Gjallandi - 01.04.1907, Blaðsíða 6
GJALLANDI
6
en það sem er einskisvirði. — Mundi ekki heppilegt að fá
slíka anda, til þess að taka að sér allar hreinsanir bapjarins?
— Skyldi þeim þá ekki vera óhætt úr því?
„Manniu.
Svívirðing. Guðm. Friðjónsson á Sandi hefir í „ísaf.“
í vetur kastað svívirði'egri og óverðskuldaðri hnútu í garð
íslenzku kvenþjóðarinnar, og hafa margar umræður út af
því spunnizt. Hér hefir kvenfólkið æru og mannorð að verja
gagnvart merkum manni ? Guðm. hefir ekki einungis sví-
virt kvenþjóðina, heldur öllu meira sjálfan sig, með ritsmíð
sinni. Blöð þau, er um þetta mál hafa ritað, hafa talað um
að Guðm. mætti bera ábyrgð á orðum þessum, en hann er
ékki ábyrgðarmaður fyrir þeim Guðm. þýðir ekki að klóra
í bakkann með grein sína, eða að reyna að fegrahana á nokk-
urn hátt hún verður aðeins skoðuð og skilin á einn veg eft-
ir orðunum. Vér vonum að Guðm. yðrist glópsku sinnar og
biðji kvenþjóðina opinberlega fyrirgefningar, það er hið eina
sem hann getur í þessu tilfelli.
Milli steins og sleggju.
„Dagblaðið“
sáluga varð engum að eftirsjá. Þá reyndist „Þjóðhvellur“
getspakur, erhann spáði hversu lengi það litá mundi, og má
þar til sanns færa, „að oft ratast kjöftugum satt á munn“.
„Bjarmi“
nefnist eitt nýtt blað hér í bænum, lítið er tilreynt en
hversu sá „bjarmi“ verður mikill, en eigi höfum vér en þá
fengið „ofbirtu“ í augun af honum.
„Þjóðlxvclli14
er nú um hábjargræðistímanu létt af sveitinni, eftir að
hafa verið „niðursetningur“ í 3 mánuði, en ekki tmfir hon-
um aukist mikið vit við þessa niðursetu, sem við mátti búast,
þar sem hann frá byrjun hafði ekki nema tvær þorsk-’ varnir
í haus að geyma.