Frækorn


Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 1

Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 1
VIII. ÁRG. REYKJAVÍK, 5. MAÍ 1907. 18. TBL. Heilbrigði. Eftir E. Q. White. Viðrétting heilbrigðinnar er eitt með- alið, sem á að undirbúa guðs börn til að mæta frammi fyrir mannsins syni, þegar hann opinberast. Jóhann- es skírari gekk fram í Elíasar anda og krafti, til að undirbúa drotni veg, og snúa fólkinu til sinnisbetrunar. Hann var fyrirmynd þess fólks, sem guð á hinum síðustu dögum hefir trúað fyrir þeim heilaga sannleika, sem hann vill láta boða öllum mönn- um, og þannig undirbúa þá fyrir end- urkomu Krists. Jóhannes var siðbótamaður. Eng- illinn Gabríel, sem kom niður af himni, prédikaði heilbrigðis-reglur fyrir föður og móður Jóhannesar. Hann sagði, að Jóhannes skyldi ekki drekka vín eða sterkan drykk og að hann skyldi alt í frá móðurlífi fyllast heilögum anda. Jóhannes skildi sig frá vinum sín- um og frá öllu óhófsömu lífi. Klæðn- aður hans af úlfaldahárum var eins og áminning til prestanna og Gyð- ingaþjóðarinnar í heild sinni fyrir ó- hóf þeirra og prjál. Fæði hans, sem var engisprettur og skógar'nunang, var áminning til fólksins fyrir það ó- hóf, sem drotnaði hjá því. Spámaöurinn Malakías segir: >Sjá, eg sendi yður spámanninn Elías, áð- ur en kemur hinn rnikli og hræðilegi dagur drottins. Hann skal snúa hjört- um feðranna til barnanna, og barn- anna til feðranna.« Hér lýsir spá- maðurinn tilgangi starfsins. Reir, sem eiga að búa fóikið undir endur- komu Krists, eru táknmyndaðir með hinum trúa Elíasi; eins kom og Jó- hannes í Elíasar anda og krafti til að greiða veginn áður en Kristur kom í fyrra skiftið. Siðbót skal vera hið stóra málefni sem lagt verður fyrir alþýðuna. Hófsemi í öllum hlutum á að vera samfara boðskapnum, til að snúa guðs fólki burt frá skurð- goðadýrkun, sællífi og óhófi- í klæða- burði o. fl. Sú sjálfsafneitun, auð- mýkt og bindindi, sem guð heimtaði af sínum heilögu, er hann á sérstak- an hátt stjórnaði og veitti blessun sína, á að koma fram hjá guðs fólki, gagnstætt þeirri stjórnleysisvenju, sem ersvo almenn nú á tímum. Guð hefir sýnt; að viðrétting heilbrigðinnar er í eins nánu sambandi við boðskap drottins á vorri tíð, eins og hendin er samtengd líkamanum Og hvergi geta menn fundið meiri orsök til and- legrar og likamlegrar spillingar held- ur en einmitt vanrækslu í þessu efni. Pað er stór synd að láta stjórnast af fýsnum sínum, og loka augwnum fyrir Ijósinu, af ótta fyrir, að menn finni hjá sér syndsamlega siði, sem þeir ekki vilja sleppa. Sá, sem í einu

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.