Alþýðublaðið - 14.05.1963, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. maí 1963 3
UNNU 866
SÆTI
London, 13. maí
(NTB—Reuter)
BREZKi Verkamannaflokk-
urinn skýrði svo frá í dag, að
við bæjar- og sveitastjórnar-
kosningar í síðustu viku
hefði hann unnið 866 sæti,
flest á kostnað íhaldsmanna.
Enn fremur var því hald-
ið fram, að flokkurinn hefði
fengið meirihluta í 59 bæj-
ar- og sveitarstjómum og
alls 1.772 frambjóðendur
Verkamannaflokksins hefðu
hlotið kosningu.
Verkamannaflokkurinn held-
ur því fram, að með þessu
hafi hann gert meira en að
vinna aftur þau 600 sæti,
sem hann tapaði við sams-
konar kosningar 1960.
í Bretlandi er engin opin-
ber stofnun, sem safnar sam-
an hinum ýmsu kosningaú-
slitum.
★ STOKKHÓLMI: Verkfallinu í
sænsku Áfengiyveirzluninni, seml
staðið hefur í næstum 11 vikur,
lauk í dag með því, að verk-stjór-
ar ákváðu að taka líka upp vinnu.
Stjórnarkreppa
í Sýrlandi enn
LONDON og BAGDAD, 13. maí.
(NTB-Reuter). — í dag varð aftur
stjórnarkreppa í Sýrlandi, önnur
stjórnarkreppan á þrem dögum.
Dr. Sami A1 Jundi, forsætisráð-
herra, sem forsetinn fól myndun
nýrrar stjórnar um helgina, skýrði
, frá því í dag, að hann hefði iátið
af störfum forsætisráðherra.
j Jafnframf skýrði forsetinn, At-
assi, hershöfðingi, frá því, að hann
hefði falið Salah Eddin Bitar
myndun nýrrar stjórnar. Það var
Bitar, sem á laugardag lét af störf
um forsætisráðherra vegua þving
ana nokkurra ráðherra, svokaliaðra
Einingarsinna, sem eru lilynntari
fyftræt’lun Nasserk u.m stofnun
Arabísks sambandslýðveldis.
I Bitar, sem er úr sósíaiísk i end
| urreisngrflokknum (Baath) er og
| hlynntur stofnun sambandsrikisins,
en flokksmenn hans munu aadvig
1 ir því, að aðeins einn flokliur
verði leyfður í nýja sam'oaadsrík-
inu eins og í Egyptalandi Nassers.
Bitar myndaði þegar í stað |
stjórnina og er hann sjálfur for-
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra. Dr. Jundi, sem var menn
ingarmála- og upplýsingamálaráð
herra í gömlu stjórn Bitars, gegu
ir því embætti áfram fyrst um
sinn. Hariri, hershöfðingi, verður
landvarnaráðherra, en hann er
auk þess yfirmaður landvarna.
AFP hermir, að menn hafi veitt
því eftirtekt, að í nýju stjórninni
eru ekki þeir eindregnu stuðn-
ingsmenn Nassers, sem átíu sætt
í gömlu stjórn Bitars, að dr. Jundi
undanskildum.
★ Endurskipulagning stjórnarinn
ar í írak fór fram í dag. í fyrsta
skipti verður þar ráðherra, sem
fer með arabísk einingarmál ■—
það er fyrrv. upplýsingamálaráð-
herra, A1 Raw.
Ahmed Hassan Bakr er ennþá
forsæfisráðherra, en hann baðst
lausnar fyrir sig og ráðuneýti sitt
á laugardag og kvað hann ástæð-
una hina nýju h i m stjórnarinn-
ar. Hún hefur fengið tvo nýja ráð
herra og burtséð frá því. að iyrrv.
ina’4'kisráðheírra er nú orðmn
ipppiýsi\tamálaráðherra, he| ir
engin breyting orðið á samseiningu
stjórnarinnar.
I DAG verður opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafnsins sýning á mál-
verkum og teikningum eftir Bjarna
Guðjónsson frá Vestmannaeyjum.
Verður sýningin opin frá kl. 1,30
til 10 hvern virkan dag fram til 34.
þ. m. Á sýningunni eru 34 olíu-
málverk og 19 teikningar. Eru mál
verkin öll til sölu, en ekki teikn
ingarnar.
Bjarni Guðjónsson er 56 ára
gamall tréskurðarmeistari frá Vest
mannaeyjum. Hann hefur haldið
eina sýningu áður, 1935 í Vest-
mannaeyjum, en þá sýndi hann
tréskurðarmyndir. Bjarni er list-
lineigður maður og hapn hefur
alltaf alið í brjósti löngun til að
lielga sig málaralistinni, en lét
ekki verða af því fyrr en ívrir
nokkrum árum og eru á sýning-
unni ávextir þeirrar vinnu.
Bjarni Guðjónsson málar mest
óhlutlægar myndir. Litir í verk-
um hans eru bjartir, hreinir og
afskerandi. -— Hann segist einnig
mála hlutlægar myndir og bera
teikningar hans því vitni. Aftur á
móti virðist honum meira frjáls-
ræði fólgið í svokölluðum ,.non-
figurativisma".
Bjarni kenndi teikningu og tré-
skurð í fjölda ára við gagnfræöa-
skólann í Vestmannaeyjum. Ættu
sem flestir að leggja leið sína í
Bogasalinn einhverja næstu daga
að skoða verk þessa manns, sem
leggur út á braut listarinnar, kom
inn á sextugsaldur.
ALABA
WASHINGTON og ALABAMA, 13. bama og ástandið væri mjög óör-
Robert
Það
mai
(NTB-Reuter). -
Kennedy, dómsmálaráðh. Banda-
ríkjanna, sagði £ dag, að enn ríkti
mikil spenna í sambandi við kyn-
þáttaátökin í Birmingham í Ala-
BJARNI GUÐJÓNSSON við verk sín á sýningunni í Bogasalnum.
er upplýst, að 3000 fót-
gönguliðar, fallhlífahermenn, her
lögreglumenn og aðrir heí'menn
hafi verið sendir til Alabama.
Kennedy, forseti, lét á sunnu-
dagskvöldið í ljós miklar áhyggj-
ur yfir ástandinu í Alabama og
gaf herliði sambandsríkisins jafn
framt fyrirmæli um að fara inn í
Alabama. í dag komu sveitir /:
herliði þessu upp stöðvum á ýms
um stöðum í ríkinu, og virtist
ástandið hafa batnað. Ekki bárust
fréttir af neinum árekstrum í dag,
og mörg hverfi í Birmingham, sem
lögreglan lokaði eftir átokin á
sunnudagskvöld voru í dag opnuð
aftur fyrir umferð.
Á blaðamannafundi í dag u.up-
lýsti dómsmálaráðherrann, að á-
kvörðunin um að senda nerlið sam
bandsríkisins inn í Alabama hafi
verið tekin um helgina, en ekki
fyrir helgi.
Salinger, blaðafulltrúi Keaue-
dys, forseta, skýrði frá því í dag,
að forsetinn hefði í dag rætt við
bróður sinn, dómsmálaráðherrann.
Hann bjóst við, að forsotinn
myndi í dag svara George Wa'lace,
ríkísstjóra í Alabama, sem dregið
haTrfi í efa rétt forsetaus til að
senda herlið sambandsstjórnarinn
ar inn í ríklð.
j King, leiðtogi blökKumanna,
reyndi í dag að róa hina æstu stuðn
ingsmenn sína með því að bjóða
yfirvöldunum í borginni að bafa
frjálsar hendur um framkvæmd
ráðstafana þeirra um niðurfellingu
kynþáttaaðskilnaðar, er sainkcmu
lag varð um í vikunni sem leið.
Baseballleikarinn, Robinson cg
boxarinn Floyd Patterson eru
komnir til Birmingham og hyggj-
ast taka sjálfir þátt í a'ð afneira
kynþáttamismuninn.
Séra Wyatt Walker, einn af nán
ustu samstarfsmönnum Kings,
sagði í dag, að Alabama-lögreglan
hefði beitt ofbeldi í áiökunum á
sunnudag. Hann segir, ■& lögreglu
þjónn hafi barið sig með kyiíu
og kona hans hefði verið lamin með
byssuskefti. Lögreglan ? Alabama
segir þetta vera „haugalygi'V
MWMMMWMWMMWIWW
Kvenfélags
fundur
KVENFÉLAG Alþýðuflokks-
ins í Rcykjavík heldur fund
n.k. fimmtudag klukkan 8 í
Alþýðuliúsinu (gengið inn
frá Ingólfsstræti). Fundar-
efni: Félagsmál. Nokkrar
nefndir skila stuttum skýrsl-
um. Klukkan 8.30 verða
sýndar skuggamyndir frá
liópferð liéðan s.l. sumar til
byggða V-íslendinga. Síðan
verður rætt um alþingiskosn
imrarnar, og hefur frú K itrín
Smári framsögu. Félagskon-
ur fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
sk út-
agastjórn
Washington, 13. 5.
(NTB—AFP)
RANNSÓKNARNEFND frá Banda
Iagi Ameríkuríkjanna (OAS) fór í
dag til Santo Domingo í Dóminí-
kanska lýðveldinu, en þaðan á nún
að halda áfram til Port-au-Princc,
höfuðborgar Haiti. Hefur nefndin
umboð til að bjóða iýðveldunum
tveim á eynni Hispaniolu að reyna
að koma á sættum á milli þeirra.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
is USA tilkynnti í dag, að Banda-
ríkjamenn mundu ekki viður-
kenna útlagastjórn þá, sem stjórn
málamenn frá Haiti komu á sunr.u-
dag á fót í borginni San Juan á
Puerto Rico. Washington mundi
halda áfram að viðurkenna stjórn-
ina í Port-au-Prince, þó að hinn
löglegi embættistími Duvaliers
forseta renni út 15. maí. Banda-
ríkjastjórn væri ekki hrifin af
þeirri ákvörðun Duvaliers að sitja
áfram í embætti forseta, en það
væri ekki nægjanleg ástæða til
að hætta að Viðurkenna stjóm
Haitis. Hann kvað hina svokölluðu
útlagastjóm varla mundu geta
haft mikil áhrif á þróun mála. —
Hann sagði ennfremur, að ekkert
ríki í Mið- eða Suður-Ameríku
gæti viðurkennt útlagastjórnina,
af því að hún hefði verið sett á
laggirnar á bandarísku landi. — í
fréttum frá San Juan hafði verið
sagt, að Venezuela, Dominikinska
lýðveldið og Costa Rica hefðu
hugsað sér að viðurkenna stjórn-
ina.
ING
GASAL