Gjallandi - 01.04.1907, Qupperneq 4

Gjallandi - 01.04.1907, Qupperneq 4
4 GJALLANDI var hin ágætasta „golfranska11, dansk-íslenzk hrogna-grauts- blanda. í annað sinn ei eg kom á herinn, var „dróttstjórinn" fjarverandi, og stýrði frú hans samkomunni. Komst eg þá að raun um, að „dróttstjórinn“ var bæði kennari og siðameistari konu sinnar, því það var nákvæmlega sama dansk-íslenzka hrognamálið, sem hún talaði, er eg hafði heyrt mann hennar tala nokkru áður. Eigi er herinn, að voru áliti, skipaður neinum sérstökum vitmönnum, þó titlar og foringjanöfn séu á hverjum hermanni Allvel mælskar eru þó sumar kerlingar hans. Þarna halda- þær stundum, í langan tíma, í einu strykloti, svokallaðar ræður, um eitthvað sem engiu skilur, og ekki þær sjálfar, það, sem menn helzt veita eftirtekt, er bugtið og beigingarn- ar, með öllum þeim pilsaþyt og handaslætti, er slíkum ræð" um er samfara. (Framh.) Skollinn úr sauðarleggnum, Bankastarfsmennirnir sumir hér, kváðu hafa svo mik- ið starf með höndum, að eigi fari þeir úr bankanum, fyr en um miðjar nætur. En hvað þeir hafast þar að mun flestum dul- ið, en svo mikið er víst, að eigi munu það venjuleg bankastörf, enda sjást engin ljós í gluggum bankans, og litur því út fyr- ir, að eigi sé það sú iðja er ljós þurfi við. En til að geta sér einhvers til um starf þeirra, skal þess getið, að orðið hefir vart við, að töluvert hafa þeir haft með sér þang- að af ölföngum, og tómar flöskur hafa fundizt í rennunum beint fyrir framan dyr bankans. Kvenfólk hefir og sést koma út úr bankanum með þeim á síðkveldum, er þeir munu hafa haft sér til skemtunar í myrkrasetunni, og hafa það ver- ið hinar svokölluðu „fínu dömur“(!!) þessa bæjar, en sumir segja /: að vændiskonu-nafnið ætti betur við þær. — Sérstaklega kvað það vera einn Landsbankastarfsmaður, embættismannssonur> meiriháttar þó, sem vanið hefir komur sínar í bankann á síð" kveldum, eftir að hann hefir verið rekinn út úr hinni knæp- unni — beint á móti bankanum — sem stundum hefir eigi

x

Gjallandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gjallandi
https://timarit.is/publication/185

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.