Frækorn - 30.06.1909, Blaðsíða 4
104 FRÆKORN
Auðsuppsprottur loftsins.
gildir einu, hvað það er, séhug-
urinn aðeins í kyrð — þá mun
einhver miðill hertaka þau und-
ir þetta vald.
Eg skrifa ekki hér um það,
sem aðrir hafa sagt mér, heldur
um það, sem eg hef reynt sjálf;
eg hef sjálf verið með til að
gjöra slíkt. Eg hef hjálpað fólki
til að halda hugsunum sínum í
kyrð, meðan hinn vondi flækti
þá í neti sínu. Eg vildi gjarnan
það, sem eg hef gjört, væri ógjört,
en það er skeð. Nú get eg
einungis reynt að frelsa aðra frá
þessum voðalegu forlögum. Rað
eru svo margir, sem óska eftir
að sjá inn í ókomna tímann, og
verða þess vegna hrifnari. Rað
er nútíminn einungis, sem vér
höfum með að gjöra; ef vér not-
um hann rétt, mun guð hugsa
fyrir ókomna tímanum.
Einu sinni var eg fleiri daga
undir áhrifum andanna. Eg bað
um frelsi, en mig vantaði næga
trú. Einn daginn datt mér í hug:
Eg er eins og saltið, sem hefir
mist kraft sinn, eg er til einkis
nýt, eg er ekki hæf fyrir himin-
inn. Og hinn vondi sagði:
»heldur ekki fyrir vonda staðinn,
ef þú ert altaf að biðja«.
Eg þakkaði guði fyrir þessa
upplýsingu. Vonin lifnaði íhjarta
mínu, trúin jókst, og eg var frels
uð. Nú hafði hinn vondi aftur
verið sinn eiginn meinsmaður.
Satan er sigraður óvinur; mér
virðist, að Kristur láti hann stund-
um sjálfan eyðileggja áform sín.
Eg hef haft langa og bitra reynslu
undir ákrifum þessa valds. Rað
er fyrst í seinni tíð, að eg fyrir
kraft Krists hef sigrað þetta illa
vald. Eg vegsama guð og held
mér til Kiists. E. S.
Afarmerk uppfundning er það,
sem norskur maður að nafni
Birkeland hefir gert fyrir nokkru.
Hún er fólgin í því að nota
rafmagn til þess að framleiðaog
safna köfnunarefni úr loftinu.
Slík framleiðsla kemur aðallega
að gagni í þeim löndum, þar sem
fossareru margirog miklir. Pann-
ig geti svo farið, að uppfundn-
ing þessi eigi fyrir sér að kom-
ast til mikilla nota á íslandi,
enda hefir þegar eitthvað verið
hugsað um slíkt með hliðsjón af
fossunum i Soginu og á fleiri
stöðum hér á landi.
Ef slíkt yrði gjört, þyrfti sjálf-
sagt til þess afarmikið fé.
I Noregi hefir mjög stórverk-
smiðja verið sett á stofn við
fossinn Rjúkan til þess að fram-
leiða þetta efni á framangreindan
hátt.
Um 50 millíónir króna(eða70
míll. franka) er stofnféð þar,
mestalt frakkneskt.
»Frækorn« flytja hér 2 mynd-
ir frá verksmiðjunni við Rjúkan.
Efst sést inn í verksmiðjuna,
neðst sést, hvernig hún liggur
við fossinn. Neðst til vinstri sést
rafmagnsloginn, sem skilurköfn-
unarefnið frá loftinu. Loks ofar-
lega til hægri Birkeland sjálfur
og neðar samverkamaður hans
Eyde, aðalíramkvæmdarstjóri.