Frækorn - 09.08.1907, Side 5
PRÆKORN
241
7. Gættu þín fyrir hinum fyrstu von-
brigðum.
8. Talaðu í þýðum málrómi.
9. Vendu þig að tala vingjarnleg og
þægileg orð, hve nær sem tækifæri býðst.
10. Lærðu að þekkja lundarfar ann-
ara og sýndu þeim hluttekningu í erfið-
leikum þeirra, hversu litlir sem þeir eru.
11. Vanræktu ekki að framkvæma smá
viðvik, ef þau á nokkurn hátt geta orðið
til ánægju.
12. Vertu ekki einrænn og dutlunga-
fullur og ekki síkvartandi.
13. Lærðu að sýna sjálfsafneitun og
meta aðra meir en sjálfan þig.
14. Gættu þín fyrir þeim, sem ganga
hús úr húsi með slúður og sletta sér sí-
felt fram í annara málefni.
15. Asakaðu aldrei aðra fyrir að hafa
gjört eitthvað af illum hvötum, ef mögu-
legt er að hugsa sér góðan tilgang.
16. Vertu vingjarnlegur en ákveðinn
gagnvart börnunum.
17. Leyfðu ekki börnum þínum að
vera burtu frá heimilinu að kvöldinu,
nema þú vitir, hvar þau eru.
18. Láttu börnin ekki hafa of mikla
vasapeninga.
19. Mundu eftir] dauðanum og dóm-
inum og hagaðu þér þannig í heiminum,
að þú getir haft vissa von um bústað á
himnum.
-------*♦*-------
Fagrir siöir.
Það var einu sinni um vorið síðari
hluta dags, að Horace B. Qaflin, ríkur
kaupmaður í New-york, sat á einkaskrifstofu
sinni. Rað var barið að dyrum og ung-
ur maður fölur og þreytulegur gekk inn
eins og með hálfum huga.
>Hr. Claflin,« sagði hann, »eg þarfnast
hjálpar, eg get ekki borgað kröfur þær,
sem til mín eru gjörðar nú sem stendur.
Sumir af viðskiftamönnum mínum hafa
ekki haldið orð sín, og þannig steypt
mér í vandræði. Eg vildi gjarna fálánaða
10,000 dollara Eg kem til yðar af því
þér voruð vinur föður míns, og eg hugsaði
að yður væri máske líka vel til mín«.
»Komið nær, sagði Claflin, »má eg
bjóða yður eitt glas af víni?«
»Nei, þakka yður fyrir,« svaraði ungi
maðurinn, »eg drekk ekki áfengi.«
>Viljið þér þá vindil?«
»Nei, þökk fyrir, eg reyki ekki«,
»Jæja,« sagði kaupmaðurinn, »eg hefði
gjarnan viljað hjálpa yður, en egheldeg
geti það ekki.«
»Rá er ekki meira að tala um það,«
sagði ungi maðurinn og bjóst til að fara.
»Eg hugsaði máske þér gætuð hjálpað
mér, herra minn, Góða nótt.
»Bíðið svolítið,« sagði Claflin. »Rér
drekkið ekki?«
»Nei.«
»Og reykið heldur ekki?«
■ »Nei«.
»Spilið þér heldur ekki á spil eða neitt
slíkt?«
»Nei, herra minn, eg stend fyrir sunnu-
dagaskóla.
»það er gott,« sagði Claflin með tárin
í augunum. »Rér getið fengið þrefalt
meiri peninga ef þér viljið. Faðir yðar
lánaði mér einu sinni 5,000 dollara, og
hann lagði fyrir mig sömu spurningarnar.
Hann lánaði mér, og eg vil lána yður
og óska ekki eftir þakklæti fyrir. Eg
er skyldugur til þess fyrir hjálpsemi föður
yðar við mig.
-------»♦*■------
í næsta tbl. Frækorna kemur gull-
fallegt enskt sönglag með íslenzkum
texta.