Frækorn


Frækorn - 28.06.1906, Page 7

Frækorn - 28.06.1906, Page 7
FRÆKRON 207 Heitið. Theodór Árnason þýddi. Fratnh. Þegar eg þannig skælandi labbaði heim, reiður í huga við alla þá, sem höfðu gert mér þessa svívirðingu, út- bjó eg hinar svívirðilegustu bollalegg- ingar til handa bróðurmínum; á hin- um drengjunum gat eg því miður ekki hefnt mér. Það var skreytni, þótt að eins lítill sannleiksarða væri á því, en þannig hlaut það að hafa mest áhrif. I þessu ástandi kom eg heim, og vakti það auðvitað athygli, að eg kom þannig skælandi heim, því eg skældi viljandi eins hátt og eg gat. Faðir minn kom út og tók á móti mér. »Hvað gengur að þér? Hversvegna ertu að skæla?* »Rúðólfur barði mig, og kom öll- um hinum strákunum til að sparka í mig, og svo ráku þeir mig úr brekk- unni, og börðu mig í sífellu svo eg finn svo til.« Eg hélt áfram að skæla eins hátt og eg gat. »Hvað gerðirðu honum«, spurði faðir minn. »Ekkert; eg bað hann aðeins að lofa mér að renna mér eina ferð, og þá barði hann mig svona!« »Eg skal kenna honum að lifa « Eg sá, hversu faðir minn reiddist, og hversu blóðið steig honum til höf- uðs. Hann trúði orðum mínum, og það gladdi mig mjög, því nú vissi eg, að bróðir minn mundi ekki kom- ast klaklaust undan, og að eg mundi fá hefnt. Þjónustustúlkan var send eftir Riíðólfi og stundu síðar kom hann með sleðann á bakinu. Faðir minn kom á móti honum í ganginum og sagði reiðulega: »Komdu hérna inn, eg þarf að tala við þig fáein orð.« Síðan opnaði hann skrifstofudyr einar ogýtti honum þangað inn, fór sjálfur á eftir og tvílæsti hurðinni. Frh. g|r«ttir. Auðugasti maður heimsins, John D. Rockefeller, er nú á ferð í Evrópu. Hann er svo ríkur, að tekjur hans í eintómum rentum nema 5 krón- um fyrir hverja sekúndu eða 432,000 kr- um sólarhringinn, að því er danska blað- ið »Politikes« skýrir frá 16. þ. m. Blóðbað á Gyðingum fór fram 13. þ. m. á Rúislandi í Bjelostok. Fleiri hundruð Gyðingar voru myrtir. Orsö1<in var sú, að Gyðingur einn kastaði sprengikúlu inn í skrúð- göngu, sem kaþólskir gengu við hátíð- arhald. Af þessu urðu hinir kaþólsku svo afar-reiðir, að þeir fóru að, eins og sagt er: ofsóttu og drápu alla þá Gyð- inga, er þeir gám náð til. Svívirðingar á Jótlandi. Á Jótlandi hafa nýlega verið framdir þrír voða-glæpir. Maður nokkur að nafni Thygesen svívirti 7 ára gamalt stúlkubarn og veitti því síðan bana. — Annar glæp- urinn var drýgður af vinnumanni í Skive á Jótlandi. Hann svívirti vinnustúlku, og þar á ofan tók hana af lífi. Hann hafði stungið hana með hníf í brjóstið og skorið á háls. Einnig hefir maðui einhver hér um bil samtímis þröngvað með valdi 66 ára gamalli konu til fylgju- lags við sig. — Danska þjóðin er mjög hrygg yfir þessunt dýrslegu ódáðaverk- um, óttast, að þeim verði haldið áfram.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.