Alþýðublaðið - 09.11.1960, Qupperneq 13
r
1 DAG er B r a g i S i g -
'U r j ónsson, ritstjóri fimm-
tugur. Hann er fæddur á Ein-
arsstöðum í Reykjadal 9. nóv.
1910. Foreldrar hans voru Sig-
urjón Friðjónsson, skáld og
'bóndi og Kristín Jónsdóttir.
Svo má kalla að Bragi væri
fæddur til skáldskapar og rit-
starfa. Faðir hans var sem
kunnugt er skáld gott, þótt
meira orð hafi flogið af Guð-
mundi bróður hans á Sandi,
en allir voru þeir bræður
s'káldmæltir vel og ritfærir í
bezta lagi. Móðurbróðir Braga
var Björn Jónsson, sem Um
mjög langan aldur var rit-
stjóri á Akureyri.
Bragi ólst upp í stórum,
systkinahóp á Laugum. nam
við Laugaskóla, og fór síðan
í Kennaraskólann og iauk
prófi þaðan 1931. Síðar brá
(hann á það ráð, að taka gagn-
fræðapróf utanskóla við
Menntaskólann á Akureyri, en
stúdentsprófi þaðan lauk hann
1935 þá nær 25 ára að aldri. í
háskólanum sat Ihann einn
vetur, stundaði þar nám í ís-
lenzku og lauk heimspekiprófi.
Hefur hann verið búsettur á
Akureyri síðan. Stundaði
hann kennslu fyrstu árin, að-
allega í Gagnfræðaskólanum,
en fékkst þó við ýmis önnur
störf samtímis, en 1946 gerðist
hann fulltrúi hjá bæjarfógeta
fimmtugur
Bragi Sigurjósson.
ag hefur farið með umboð al-
mannatrygginganna í Eyja-
fjarðarsýslu og hin síðari ár
emnig á Akureyri.
Snemma mun Bragi hafa
íengið áhuga á landsmálum_
svo sem þeir frændur hans —
Leið og eigi á löngu eftir að
hann settist að á Akureyri að
hann tæki að sinna þeim mál-
um. Gekk hann þá brátt í Al-
þýðuflokkinn, og gerðist einn
af forystumönnum hans. Átti
hann þá þegar drjúgan þátt í,
að flokkurinn tók framfara-
kipp sem um munaði 1946. En
arið 1944 var Bragi kosinn. for-
maður flokksfélagsins, hefur
hann setið í stjórn þess lengst-
Níræöor verður í dag
Guðmtnidur Sæmuudssosi
GUÐMUNDUR SÆMUNDS-
SON til heimilis að Rauðalæk
4 verður níræður í dag Hann
er fæddur að Grjóti í Þverár-
hlíð í Borgarfirði. Faðir hans
dó þegar hann var 6 ára að
Guðmundur Sæmundsson.
aldri, og varð móðir hans þá
að bregða búi og barnahópur-
inn tvístraðist. 14 ára flutti
hann til Árna pósts í Lækjar-
hvammi í Reykjavík. Fór
hann þá strax til sjós og var
á skútum í samfleytt 20 ár,
lengst af hjá Milljónafélag-
inu. Síðast var hann á kútt-
ernum Skarphéðni, sem
seinna var seldur til Færeyja.
Jafnframt var hann oft í póst
ferðum á sumrin. aðallega til
Hjarðarholts í Laxárdal. í 35
ár vamr hann við höfnina í
Reykjavík, m. a. að byggingu
hafnargarðsins og Ægisgarðs.
Guðmundur kvæntist Guð-
rúnu Jónsdóttur frá Litlu-
tungu í Miðfirði og eignuðust
þau 8 börn og eru 7 þeirra á
lífi. Konu sína missti hann
xyrir 5 árum. Hann er einn
af stofnendum Dagsbrúnar og
heiðursfélagi og hefur einnig
verið í Alþýðuflokknum frá
upphafi. Alþýðublaðið óskar
honum til haniíngju á þessu
merkisafmæli.
, ritstjóri
um síðan, og mikið af þeim
tíma verið formaður þess. í
flokksstjórn Alþýðuflokksins
hefur hann setið síðan 1950.
