Frækorn - 30.06.1909, Blaðsíða 5
FRÆKORN
105
Á sjávarbotní.
Menn tala oft um auðæfi þau,
sem iiggja á sjávarbotni, og eru
meir og meir farnir að hugsa
umaðbjarga þeim. Rannigliafa
nýlega verið fiskaðir upp margir
verðmætir hlutir, frá sænsku og
dönsku herskipunum, er voru
skotin í kaf fyrir utan Kalmar.
Með leyfi sænsku stjórnarinnar,
hefir verkfræðingur einn náð heil-
um skipsfarmi af kínversku postu-
líni, upp frá skerjagarði Oauta-
borgar, er þar hefir legið í heila
öld. Á vesturströnd Jótlands eru
fiskimenn, sem kaupa skipsflök
fyrir 150—200 kr. stykkið ogná
svo upp mörg þiisund króna
virði. Hér sýnum vér mynd af
skipi, sem er útbúið einungis til
slíkra starfa, og sérstaklega áað
nota við skipsflak, seni liggur
fyrir mynni Zuidervatnsins og
haldið er að geymi 18 milj. kr.
virði af gulli. Eins og sjá má,
liggur löng pípa frá skipinu nið-
ur á hafsbotn, og við hlið henn-
ar liggur önnur minni, sem er
notuð fyrir sanddælu. Ætlast er
til, að mennirnir séu inni í píp-
unni, svo þeir þurfi ekki að brúka
kafaraföt; þaðan eiga þeir að
stjórna neti, er tekur upp hluti
þá, sem sanddælan hefir gjört
sjáanlega.
Skrifstofa Júlíu.
»ísafold« fagnar yfir því, að
Stead, énski blaðamaðurinn, sem
reit Bréf Júlíu, er nú farinn að
stjórna skrifstofu fyrir almenn-
ing, sem andi Júlíu heimtaði að
liann gerði. Stead segir sjálfur,
íð miðlaþjónusta sú, sem yrði
óhjákvæmileg við slíka skrifstofu,
yrði mjög hættuleg fyrir líf og
heilsu miðilsins eða miðlanna,
og því hafi dregist að setja skrif-
»tofuna upp; en það er eftir
þessu orðið honum sama, hvort
liann og aðrir drepi sig á því
eða ekki. Sjálfsmorð er líka
samkvæmt kenningu sumraanda-
trúarmanna lofsvert verk. Og
nógu margir eru orðnir vitskertir
á andatrúnni. — Ekki hefir verið
alveg laust við þau »fyrirbrigði«
hér á landi heldur.
Rað er vindur í segl andatrú-
armanna, að jafn kunnur maður
og hr. Stead skyldi vera orðinn
svona auðsveipur þjónn andanna.
En ekki þarf nokkur, sem trúir
ritningunni, að kippa sér upp
við slíkt. Guðs heilagi andi segir
fortakslaust, að á síðustu t mum
muni sunúr ganga af trúnni, testa
trú til villuanda og djöflalærdóma.
1. Tim. 4, 1.
„Nýja biblían".
Framhald ritgjörðar þessarar
kemur í næsta blaði.