Frækorn - 07.05.1909, Blaðsíða 2

Frækorn - 07.05.1909, Blaðsíða 2
2 3. gr. Alt áfengi, sem flutt er til landsins frá út- löndum samkvæmt Iögum þessum, skal fyrst flytja á land í Reykjavík. Þar skal lands- stjórnin skipa sérstakan umsjónarmann áfeng- iskaupa, og hefir hann á höndum umsjón og eftirlit með áfengiskaupum, svo sem nán- ar er fyrir mælt í lögum þessum. Umsjónarrnaður hefir að launum 600 kr. á ári, er greiðast úr landssjóði. Svo fær hann og borgun fyrir húsrúm undir áfeng- isbirgð.ir, vinnulaun handa verkamönnum til aðstoðar og burðargjald bréfa. Ennfremur fær hann endurgjald fyrir efni þau, er með þarf til þess að gera áfengi óhæft til drykkjar. 4. gr. Nú hefir maður heimild til áfengisflutn- ing frá útlöndum eftir lögum þessum, og vill hann neyta þessarar heimildar sinnar, og skal hann þá í tæka tíð segja umsjónarmanni áfengiskaupa til um það, hvers konar áfengi og hve mikið hann vill fá og frá hverju verzlunarhúsi, svo og með hverri ferð frá útlöndum. Hann skal og skýra honum frá um leið, til hvers hann ætli að nota áfeng- Íð. Svo skal og fylgja beiðninni borgun fyrir flutning til Reykjavíkur og uppskipun þar. Umsjónarmaður sendir þá pöntunina því verzlunarhúsi eða þeim vínsölumanni, sem hún er stíluð til, og beiðist þess, að áfengið sé sent til sín. Skal umsjónarmað- ur, þegar er áfengið kemur til hans frá út- löndum, tryggja sér með rannsókn, að á- fengissendingin sé eigi önnur eða meiri e\ um var beðið. Nú reynist áfengið annað eða meira en um var beðið og skal um- sjónarmaður þá endursena sendanda það tafarlaust, ef annað er en um var beðið, eða það sem umfram reynist, enda er skipstjóra, sem flutti, eða útgerðarmanni skips, skylt að taka við því án borgutiar á farmgjaldi. Að því búnu skal hann, eftir fyrirsögu efna fræðings landsins, sem skyldur er að lát; honum aðstoð sína í té, blanda það áfengi er til iðnaðarfyrirtækja eða eldsneytis ei ætlað, þeim efnum, er gera það óhæft til

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.