Frækorn


Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 7

Frækorn - 05.05.1907, Blaðsíða 7
FRÆKORN 1 39 og barn. Hún varð brátt íær um að byrja nám sitt aftur, og naut upp j frá þessu vináttu og virðingar af öll- um, enda þó hún misti alt hárið og yröi vikum saman að hafa falskt hár. Þegar sumarfríið kom, tók Bertha hana með sér heim í skrautlega heim- kynnið sitt við Hudsonsfljótið. Bar var hún í fyrsta sinn á ævinni um- kringd af fegurð og skrauti, ogbreytt við hana sem velkominn gest. Pað leið ekki á löngu að hún gæti kast- að falska hármu, og nú fékk hún aítur hrokkið hár, sem í sannleika var heiðurs kóróna, og veitti andliti hennar fagurt útlit. Hún var sífelt hógvær og blíð, og elskuð af öllum, og var á skólanum þar til hún hafði lokið námi og tek- ið próf með bezta vitnisburði. Síðan bauð forstöðukonan henni stöðu, sem yfir-kenslukona með góðu kaupi og tók hún auðvitað fegins hend1 móti því boði. ^Fcuir og jróðkilair. Símskeyti til Blaðskeytasam- lagsins. (»R.vík«, »Austri^, »Frækorn<.) Eftirprentun bönnuð. Kaupmhöfn, 29. apríl. Danmörk. Verkfailinu á skipasmíða- stöðunum er nú lokið. Hvervetna orðinn vinnufriður aftur. Pýzkaland. Stjórnin fer fram á að breikka og dýpka Kiel-skurðinn, og vill fá til þess veittar 221 mill. marka. Spánn. Stjórnin hefir faliist á fyrir- ætlun um umsteyping herflotans, er áætlað að á 8 árum skuli ríkið hafa skapað sér aiveg nýjan flota. Pað orð leikur á, að þetta muni vera gert að undirlagi Bretastjórnar og eftir samningi við hana. Mið-Europa. Þar liafa gengið ákaf- ir stormar með snjóbyljum, þrumum og eldinguni. Danmörk. »Vort land« skýrir nú frá landvarna-stefnuskrá stjórnarinnar Ressi eru aðalatriðin: samvinna við Rjóðverjaiand í hernaðarmálum. Víg- virki til stuðnings danska herflotan- um verði' reist við Smaalandshavet (hafið milli Sjálands, Lálands og Falst- urs, við suðurenda Stóra-Beltis); her- flotinn verði aukinn og Kaupmanna- höfn víggirt gagnvart árásum frá sjáv- arsíðunni. Útgjöld við þetta áætluð 50 millíónir. Kaupmhöfn, 3. maí. Prússland. Dúman hefír samþykt frumvarp stjórnarinnar um útboðfjölda nýliða í ár. Danmörk. Hér í Kaupmannahöfn hafa verið haldnir fundir í tilefni af ummælum í »Nationalt;dende«. Stjórn- arforsetinn hefir lyst yfir því, að hvorki hafi Danmörk gert né ætli sér að gera leynilega samninga við Rýzka- land. Stefna stjórnarinn.ir sé að halda ríkinu hlutlausu í ófriði, en ekki að gera samband við önnur ríki. Símskeyti frá Ritzaus Bureau. Kaupmhöfn 25. apríl. Englandsbanki hefir lækkað vexti niður í 4°/a- Guðm. Hannessyni veitt læknishér- að Reykjavíkur 19. þ. m Thorefélagið héit aðalfund í dag. Vaxandi ágóði. Féiagsstjórninni veitt umboð til að auka stofnféð upp í millíón kr. og bæta manni í stjórn- ina við tækifæri, ef tii viil (slendingi. Bókm. fél. endurkaus formann sinn, þorvald Thoroddsen, og stjórn. Frumvarp um írskt ráð verður lagt fyrir þingið í Lundúnmn 7. maí. Kaupmhöfn 30. apríl: Réttarpróf í gær um Tryggvaslysið. Framburður Jensens og Evensens mjög gagnstæð- ur. Raun að heyra það. Prófunum verður haldið áfram. Hlutafélag nýstofnað með 1 millíón kr. höfuðstól, tekur við verzlun P. j. Thorsteinssons og Godthaab. A. T.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.