Frækorn - 30.06.1909, Side 6

Frækorn - 30.06.1909, Side 6
106 Móðurástin. Kafli úr sögunni „Olataði sonurinn" eftir Hall Caine. Frl). Nú var Þóra orðinn sannfærð um, að liún ætti ekki að fá barn- ið, og að það væri Helgu að kenna. Við þessa hugsun varð hún æstari en nokkurntíma áður. Hún hataði Helgu systur sína eins og nokkur getur hatað. Hún, sem áður hafði rænt hana ást mannsins síns, hafði nú líka rænt hana barninu. Notað sér veik- indi hennai til að kasta ryki í augu frændfólksins. Hún varð að berjast. Hún varð að vinna sigur á Helgu. Vinna sigur á öllum og ná barninu, hvað sem það kostaði, og þá skyldi hún halda því svo fast, að ekkert jarðneskt vald gæti svift hana því aftur. Hefðu kunnugir séð inn í sál hennar á þessu augnabliki, hefði þeir ekki þekt hana. Hugur hennar var sem tigrisynjunnar, sem rænd hetir verið afkvæmi sínu og ræðst í för að leita þess. Hún hafði æfinlega elskað Óskar, þótt vænt um Önnu og Margrétu, föður sinn og landshöfðingjann, kent í brjósti um Magnús og borið viðkvæman vinarhug til allra lifandi skepna. Nú hafði hún aðeins eina ástríðu, sem var svo heit, að hún brendi uppall- ar aðrartilfinningar. Ástríðu, sem gerði hana hættulega, gerði hana grimma og kæna. Og þessi á- stríða var þrá eftir barninu. Hún fastréð að stela því. Næsta dag - þjóðhátíðardaginn — mundi hún fá tækifæri til þess. F*á mundu flestir fara til Fhngvalla ogverða lítil umt'erð um göturnar. Anna mundi verða heima til að hjálpa FRÆKORN sér og Margrét til að sjá um I barnið. Hið eina, sem hún ótt- j aðist, var, að Óskar færi ekki, því að þá færi Helga ekki liéld- ur og þá yrði alt ónýtt. F*óru kom ekki dúr á auga alla nóttina. Fyrir dagrenningu heyrði hún fólkið hlaupa og kalla út á göt- unum. F>egar fyrst fór að skína, heyrði hún, að landshöfðinginn fór, og þegar Óskar kvaddi hana gegn um opinn gluggann, vissi hún, að Helga var með honum, því að hún heyrði, að hrossin voru tvö. Þegar allir voru farnir, var sem steini væri létt af hjarta hennar. »Hvenær koma þau aftur?« spurði hún. »Eg er hrædd um,aðþaugeti ekki komið aftur fyrenummiðja nótt«, svaraði Anna. En hugs- aðu ekki um það, barn mitt. Eg skal gera alt fyrir þig, sem hægt er.« Nú fór F’óra að brugga ráð til að blekkja Önnu og ginna hana burt úr herberginu. — Loks sagði hún: »F’arftu ekkert að brégða þér út í bæinn í dag, kæra? F’ú ert ein heima, og hefir engan til að senda«. »Út í bæinn, til hvers svo sem? í dag er öllum búðum lokað.« Litlu seinna sagði F'óra: Mamma! Ef þú þarft ofan í eld- hús til að sjóða eitthvað, þá þarftu ekki að hugsa um mig«. »María sauð alt í gær.semvið þurfum, svo þú sér, að eg þarf ekki að yfirgefa þig eitt augna- blik, góða mín.« Róra var komin í vandræði og farið að verða órótt, en þá korn henni ráð í hug. »Nú veit eg nokkuð«, hugsaði hún. ^F’egar Anna er búin aðborða miðdags- matinn, þá skal eg koma henni til að leggja sig útaf. Þá fer eg á fætur, klæði mig og fer.« Þá fór hún að hugsaumt'ötin sín. F*au höfðu veriðtekin nótt- ina sem barnið fæddist og læst niðureinhversstaðar. Hún mundi þuifa að opna dragkistur og leita og með því gerði hún alt of mikinn hávaða, svo hún sagði: sKæramamma! Heldurðu ekki komist raki að fötunum mínum? Þau hafa nú legið svo lengi ónotuð.« »Hvað ertu að segja. Raki á fimm dögum núna um há sum- arið«. »F*að væri samt gaman að sjá þau viðruð«, þá færi eg að luigsa um þá sæludaga, þegar eg fer að klæða mig.« »Já elskan mín, eg skal gera það«, sagði Anna. Síðan tók hún föt F'óru út úr klæðaskápn- um, og sýndi henni þau, hvert á fætur öðru, fór svo meðþauinn í hliðarherbergið og hengdi þau á stól við ofninn. FJað var auð- séð, að hún skoðaði F*óru sem eftirlætisbarn. Seinast fór hún að impra á því, að gaman yrði, þegar F’óra færi í fötin oggengi niður stigann dúðuð í sjöl og herðaklúta og Óskar hjálpaði henni. F’óra tók nákvæmlega eftir föt- unum, og sagði svo: »Eg hefi ekki ennþá séð kápuna niína, mamma«. »Kápuna! Ferðakáp- una! Alt getur barninu dottið í hug. Við mundum dansa af gleði, ef þú þyrftir hennar að þrem vikum liðnum*. Frh.

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.