Frækorn


Frækorn - 27.09.1906, Page 10

Frækorn - 27.09.1906, Page 10
306 FRÆKORN Á tómstundumim. Fátækur drengur, grannleitur og illa útlítandi, hringdi dyraklukkunni einusinni morguntíma hjá skólastjóra, við mikilsverða mentastofnun, og bað um að mega tala við skólastjórann. Vinnukonan, sem lauk upp, leit á fatnað hans, og af pví hún hélt hann ætlaði að biðja ölrnusu, bauð hún honum að fara að eldhúsdyrunum. Drengurinn gjörði svo og fór strax að bakdyrun- um. »Get eg fengið að tala við hr. Brun?" sagði hann. „Þú vilt víst heldur hafa dálítið að borða",svar- aði vinnukonan, „og eg get vel gefið þér það án þess að ónáða skólastjórann." „þökk fyrir ", sagði drengurinn "eg hef ekkert á móti því að þyggja brauðsneið ; en eg vildi gjarnan fá að tala við hr. Brun, ef hann leyfir það." „Kanske þig vanti gömui föt", sagði stúlkan. um leið og hún leit á bættu buxurnar drengs- ins. „Eg held varla hann hafi neitt núna, s.un hann getur mist.því hann gefur svo mikið burtu,,. Og án þess að gefa frekari gaum að ósk drengsins hélt hún áfram vinnu sinni. „Get eg fengið að talg. við -hr. Brun?" sagði drengurinn aftur, þegarhann varbúinn að borða. „Jæja nú, hann er inni á bókasafninu ; og ef það er nauðsynlegt að ónáða hann, þá get eg gjört það; en hann vill gjarnan fá að hafa ró einstöku sinnum", sagði stúlkan dálitið önug. Henni fanst það ekki sæma að láta svo ilia klæddan dreng koma inn í hús h úsbónda síns þó þurkaði hjin sér urn hendurnar og bauð honum að koma með sér. Um leið og húu opnaði dyrnar að bókasafninu, sagði hún: „Hr. Brun, hér er drengur, sep vill endiiega fá að tala við yður, sv > eg !*t hann koma inn til yðar". Eg veit ekki hvernig hann fór að segja frá hver hann var eða hvað 'nann' vildi; en það veit eg, að þegar þeir höt'ðu talað saman nokkr- ar minútur, þá lagði skólastjórinn frá sér bókina, sem hann hafði verið að lesa í, en tók nokkrar grískar bækur og fór að prófa dreng- inn, en hann svaraði öllum spurningum greini- lega. „Það verð eg að segja, að þú hefir svarað vel", sagði skólastjórinn um leið og hann virti drenginn fyrir sér frá hvirfli til ilja. „Segðu mér, hvernig þú hefir lært svona mikið?" „Eg hef gjört það 1 tómstundum mínum", ; svaraði drengurinn. Þessi drengur var fátækur, hafði stranga vinnit og lítið tækifæri til að ganga í skóla, og þó I hafði hann komist svo langt að hann var nær | því nógu undirbúinn, ti! að ganga inn á eina j af hinum hærri mentaskólum. Eru ekki tómstundirnar gullkorn tímans? Þú hlýtur að standa reikningskap af því, hvernig þú notar tómstundir þinar. Hvernig hefir þú varið þeim? Hugaðu um það. Þessi drengur getur sýnt þér hve mikið gagn getur orðið að þeim, ef þær eru vel not- aðar En eg óttast fyrir ef þú vilt spyrja þá sem sitja í fangelsum, betrunarnúsum, spilahús- um og gildaskálum, hvenær þeir hefðu byrjað syndalíf sitt, þá inundu margir svara: „Á tótnstundum mínum." „Á tómstundum j mínum lærði eg að spila." „Á tómstundum j' mínum byrjaði eg að reykja og drekka áfengi". .Það var á tómstundum minum að eg stal hnetum frá konunni sem var að selja". „Það var á tómstundum ininum, að eg hitti spilta 1 félaga og komst-í kynni við þá". Vertu aðgætinn með tómstundir þínar. Freist- j arinn mun ávalt lelta tækifæris að ■ svíkja þig, þegar þú ert ekki starfandi að þínum venjulegu störfum. Þá reynir hann ef mögulegt er að fá | að ganga að hjarta þínu. Þar leynir hann sér j og leggur á ráð sín og hvetur þig ti! þess, sem I ílt er. . Gættu vel að tómstundum þínum! Ingólfur og ísíenzku-vandiætíng. Pað er góðra gjalda vert, að menn j vilja vanda um fslenzkuna. Pað er eng- j inn óþaríi, og Ingólfur á þakkir skilið j fyrir að gjöra það vel og vandlega. En stundum finst oss hann taka munn- inn of íullan. Ut af >Höllu« lians Jóns Trausta fyll- ist »Ingólfur« 23. þ. m. megnri reiði og finnur að »málleysum, rangri sefninga- skipun, bjöguðum beygingum og ram- vitlausri stafsetningu« f bók þessari. En ekki fer »Ingólfur« í þetta sinn betur á stað, en að fyrsta orðið í grein

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.