Frækorn - 07.05.1909, Side 1
um
aflflutningsbaim á áfengi.
Afgreidd frá alþingi 1. maí 190Q.
1. gr.
Engan áfengan drykk má flytja tiljíslands
til annara nota en þeirra, sem getið er um
2. grein, og farið sé með eftir reglum þeim,
sem settar eru í lögum þessum. En það
er áfengur drykkur eftir lögum þessum, sem
í er meira en 21/4°/0 af vínanda (alkóhóli)
að rúmmáli. Duft, kökur og annað, er þau
efni eru f, sem sundur má leysa í vökva,
og í sér hafa fólgið slíkt áfengi, skal fara
með sem áfengan diykk.
2. gr.
Heimilt skal stjórnanda eða eiganda iðn-
aðarfyrirtækis, efnarannsóknarslofu, náttúru-
gripasafna eða annara þvílíkra stofnana að
flytja frá útlöndum vínanda eða annað áfengi
til iðnþarfa og verklegra nota í stöfnuninni.
Svo skal og heimilt að flytja lil landsins
vínanda, sem ætlaður er til eldsneytis. Lyf-
sölum og héraðslæknum skal og heimilt að
flytja til landsins vínanda þann og annað
áfengi, sem þeim er skylt að hafa til lækn-
isdóma samkvæmt hinni almennu lyfjaskrá.
Enn skal smáskamtalæknum heimilt að flytja
frá útlöndum smáskamtalyf með vínanda í,
ef pöntun þeirra fylgja meðmæli hlutaðeig-
andi lögreglustjóra og sóknarprests. Að
lokum skal próföstum þjóðkirkjunnar og for-
stöðumönnum annara kirkjudeilda heimilt að
láta flytja frá útlöndum messuvín, nauðsyn-
legt sé til altarisgöngu þó í því sé meira af
vínanda en 2V*0/,,.