Frækorn


Frækorn - 27.09.1906, Page 8

Frækorn - 27.09.1906, Page 8
304 FRÆKORN gjöra hann það, sem hann nú var orð- inn. Hin alvarlegu orð: »Nei, ekki eilíf- lega«, fylgdu mér hvert sem eg fór, sagði hann, og mér fanst alt af það vera málrómur móður minnar, sem talaði til mín frá gröfinni. Eg iðraðist synda minna og sneri mér til guðs. Það var líka það, sem móðir mín óskaði svo innilega að eg skyldi gjöra, og fyrir guðs náð hefi eg fengið kraft til að standast freisting- una og halda loforð mitt. »Eg hef aldrei hugsað mér að fáein vingjarnleg orð gæii haft svo mikil áhrif,« sagði hún. »Með guðs hjálp vil eg héðan af reyna að uppörfa alla sorgmædda og þjáða, sem eg mæti á lífsleiðinni.* „Þar kemur draumamaðurinn:1 i. Mós. 37, 19. Slíti saklaus syndarhelsi, seiði og gynni spillingin, þar til hann svo finni frelsi falla lætur möttul sinn, flæmdum dreTig af fósturláði fláráð snót svo níðíst á: mun ei spurt með hrópi’ og háði: „Hver er draumaglópur sá?" Varið yður, vondu bræður, víðar hefndin á sér dyr, sá kann verða sveinninn skæður síðar meir þó „dreymdi" fyr. Þá um grið á knjám þér knýið, kallið: herra, mildur ver! hljóðið upp, því hann ei flýið : „Hann „sem dreymdi* kominn er!" Kemur búinn skjöldungs skrúða, skrýddur kyrtli Earaós, silki-skikkja sveinsins prúða sýnist ofin hitninrós. Horfir fast á hrelda barma horskur jarl með glott um kinn, glaðnar svo með hýrahvarma: „Hér er drauma-gortarinn." Fríður sveinn með fagran þokka fetar létt um Sikkems braut; blærinn greiðir ljúflings lokka, ljóma slær á kyrtils skaut. Bræður hans, með grimmu glotti geta að líta komumann, segja hátt, með svika-spotti: „Sjáum draumayortarann!" Hver sem enn er hér í heimi hlýðið barn víð föður sinn, einkum sýnist önd hans dreymi oft um Guð og himininn; sá á víst hún veröld eigi virðing stórri metur hann, heldur margur. háðfugl segi: „horfið þar á draumamann!" Hver sem enn með bernsku bjarta bræðra treystir gáska fjöld, sýnir öllum alt sitt hjarta, æskudraum og vonarskjöld; honum óðar gröf er grafin, grunar ekkert fáráðan, fyr en svika-són er hafinn: „Sjáið draumagrobbarann! “ „Skoðið, bræður, háa höllu, hneigja mér ei kornbindin? Sjáið tungl og sólarvöllu silfri merkt á klæðnað minn. Ottist ei, því arma breiðir yður týndi bróðirinn, og úr garði glaða leiðir gamli draumamaðurinn." Margur gæddur guðdómsljósi grættur flýði borg og lönd, er með sæmd og sigurhrósi síðar steig á fósturströnd; háði leiddur heims á vegi heiman einn á brautu rann, sigldi heim á svásu fleyi „Sjá, hinn mikla draumamann!" Loksins sézt frá sólarstorðum svífa fram með dýrðarskraut hann sem blindir bræður forðum buðu spott og kvala þraut. Eltir þjóð með þjóst og spotti þyrnikrýnda guðssoninn, hrópar „blóð" með blindu glotti: „Burt með draumakonunginn! "

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.