Frækorn


Frækorn - 28.04.1907, Blaðsíða 5

Frækorn - 28.04.1907, Blaðsíða 5
FRÆKORN 129 Þorbjargar Sveinsdóttur, 100 kr. til iíkneskis íngólfs Arnarsonar landnáms- manns, 100 kr. í samskotasjóð handa ekkjum drukknaðrað manna o. m. fl. 4 ársrit hefir félagið gefið út, og sömuleiðis »Kúguri kvenna«, eftir Jón Stuart Mill, það v^r gjört á fyrstu árum félagsins, eitt hefti á ári, en peninga vantaði til þess að halda því áfram, nema þá að engu öðru væri sint. Nú hefir félagið í annað sinn lagt út í að safna undirskriftum undir á- skorun um jafnrétti kvenna og ætlar að senda þær til þingsins í sumar í þeirri von, að nú gangi betur. Félag- hefir fyrir satt að allir flokkar séumál- inu hlyntir, vilji styðja það og leggja því liðsyrði. Eins og sjá má á ofanrituðu, hefir kvenfélagið haft með höndum ýms þarfleg mál, og framkvæmdir orðið meiri en algengt er hjá elnalitlum fé- lögum. (Úr Ingólfi). ---------------- Qygða-gullið. Þú gullið heims, er glampa slær á bygðir þig glaðir prísa vitringanna fjöld, en samt þú aldrei syndir af þér dygðir þó sértu lofað fram á þetta kvöld. En annað gull er æðst í þessum heimi að inna satt, og breyta jafnan vel. Það er hið besta guðs í víðum geimi frá grunni hafs, og upp í sólarhvel. Vor guð mun aldrei meta mikils skartið er manninn skreytir ytra, — íánýtt prjál. Um efnaleysi ei við drottinn kvartið en að eins biðjið hann um nýja sál, þá sál er elskar alt hið góða og fagra og að eins drottni gefur hjarta sitt. I’á sál er eigi girnist gullið magra, er gyllir að eins holdið veika þitt. Ó, biðjið guð með gleði sanna’ í hjarta og göfgið hann, og talið sannleikann, og látið trúai ljósið fagra’ og bjarta, leiða ykkur föðurs heim í rann ; því þá mun himna-herrans náðin góða með hreinu dygða-gulli skreyta þig og það vill hann öllum mönnum bjóða sem á hann trúa’ og ganga hans á veg. C 0. H. Veslings Fanny. (Framh.) Hún lét reisa langan stiga upp að gluggaium, og sendi þjón upp til að vita, hvort þessu væri þannig varið. Til allrar hamingju hafði giugginn staðið opinn, voru því dyrnar strax opnaðar innan frá. Stúlkurnar voru gagnteknar af skelfingu, þegar for- stöðukonan tók hana upp og lagði hana i rúmið. Hún hafði fengið á- kafan krampa. Læknir var strax sótt- ur; en þegar krampanum linti, leyndi sér ekki, að hún var búin að fá á- kafa hitasótt, og læknirinn sagði, að þ°ð væri ekki um að viliast, að sjúk- dómurinn væri heilabólga. Rað er ómögulegt að lýsa því, hversu stúlk- urnar skömmuðust sín, og hvílíka skelfing og samvizkukvöl þær urðu að líða. Rær skorti djörfung til að kannast við yfirsjón sína, en voru mjög oft á gangi fyrir framan sjúkra- herbergið og buðu fram hjálp sína. Þær langaði til, á einn eða annan hátt, að bæta fyrir brot sitt, en það var árangurslaust. Nálægð þeirra hafði óþægileg áhrif á sjúklinginn, svo þær voru sendar ^urt. Dagarnir liðu hver eftir annan og hún lá með óráði, Litla skinntaskan var rannsökuð til þess, ef mögulegt

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.