Frækorn - 07.05.1909, Síða 6
6
1915, er ekki skylt að flytja burtu úr laud-
inu, en eigendur þeirra skulu skyldir að gefa
lögreglustjóra vottorð að viðlögðum dreng-
skap, um hverjar og hve tniklar birgðir þeir
hafi. Slík vottorð skal síðan gefa, um hver
áramót, um hverjar og hve miklar birgðir
séu óeyddar, unz birgðirnar eru þrotnar.
Áfengi það er hér ræðir um, má aldrei
flytja burt af heimili eiganda, nema hann
flytji sjálfur búferlum, eða það sé áður gert
óhæft til drykkjar.
12. gr.
Nú er maður grunaður um óleyfilegan að-
flutning eða óleyfilega sölu eða veitingu áfeng-
is, og má þá gera heimilisrannsókn hjá hon-
um eftir dómsúrskurði, ef það ertaliðnauð-
synlegt til þess að komast fyrir málið.
Konii það í Ijós við heimilisrannsóknina,
að áfengi sé í vörslum þess manns, er rann-
sókn fer fram hjá, skal hann skyldur til að
skýra frá því, hvernig standi á birgðunum.
Oeri hann það ekki, skal bann teljast sekur
um brot gegn 1. gr.
13. gr.
Nú sést maður ölvaður, og skal þá heimilt
að leiða hann fyrir dómara. Skal hann skyld-
ur til að skýra frá, á hvern hátt hann hafi
ölvaður orðið, og þá hvernig og hjá hverj-
um hann hafi fengið áfengið.
14. gr.
Brot gegn 1. gr. laga þessara varða í
fyrsta sinn sektuni frá 200 — 1000 kr.
Brot í annað sinn varðar sektum frá 500 —
2000 kr.
Brjóti nokkur oftar gegn ákvæðum þess-
arar greinar, varðar það sektum frá 1000 —
5000 kr.
Fjárnám fyrir sekt á hendur skipstjóra má
gera á skipi hans.
Jafnan skal hið ólöglega aðflutta áfengi
verða eign landssjóðs.