Frækorn - 07.05.1909, Qupperneq 3
3
drykkjar, án þess þáð þó missi notagildi
sitt til þess sem það er ætl'að. Því næst
skal umsjónarmaður m< rkja áfengið með
embættisinnsigli sínu og segja eiganda til.
Eigandi skal þá heimilt að vitja þess, en
gjalda skal hann þá um leið kostnað þann,
er af blönduninni hefir leitt.
Nú líða svo 12 mánuðir frá tilkynningu
umsjónarmanns áfengiskaupa um aðflutning
áfengis, að sá hirðir ekki áfengið, er pant-
að hefir, né lýsir heldur yfir þeirri ósk, að
áfengið sé á hans kostnað endursent seljanda,
og ei þá áfengið með umbúðum eign lands-
sjóðs. Allan ógreiddan kostnað, er leitt
hefir af aðflutningnum, má þá taka lögtaki
hjá þeim, er áfengið hefir pantað, satnkvæmt
lögum 16. desember 1885.
Umsjónarmaður ber enga ábyrgð á greiðslu
andvirðis fyrir það áfengi sem aðflutt er.
5. gr.
Skylt er hverjum skipstjóra, er frá útlönd-
um kemur, að tilkynna lögreglustjóra um
leið og hann sýnir skipsskjölin, hvort hann
hafi nokkurt áfengi til flutnings fyrir aðra
menn, og þá hve mikið. Hann skal og skýra
frá, hvort og hve mikið áfengi hann hafi
meðferðis sem skipsforða, en óheimilt skal
honum, meðan hann er í höfnum inni eða
í landhelgi við Island, að veita eða selja eða
á annan hátt láta af hendi eða leyfa öðrum
skipverjum að láta af hendi nokkuð af því
áfengi, er til skipsforða er ætlað, til annarra
manna en þeirra, sem eru lögskráðir skip-
verjar.
Skipstjóri er sekur við lög þessi, ef hann
brýtur það, er nú var mælt.
Nú hefir skipstjóri meðferðis áfengi, frá
útlöndum, sem ekki er ætlað til skipsforða
og ekki á að fara til umsjónarmanns áfeng-
iskaupa, og skal lögreglustjóri þá á hinni
fyrstu höfn, er skipið kemur til, setja em-
bættisinnsigli sitt á hin aðfluttu áfengisílát
og ábyrgist skipstjóri, að innsiglin séu ekki
brotin eða úr ílátunum tekið fyr en skipið
er farið alfarið burt frá landinu, enda gangi
lögreglustjóri úr skugga um það, áður en