Frækorn


Frækorn - 09.08.1907, Side 12

Frækorn - 09.08.1907, Side 12
248 FRÆKORN Sómasamlegur klæðnaður. Kristur áminti lærisveina sína, þeg- ar hann talaði á fjallinu, um það, að festa ekki hugann um of við jarðneska hluti. Hann segir berlega: iÞérget- ið ekki verið bæði þjónar guðs og mammons. Eg segi yður því, verið ekki hugsjúkir fyrir yðru lífi, hvað þér skuluð eta og drekka, eða fyrir yðr- um líkama, hverju þér skuluð klæð- ast. Er ekki lífið meira vert en fæðan, og líkaminn meir en klæðnaðurinn? Hví eruð þér áhyggjufullir um klæðn- aðinn? Skoðið akursins liljugrös, hvorki vinna þau né spinna, en eg segi yður, að Salomon í allri sinni dýrð var ekki svo skrýddur, sem eitt af þeim«. Pessi orð eru mjög þýðingarmikil. þau áttu við á Krists tíma, og þau eiga einmg við á vorri tíð Jesús ber saman hinn náttúrlegaeinfaldleik blóm- anna við skrautið, sem oft er fest á klæðnaðinn. Hann segir, að jafnvel Salomon í dýrð sinni þyldt ekki sam- jöt'nuð við hina náttúrlegu fegurð blóm- anna. Hér er bending til allra, sem vilja þekkja og gjöra guðs vilja. Jes- ús hefir tekið eítir því, hve margir láta sér vera umhugað um klæðnað- inn, og hann hefir ámint, já skipað oss að bera ekki áhyggju fyrir slíku. Pað er áríðandi fyrir oss að hlýða orðum hans. Hugur Salómons var of mjög hrifinn af ytra skrauti. Hann gleymdi að göfga sálu sína með stöðugu sam- félagi við guð. Hann vanrækti að þroska til fullkomnunar göfugan hugs- unarhátt, meðan hann gjörði alt sitt til að efla ytri fegurð og skraut. Hann misti heiður og hreinskilni hjarta síns um leið og hann með skrauti sínu reyndi að ávinna sér heiður heimsins. Hann varð loks einvaldsherra, sem styrkti óhóf sitt með þungum álög- um á þegna sína. Fyrst spiltist hjarta hans, svo féll hann burtu frá guði og varð loks skurðgoðadýrkari. Vér hryggjumst af því, þegar vér sjáum systur vorar sækjast eftir að fylgja tizku heimsins, í stað þess að klæða sig sómasamlegum búningi. A þennan hátt skilja þær sig frá guði og vanrækja hjartans innra skart. Pær ættu ekki að eyða þeim tíma, sem guð hefir gefið þeim til að útbúa ó- þarft skraut á klæði sín. Hversu miklu betra væii að þær notuðu tímann til að rannsaka ritningarnar og þannig afla sér þekkingar á spádómunum og á kenningu Krists. Sem kristnar manneskjur ættum vér aldrei að taka oss fyrir hendur nokkra vinnu, sem vér getum ekki beðið guð um að blessa. Getur þú, systir mín, með góðri samvizku setið við óþarfa vinnu til að skreyta klæðnað þinn ? Getur þú beðið guð að blessa til- raunir þínar, þegar þú ert óróleg í huga, út at slaufum og böndum, sem, þú ætlar að prýða föt þín með ? Þann tíma og það fé, sem þú eyðir á þenn- an hátt, gætir þú notað til að gjöra öðrum gott og til að þroska sálar- gáfur þínar. Margar af trúarsystrum vorum hafa góða hæfilegleika, og ef þær notuðu þá guði til dýrðar, gætu þær unnið margar sálir fyrir Kristi. Munu þær ekki bera ábyrgð á sálum þeim, sem þær liefðu getað frelsað, ef óhóf þeirra í klæðaburði og áhyggjur þessa heims hafa slófgað hæfilegleika þá, sem guð gaf þeim, svo þær fundu enga þrá eftir frelsi sálna? Tízkan er meðal í hendi sálaróvinarins til þess að snúa huga manna að henni,ogþannigaftra þeim frá að hugsa mikið um það, sem er nauðsynlegra.

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.