan mann, sem ætlaði að verða prestur. Rað var mjög vel út lítandi maður. Regar hann kom ti! mín, sagði eg við hann: ^Rér ætlið yður að verða prestur. Eruð þér trúaður?« »Já, auðvitað er eg það. Foreldrar mínir uppólu mig í kristindómi, og eg er ekki vikinn af þeirri braut, sem mér var kent að ganga.«

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.