Alþýðublaðið - 17.05.1963, Blaðsíða 3
AKVÆM
Framh. af 1. síSn
ur. Hér fer á eftir yfirlit -yir .síð
ustu mínútur geimerðarinnar:
23.19. Cooper fær veðurskeyti.
VeBrið hefur batnað. Ölduhæð 3
til 6 fet. Vindhæð 16 hnútar. Létt
skýjað.
23.19. Fallhlíf til að auka stöð-
ugleika lcsuð, þegar geimskipið
nálgast Midway.
23.20. Fallhlifin opnast,
23.21. Aðalhlíf opnast.
23.22. Cooper sést á lofti frá „US
S Kearsarge“.
23.25. Majór Cooper ke^nur í
sjóinn „í góðu formi“. Kearsarge
heldur í áttina til „Faith 7“
Þegar Faith 7 \ar aftur komið
inn í gufuhvolfið eftir hringfe'rð
irnar 22 umhverfis jörðiná og í
um það bil 6.300 m. hæð, opnast
1.8 m. löng fallhlíf sjálfkrafa. —1
Fallhlifin jók á stöðugleika geira
farsins á niðurleiðinni.
Þegar Faith 7 var komið í um
3 þús. m. hæð, losnaði Iendingar
fallhlífin sjálfkrafa. Um leið og
Faith 7 kom í sjóinn opnaðist fall
hlifin, sérstök litarefni, sem
merkja staðinn, þar sem geimfar-
ið kom niður, lituðu sjóinn, það
kviknaði á geysiöflugum ljósköst-
urum, 4.8 m. loftnet þandist út
1 og hátíðnis-radióviti fór í gang.
KANAVERALHