Alþýðublaðið - 12.05.1963, Síða 15

Alþýðublaðið - 12.05.1963, Síða 15
peningana mína herti mig upp. Ég fór inn í símasjálfsalakleí'a í anddyrinu, fletti upp á Ander- son Hotel í símaskránni og hringdi þangað. Eftir stundarkorn svaraði . stúlkurödd: „Já? Hver er það?“ Ég dró djúpt að mér andann. Ég varð að taka á til að leggja ekki símtólið á aftur. , Þið hafið þarna lítinn náunga með gleraugu?” sagði ég og reyndi að láta röddina liljóma harðýðgislega. „Og hvað um það?“ Rödd henn ar varð harðari. „Hver er þetta?“ „Vinur hans. Náðu i liann í símann, kerlingin, og flýttu þér.“ „Ef þú ert vinur hans, hvað lieitir hann þá?“ , „Hættu að tala svona mikið. . Náðu í hann í símann.“ 1 „Ó, bíddu þá,“ sagði hún og röddin var skyndilega orðin leið. Það varð löng bið. Ég stóð í loftlausum klefa og hélt símtól- inu fast að eyranu á meðan ég beið. Fimm mínútur liðu löturhægt, þá heyrði ég hljóð. Ég heyrði . stúlkuna segja reiðilega: „Hvern ig á ég að vita hver það er? Ég er alltaf að segja þér það. — Komstu að því sjálfur!" Hún rak snögglega upp sársaukakvein. Ég heyrði símtólið tekið upp. „Já? Hver er það?“ Ég sá hann fyrir mér standa þarna, ljósið speglast í gleraug- unum og grimmdarlegt andlitið , eftirvæntingarfullt. „Wilbur?" sagði ég. „Það er hann. Hver er þetta?“ Ég talaði hægt og greinilega: „Ég sá Rimu M-irshall í gær- kvöldi.“ Ég heyrði hann sjúga snöggt inn andann. „Hver ertu?“ „Skiptu þér ekki af því. Hefð- irðu áhuga á að vita hvar hún er? Ég fann kaldan svita i andliti mínu, er ég talaði. „Já. Hvar er hún?“ „Ég sendi þér heimilisfangið eftir tvo daga — á föstudagsmorg un og dálítið af peningum til að komast þangað“ sngði ég. ,Bíddu til föstudags". „Hver í and^kotanum , ertu?“ sþurði hann. „Ertu vinur henn- aí?" .„Er svo að heyra, sem ég sé 'vínur hennar?" sagði ég og lagði á.. II. Snemma næsta morgun hringdi ég úr herbergi mínu til lieilsu- hælis Dr. Zimmermans. Hjúkr- unarkonan sagði, að Dr. Zimm- erman vildi tala við mig. Þegar læknirinn kom í sím- ann virtist hann hinn gláðvær- asti. „Ég hef góðar fréttir að færa, herra Halliday. Konunni yðar fer nú mjög ör.uggt fram. Hún er röknuð úr dáinu og ég býst við, að þér getið fengið að sjá hana eftir svo sem tvo daga. Við verðum að fara að hugsa um þennan seinni uppskurð. Hve- nær komið þér aftur?" „Einhvern tíma á föstudag", sagði ég. „Ég hringdi til yðar um leið og ég kem í bæinn. Haldið þér virkilega, að hún sé komin yfir það versta?" „Ég er viss um það. Ef þér komið á heilsuhælið á laugar- dagsmorgun, er hugsanlegt, að þér getið fengið að sjá hana“. Ég sagðist mundi koma og eft ir nokkur fleiri orð slitum við tal inu. Fréttimar um, að Saritu íiði svona miklu betur bættu mjög skap mitt og ég var ekki eins dapur. Ávörðun mín að losna við Riinu tók að veikjast að nýju. Á laugardag yrði ég ef til vill hjá Saritu. Er ég stæði við- rúm hennar mundi ég vita, að ég hefði af ásettu rúði eytt lífi. Ég velti því fyrir mér hvernig mér mundi líða, er augu okkar mætt ust. Mundi hún sjá sektina í mínum? Ég stóð upp og tók að stika fram og aftur um gólfið. Hvaðá rétt hafði ég til að svipta Rimu lífi, spurði ég sjálfan mig. Eg hugðist aðeins útrýma henni til að forða sjálfum mér frá að lenda annað hvort í gasklefanum eða fangelsi. Mundi ég þola að lifa með þá vitneskju, að ég hefði verið bein orsök dauða hennar? Þetta var samvizku- spursmál og það kvaldi mig. Ég leitaði að annarri lausn. Ef ég nú neitaði Rimu um meiri peninga — hvað þá? Ég trúði því, að liún mundi fara til lög- reglunnar og ég yrði handtek- inn. Hvað mundi verða um Sar- itu án mín? Vissulega mundi hún eiga peningana mína, en hvem- ig kæmist hún af ein og fötluð? Ég reyndi að vera heiðarlegur gagnvart sjálfum mér. Var ég að áforma að útrýma Rimu til þess að forða sjálfum mér frá fang- elsi eða vegna lijálparleysis Saritu og þarfar liennar fyrir mig? Ég gat ekki komizt að niður- stöðu um þetta, en ég vissi, að Sarita þarfnaðist mín og að líf Rimu var einskis virði. Ég skildi, að áætlun mín um að koma henni fyrir kattarnef var var eins götótt og sía. Jafn vel þó að ég sendi Wilbur heim ilisfangið, var engin trygging fyr ir þvi, að hann mundi drepa hana. Það gat verið, að hatur hans á henni hefði þegar runnið út í sandinn og hann nennti ekki að takast ferðina á hendur. Það gat líka verið, að Vasari færi ekki frá Rimu, þegar ég hefði varað hann við því, að lög reglan væri á liælunum á hon- um. Ef hann færi, gat verið, að Rima færi með honum, og Wil- bur kæmi að húsinu tómu. Ef — ef — ef . . . Það var á þeirri stundu, sem ég ákvað að láta morðáætlunina vera út í hött. Þetta mundi vera eins og að kasta upp peningi: kór ónan — Rima deyr, talan — ég í fangelsi. Með þessu móti þurfti ég ekki að taka á mig alla sökina ef áætlunin heppnaðist, og Rima skyldi deyja. Til þess að losna frá hugsun- um mínum fór ég niður í morgun verðarherbergið. Ég lét færa mér kaffi og ristað brauð. Á meðan ég beið leit ég í kringum mig. Það voru aðeins átta eða níu menn að borða morgunverð: all- ir augsýnilega kaupsýslumenn, sem einbeittu sér að mat sínum og blöðum. Ég varð var við, að einn þeirra, ' úti í horni lengst frá mér, hafði t litið upp og horfði nú fast á mig. * Þetta var náungi á aldur við mig r og kringlótt og feitt andlitið á 1 honum kom mér einhvern veginn ;p kunnuglega fyrir sjónir. Hann stóð snögglega á fætur og kom ' til mín, brosandi. Það var ekki fyrr en hann var kominn að borð inu mínu, að ég þekkti liann. Það var náungi, sem ég hafði unnið með í háskólanum og búið með í . herbergi. Hann hét Bill Stovall Ný sending a£ Hollenskum nælonhönzkum - höfuðklútum og regnhlífum BERNHARÐLAXDAL Kjörgarði. Nælon - regnkápurnar eru komnar í öllum stærðum. Lækkað verð. BERNHARÐ LAXDAL Kjörgarði. ÞJÓÐDANSAFÉLAGS REYKJAVíKUR verður í Háskólabíói sunnudaginn 19. maí.ikl. 2 e. h. — Þar koma fram nemendur úr öl'lum aldursflokkum, sýuingarílökkur unglinga, svo og sýn- ingarflokkur, sem fara mun á Þjóðdarisamót Norðurlanda í Ntiregi í súmar. Aðeins þessi eina sýning. — Forsala aðgöngumiða eftir kl. 1 á mánu- dag á Klapparstíg 9. — Sími 12507. ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 12 maí 1963

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.