Frækorn


Frækorn - 09.08.1907, Síða 7

Frækorn - 09.08.1907, Síða 7
FRÆKORN 243 og þeir sáu hann fara til himins;það kennir oss að, hið fyrsta, sem hinn væntandi skari fær að sjá, verður ský — eflaust myndað af dýrð englanna. Allir munu sjá frelsarann, þegar hann þá opinberast, »hvert auga«. Sumir munu þola þá dýrðarsjón, en aðrir fela sig í fylgsnum og hellum. Op. 6, 16. Hann kemur í þrefaldri: dýrð föðursins, sinni eigin og englanna. Englarnir eru með sem uppskeru- menn til að safna saman hinum þrosk- aða ávexti, því það er herra uppsker- unnar, sem kemur með bitran Ijá í hendi sér. Op. 14, 14, —16. Hvað skeður, þegar hann kemur? 1. Tess. 4, 13, —18.; 1. Kor. 15, 51.-55.; Matt. 13, 39.-43.; Jóh. 5, 28. 29. Jesús kemur ekki með þögn og kyrð, hann kemur með ákalli, höfuð- engils raust og guðs lúðri; híminn og jörð munu leika á reiðiskjálfi (Es. 13, 13.), fjöllin titra, grafirnar opnast, og hinir dauðu upprísa — þeir sem dán- ir eru í trúnni á Krist. Dauðinn get- ur ekki haldið þeim í fjötrum sínum, sem hafa reitt sig á hann, sem er »upprisan og lífið.« Með fagnaðar- ópið á vörunum: »Dauði, hvar er þinn broddur, hel, hvarer þinn sigur?< rísa þeir upp frá gröfum sínum og sjá sinn elskaða drottin og frelsara augliti til auglitis. Peir, sem upprísa úr gröfunum, íklæðast ódauðlegum, óforgengileg- um líkama, og til sömu dýrðar um- breytast þeir, sem lifa á jörðunni við endurkomu Krists, allir þeir, sem eru undirbúnir að mæta honum. Retta skeður »í vetfangi« áaugabragði við hinn síðasta lúðursþyt, því lúðurinn j mun gella og, hinir dauðu upprísa ] óforgengilegir en vér umbreytast«: (1. Kor. 15, 52.) Sú dýrð, sem er gleði og lífgjöf fyrir hina réttlátu, er eyðandi eldur fyrir hina óguðlegu. »Hver er sá meðal vor, sem búa megi við brenn- andi eld? Hver af oss getur búið hjá eilífum glóðum?« verður óp hinna ógæfusömu (Es. 33, 14.; 2. Tess. 1, 6.-8.). Regar raust höfuðengilsins hljómar svo fagurt í eyrum hinna réttlátu, mun hún hljóma sem þruma í eyrum synd- arans, þeir verða gagnteknir af ótta og skelfingu; engin gjá verður nógu djúp, engi m hellir nógu dimmur til að hylja þá »fyrir ásjónu þess, sem á stólnum situr og fyrir reiði lambs- ins.« Op. 6, 16. Dauðinn verður hlutskifti þeirra. Hvað verður um hina re'ttlátu? Reir, sem upprísa af gröfunum í þessari fyrri upprisu, og eins þeir, sem þá verða hér lifandi, munu verða »hrifnir til skýja, til fundar við drott- in í loftinu, og«, bætir postulinn við, »munum vér síðan með drotni vera alla tíma. Huggið hver annan með þessum orðum. 1. Tess. 4, 17, —18. Hinir frelsuðu mæta þannig drotni í loftinu. Kristur stígur ekki fæti sínum á jörðina, heldur lyftir hinum endur- leystu upp til sín. Regar hann hefir safnað þeim kring um sig frá austri, vestri, norðri og suðri, ieiðir hann þá með sér heim til »föðurhússins«, með hinum »mörgu híbýlum,« til þess staðar, sem hann hefir tilbúið þeim. Hver getur iýst þessari samkomu í skýjunum? Hver getur hugsað sér fagnaðarsöng hinna mörgu millíóna hins endurleysta skara. Engin tunga fær útmálað það, sem þá fer fram, en — — ó, hve dýrðlegt að verða með

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.