Frækorn - 07.05.1909, Blaðsíða 4
4
skip lætur úr síðustu höfn, en innsigli séu
heil og ekkert hafi verið tekið úr ílátunnm.
6. gr.
Nú strandar skip hér við Iand og hefir
meðferðis áfengi til umsjónarmanns áfengis-
kaupa eða frá honum, og skal hreppstjóri í
forföllum lögreglustjóra þá þegar taka áfeng-
isílátin til varðveizlu og gæta þess, að ekki
sé í þau farið. Hann skýrir þegar í stað
lögreglustjóra frá, en lögreglustjóri setur em-
bættisinnsigli sitt fyrir ílátin og kemur þeim
til geymslu á óhultum stað. Afengi þetta
má lögreglustjóri ekki selja eða á annan
hátt láta af hendi til annarra manna, en skýra
skal hann með fyrstu ferð réttum eiganda
frá björgun áfengisins. Kjósi hann innan
12 mánaða að það sé sent á sinn kostnað,
skal það gert; ella sé það eign landssjóðs.
Sé um skipsforða að ræða, fer um með-
ferð áfengisir.s og tilkynning til skipseiganda
svo sem fyrir er mælt í grein þessari hér að
framan, nema það hafi verið gert óhæft til
drykkjar undir umsjón lögreglustjóra, eða
eigandi hafi látið flytja það úr landi innan
12 mánaða.
Nú er ókunnugt um eiganda strandgóss
og skal þá áfengið eign landssjóðs, ef eig-
andi hefir ekki sagt til sín áður en hinn lög-
skipaði auglýsingafrestur er útrunninn.
7. gr.
Engan áfengan drykk má flytja um land-
ið annan en þann, sem annaðhvort er merkt-
ur embættisinnsigli umsjónarmanns áfengis-
kaupa, svo sem fyrir er mælt í 4. grein laga
þessara, eða þá þann drykk, sem um getur
í 6. og 11. grein og farið er með eftir fyr-
irinælum þeirra greina, nema læknislyf sé úr
lyíjabúð eða frá lækni.
8. gr.
Ölium, sem samkvæmt lögum þessum hafa
heimild til innflutnings á áfengi, er óheimilt
að veita það, gefa, selja eða láta af hendi
til annara manna, nema það sé áður gert
óhæft til drykkjar.