Frækorn - 09.08.1907, Page 14
259
FRÆKORN
'ÍgFÍuli- og ^róðUikur. |
Símskeyti frá Ritzaus Bureau.
Kaupmannahöfn 30. júlí.
Japanar hafa nú fengið liðauka og j
hafa Kóreu á valdi sínu.
Þýzkalandskeisari og Rússakeisari
hafa mælt sér mót 4. ágúst úti fyrir j
Svinemunde.
Frá New York er símað um bruna
gufuskipsins ,Frontinac‘. Mikil hræðsla j
greip skipverj?. Við björgunartilraun- 1
ina druknuðu 8 Kínverjar og 2 börn. j
Brunnið hefir sexlyft hús í New
York og fórust 20 manns.
Kosningar á Frakklandi hafa geng-
ið ofurlítið frjálslyuda flokknum i vil.
Tilraunir með stjórnþjál loftför hafa
vel hepnast í París og Berlín.
Kaupmannahöfn 1. ágúst kl. 6 sd.
Stjórnin í Japan hefir úrskurðað, að
rofinn skuli allijr her í Kóreu.
Frá Marokko er að frétta miklar ó-
eirðir. Par eiga að hafa verið myrt-
ir í Casablanca 8 Norðurálfumenn.
Frakkar hafa sent þangað 3 herskip.
Dönsk blöð láta vel af skipan milli-
landanefndarinnar (sem skipuð var 30.
Júlí).
Ýmsar fréttir.
Konungskoman.
Konungsskipin sáust hér úti í Faxa-
flóanum 2Q. júlí. Konur.gur fór samt
ekki í landi fyr en að morgni hins 30.
Viðbúnaður mikill í landi og mikill
hátíðabragur yfir fólkinu.
Komudaginn kl. 2 e. h. var haldin
fagnaðar-samkoma í alþingishúsinu;
talaði ráðherra þar og bauð konung
og ríkisþingmenn velkomna, en kon-
ungur svaraði með einkar-hlýjum
orðum.
Kl. 6 síód. sama dag hófst miðdeg-
veizla, sem ráðherra og alþingismenn
höfðu boðið til. Sátu þessa veizlu
auk konnngs og alþingismanna flestir
heldri menn Reykjavíkur og fleiri að-
komumenn.
Margar ræður voru haldnar. Kon-
ungsræða þá einkar merkileg fyrir þá
sök, að hann fullvissaði menn um,
að hann vildi láta íslendinga »fá alt
það frelsi til að glæða það, sem þjóð-
inni ér sérkennilegt, og hagnýta það,
sem landið í sér geymir, er staðist
getur með einingu ríkisins.«
Miðvikudaginn 31. júlí lagði kon-
ungur og föruneyti hans ásamt fjölda
hérlendra manna af stað í ferðina aust-
ur til Pingvalla, Cieysis, Gullfoss og
Pjórsárbrúar.
Veðrið yfirleitt gott í þeirri ferð.
Konungi hefir fundist mikið til um
fegurð landsins og unir hér hið bezta.
Kom leiðangurinn htngað aftur á
miðvikudaginn var.
Konungur er hugljúfur maður, er
sýnir kurteisi og iítillæti við alla, enda
hefir hann hertekið allra hjörtu.
Af kvæðum þeim, sem ort voru í
tilefni konungskomunnar, birtast tvö
í þessu tbl.: »Kvæðaflokkur« eftir
Porst. Gíslason og »Að Lögbergi*
eftir séra Matth. Jochumsson.
O. Köhler,
etazráð, einn af ferðamönnunum
dönsku, ofkældist á Þingvöllum, fékk
lungnabólgu og var fluttur hingað á
spítala ; dó þar 7. þ. m.
Frá Seyðisfirði
er símað í síðastl. viku: Nú um
tíma fyrirtaksgóð tíð. Grassprettu fer
mjög fram. Bátfiski lítið. Fiskiveiða-
gufuskipið Nóra kom inn með 300 tn.
síldar eftir einnar nætur útivist.