Frækorn - 30.10.1908, Side 6

Frækorn - 30.10.1908, Side 6
198 auga til kristinnar trúar, verði bæði að gefa gaum að tilfinn- ingum sínum og eigin hag. Eg svaraði bréfi móður minn- ar fáum dögum seinna, og mér hefir verið sagt, þótt hún aldrei skrifaði mer seinna, að síðasta orðið, seni hún sagði, þegar líf hennar var á förum, hafi verið nafn mitt, »Max«. Enn er eftir að segja frá end- irnum á sögu Karls Koulssonar. Hér um bil 18 mánuðum eftir að eg snerist, var eg eitt kvöld á bænasamkomu í borginni Brook- lyn. Það var ein af þessum samkomum, þar sem kristnir menn bera fram vitnisburð um ástarvinsemd frelsara síns. Þeg- ar allmargir þeirra höfðu tekið til máls, stóð upp öldruð kona og sagði: »Kæru vinir, það get- ur verið, að þetta sé í síðasta sinni, sem mér auðnast að bera vitnisburð fyrir Krist. Húslækn- irinn minn sagði mér í gær, að hægra lungað mitt væri nærri farið, og að vinstra lungað væri mjög skemt, svo að þó eg geri ráð fyrir því bezta, þá á eg eft- ir að vera með ykkur aðeins skamman tíma, en það, sem eft- ir er, heyrir Jesú til. O, það er mér mikil gleði að vita, að eg á að hitta drenginn minn hjá Jesú á himnum. Sonur minn var ekki einungis hermaður lands síns, heldur einnig hermaður Krists. Hann særðist í orustunni við Gettisburg, komst í hendurnar á læknir, sem var Gyðingur og tók hann at' honum hönd ogfót, en hann dó 5 dögum síðar. Liðssveitarpresturinn skrifaði mér bréf Og sendi mér biblíu drengs- ins míns. I bréfi þessu stóð, að Karl minn hefði á dánarstund- FRÆKORN inni sent eftir Gyðingalækninum og sagt við hann: »Læknir, mig langar að segja yður, áður en eg dey, að fyrir 5 dögum, þegar þér voruð að taka af mér handlegginn og fótinn, bað eg drottinn Jesúm fyrst að snúa sál yðar.» Regar eg heyrði vitnisburð konu þessarar, gat eg ekki setið kyr lengur. Eg fór úr sæti mínu, gekk til hennar, tók í hönd henn- ar og sagði: »Guðblessi yður, kæra systir; bæn drengsins yðar hefir verið svarað. Eg er Gyð- ingalæknirinn, sem Karl yðar bað fyrir, og frelsari hans er nú frels- ari minn.< Eg minnist hér með mikilli gleði og hjartans þakklæti þess, að sonur minn snerist. Eg trúi því fastlega, að hinn kæri frelsari hafi gert hjarta hans órótt um hríð áður en við hitt- umst í júlí 1887. í fyrsta sinn í 14 ár kallaði hann mig föður. Hann grét sárt, þegar við hitt- umst, og það var að sjá, sem sál hans þráði að hitta sýstur sína aftur. Hjarta mitt barðist af gleði, þegar eg heyrði þetta, því eg vissi, að hann mundi vera í góð um höndum, er hann væri hjá systur sinni (er var í Ameríku og innilega kristin kona). Hann lagði á stað til Ameríku og hitti þar systur sína mánudagskvöld- ið 15. ágúst. Næsta föstudagskvöld bað hann systur sína að fylgja sér til grafar móður þeirra. Föstudaginn 29. ágúst fór hann aftur til grafarinnar, en þá einn, og meðan hann var þar, fyrirgaf guð af náð sinni, fyrir Krists sakir honum syndir sín- ar og sneri sál hans. Hann hélt aftur heimleiðis, sagði systur sinni hinar góðu fréttir, og skrif- aði mér svo sama kvöld. Og nú að endingu vil eg inni- lega biðja þess, að guð láti mér endast líf, svo ég megi heyra son minn prédika fagnaðarboð- skap þess kæra frelsara, sem hann hafði hafnað svo lengi. Af því eg hefi oft verið spurð- ur að, hvort öll atriði í þessari sögu væru nákvæmlega sönn, þá nota eg þetta tækifæri til þess að lýsa þvi yfir, að allir atburð- ir hafa gerst nákvæmlega eins og sagt er frá. M. L. R. Terðamolar. Þetta sumar hef eg ferðast um mikinn hluta Borgarfjarðar, Mýrar og Dalasýslu. Er landslagið í sýslum þessum víða fallegt og sumstaðar mjög ein- kennilegt. Virðist eitt og aunað benda á, að sjórinn hafi gengið miklu hærra í fyrri daga en nú. Um þetta bera þær einkennilegu fjallamyndanir, hryggir og brattir hamrar vott, sem cru víða neðan- til um alt svæðið á milli Ákranes og Borgarnes og um alt láglendið fyrir ofati. Hve langt þeir ganga í sjó fram, læt eg ósagt; en svo Iangt, sem augað eygir, þegar fjara er, þá hefir sjávarbotninn sama út- iit og landið: sífeldir hryggir og hamrar. Máske hefir brimið rnolað klett- ana í sundur, en straumarnir borið í burtu smágrýtið. Skeljar, er víða hafa fundist alveg upp við fjalla- rætur, bera einnig vott um þetta

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.