Frækorn


Frækorn - 27.09.1906, Qupperneq 11

Frækorn - 27.09.1906, Qupperneq 11
FRÆKORN 307 sjálfs hans er — »vitlaust' Hann ætlar sér að segja; »Fyrsta skilyrði* o. s. frv., en úr því verðtir: Æyrsti skil- yrði« o. s. frv. I næstu setningu kemur þessj ýkja- staðhæfing, sem líklega flestir (nema ing- ólfur) skilji að sé talsvert bogin : »Meðal mentaþjóða erlendis er þetta (um sæmilegt ritmál) svo skýlaust viður- kent, að engum dettur í hug að bjóða nokkra bók, sem ekki sé rituð* með réttu orðfæri. En »víðar er pottur brotinn*, en á íslandi Rað er ekki heldur alt gu!l-gott mál, sem prentað er annarstaðar í heimi. í öllum heimsins löndum eru menn ó- fullkomnir, og það i málfræði sem öðru, og máliýtin koma víða fyrir. Svona rétt af handahófi skulum vér nefna tvö dæmi: Esaias Tegnér var í sinni ííð mjög oft ávítaður fyrir það að skrifa mjög léiegt mál, og sama er að segja um Björn- stjerni Björnsson. Og fleiri merkir rit- höfundar hafa orðið að heyra slíka dóma. »Ingólfur« heldur þeirri röngu kenn- ingu fram, að alt sé komið undir því, að málið sé vel ritað. Rað er hjá hon- um »fyrsta skilyrðið- og fyrsti kostur- inn< . Efnið er aukaatriði. En þótt það sé mjög mikiisvert, að ritmálið sé gott og vandað, þá er það samt ekki hið mikilsverðasta í bókment- unum. »Ingólfur« fær aldrei fjöldann með sér í því, að það skifti litlu, hvaða mark- leysur séu prentaðar og útgefnar, bara málið á þeim sé óaðfinnanlegt. Líkam- inn er meiri en fötin, og efnið meira en búningurinn. Ef um tvent er að velja — lélegt efni í fögrum búningi eða: ágætt efni í lé- legum búningi, þá er hið síðara ákjós- anlegra. Og verður kosið. — En bezt er, að bæði efni og búmngur sé sem vandaðast. Og ekki viijum vér draga úr lofsvo.rð- um áhuga Ingólfs*. En heilbrigð skynsemi ætti helst að vera samfara áhuganum Bækur og rit. Jón Trausti: Halla. Söguþœttir úr sveita- lífinu. Útg. Arinbjörn Sveinbjarnar- son og Þorsteinn Qíslason. Rvík 1906. 'jón Trausti er gerfinafn, og au.ð- sætt er á bókinni, að það er spánnýr íslenzkur skáldsagna-höfundur, sem með útkomu þessarar bókar er upp- risinn á meðal vor, því að bókin er sérkennileg meðal islenzkra bóka. íslenzkar bókmentir eru fátækar mjög að skáldsögum, og sérstakiega eru | frumsömdu sögurnar fáar og lítilfjör- legar. Síðustu árin hefir ýmislegt út- lent skáldsagnarusl verið þýtt á ís- lenzku og gefið út í gróða skyni, og slíkt rus! selst oft alt of vel - því miður. Það er því skemtilegt að fá íslenzka skáldsögu eins og Höllu . Góð skáldsaga inniheldur sanna lýs- ingu á mannlífinu, og tilgangur henn- ar er tvennskonar: 1) að skemta les- endunum og 2) að gefa þeim til- efni til alvarlegra umhugsana, til að safna lærdómum fyrir lífið. Af öllu því, sem ritað er og prentað, hafa sögubókmentirnar lang-mest áhrif til góðs eða tii ills. Siðspillandi skáld- sögur eru eitt af átumeinum vorra tíma, og ótakmörkuð eru áhrif þeirra. »Halla« er fremur góð skáldsaga. Rað, sem hún dregur fram af íslenzku sveitalífi, er þannig úr garði gert, að

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.