Það var ekki nema eðlilegt,
að mjög yrði til hans litið um
opinber störf af hálfu flokks-
ins. Hefur hann setið í bæjar-
stjórn ýmist sem varamaður
eða aðalmaður síðan 1946, og
starfað þar í flestum hinna
mikilvægari nefnda. í kjöri
við alþingiskosningar hefur
hann oft verið í Þingeyjar- og
Eyj afj arðarsýslum, og 1956 í
Austur-Húnavatnssýslu. Sat
hann þá á þingi um hríð sem
varaþingmaður. Ótalið er það
starfið, sem umfangsmest og
tímafrekast hefur verið, en
það er ritstjórn Alþýðumanns-
ins, en ritstjóri hans hefur
Bragi verið síðan 1947. Þá gaf
hann út tímaritið Stíganda á-
samt öðrum 1943—1949, og
skrifaði mikið í það rit, og
vöktu margar greinar hans
'þar almenna athygli. En auk
þess sem nú er talið, og kalla
mætti fullkomið dagsverk og
meira tiþ hefur hann gefið út
fjórar ljóðabækur, -eitt smá-
sagnasafn og séð um útgáfu
hins geysimikla ritverks
Göngur og réttir, sem eru
fimm stór bindi. Þá hefur
hann einnig fengizt nokkuð
við þýðingar.
Þegar þess er gætt, að rit-
störf öll, þar á meðal ritstjórn-
ina, hefur hann unnið í tóm-
stundum að loknu dagsverki,
hljóta menn að undrast,
hverju Bragi hefur fengið af-
kastað. Enda er það á vitorði
allra, er til þekkja, að hann er
starfsmaður með ágætum. Þó
er enn ekki getið þess starfs,
sem hann hefur lagt af mörk-
um í þágu flokksins við alls-
konar félagsmál, kosninga-
undirbúning og þess háttar.
En engum er gert rangt til,
með því að fullyrða að þar
hefur hann uhnið meira öll-
um flokksmönnum á Akureyri
nú um margra ára skeið, og
verður það aldrei ofmetið.
Blaðamennskan ein er mik-
ið starf, því að svo má kalla,
að Bragi skrifi blaðið einn
tímunum saman. Hann er hug-
kvæmur blaðamaður, rökfast-
ur og gagnorður, en um leið
harður baráttumaður, og fer
honum stundum, eins og skap-
miklum mönnum er títt, að
hann knýr fram harðari and-
stöðu en ef til vill hefði verið
nauðsynlegt. í deilum er hann
í senn beinskeyttur og harð-
skeyttur og svíður undan örv-
um hans. í ræðum koma fram
flestir hinir sömu kostir og í
blaðamennsku. Honum lætur
vel að draga fram meginatriði
hvers máls og gefa um það
glöggt yfirlit. En þótt Bragi
Kemvood-hrærivélin er allt annað
og miklu meira en venjuleg hrærivél
hrærivéí
fyrir yður . . .
býður hin nýja KENWOOD CHEF hrærivél nú alla
þá hjálparhluti, sem hugsanlegir eru, til hagræðis fyr-
ir yður, og það er ekkert erfiði að koma þeim í sam-
band, engar skrúfur, aðeins smellt úr og í mieð einu
handtaki. Hrærararnir eru þannig að það má segja
að þeir þoli allt — jafnvel þykkasta deig. — Þeir
hræra, blanda, þeyta og hnoða, en þér horfið aðeins
undrandi á hve skemmtilega þeir vinna.
sgggk., _ ...
Engin önnur hrærivél getur
létt af yður jafnmörgu leið-
inda erfiði, — en þó er hún
falleg og stílhrein.
Ef yður vantar hærivél, þá..
Lífið á Kenwood — Lausnin er Kenwood
Verð kr.
4,340.—
sé harðui' bardagamaður, er
hann einnig laginn samninga-
maður, ef þess gerist þörf.
Ungur hóf Bragi að yrkja,
enda er skáldablóðið ríkt í
ættum hans, og grunur minn
er sá, að hugur hans
hafi staðið meira til starfa á
sviði bókmennta, en fást við
hið pólitíska argaþras og rit-
stjórn, þótt forlögin hafi hag-
að því svo, að til þeirra hluta
hefur hann varið miklu af
tíma sínum. Eins og fyrr seg-
ir, hefur hann gefið út fjórar
ljóðabækur, og með þeim rutt
sér rúm í fremstu röð hinna
yngri skálda. Heldur hann
fast við forna skáldskaparhefð
um form og rím, og kann vel
með að fara. Ljóð hans hafa
ætíð nokkurn boðskap að
flytja. Hann yrkir af þörf
hjartans, en ebki til þess eins
að láta frá sér fara innan-
tóman orðaleik. Oft er hvöss
ádeila í ljóðum hans, stundum
mörkuð af baráttu dagsins,
hann rifjar einnig upp forn
minni og sögur, og hann fagn-
ar einlæglega fegurð lífsins
og náttúrunnar. Að mínum
dómi nær hann sér bezt í
skáldskap sínum þegar hann
yrkir lýrisk Ijóð, og þó bet-
ur í Ihinum seinni ljóðum, en
hann er sívaxandi skáld. Ekki
eru sögur hans jafnsnjallar
ljóðunum, þótt þar sé margt
vel sagt.
Bragi er kvænur ágætri
Framhald á 14. síðu.
Alþýðublaðið — 9. nóv. 1960