Frækorn - 07.05.1909, Blaðsíða 7

Frækorn - 07.05.1909, Blaðsíða 7
7 15. gr. Nú sannast það á skipstjóra, að hann skýrir lögreglustjóra rangt frá um áfengi það, er hann hefir meðferðis, og skal hann þá sekur um 200—1000 kr., ef ekki liggur þyngri hegning við samkvæmt lögum og má gera fjárnám fyrir sektunum í skipi hans. Brot gegn þeim ákvæðum í lögum þess- um, er óheimila að veita, gefa, selja eða á annan hátt láta af hendi áfengi til annara manna, varða sektum 50 — 500 kr., ef ekki. liggur þyngri hegning við að lögum. Ef brot er ítrekað, varðar það se'dum frá 100 — 1000 kr. Sama .hegningin liggur og við því, ef lyf- sali lætur áfengi af hendi án skriflegrar lækn- isforskriftar eða oftar en einu sinni eftir sama læknisseðli. 16. gr. Brot gegn 7. gr. laga þessara varða sekt- nm 50—1000 kr. og skal hið flutta áfengi ásamt ílátum verða eign landssjóðs. 17. gr. Nú verður læknir sannur að sök um að hafa látið af hendi læknisseðil um áfengi í þeim tilgangi að það verði notað öðruvísi en sem læknislyf, og skal hann þá í fyrsta sinn sekur um 100—1000 kr., og skal sekt- in tvöfaldast, sé brotið endurtekið. Verði læknir sannur að sök um slíkt oftar en tvis- var, má svifta hann læknisleyfi um stundar- sakir, eða að öllu, ef miklar sakir eru. 18. gr. Allar sektir eftir lögum þessum renna í landssjóð. 19. gr. Með brot gegn lögum þessum skal fara sem almenn lögreglumál. 20. gr, Sveitarstjórnum og lögreglustjórum ersér- staklega skylt að sjá um að lögum þessum sé hiýtt.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.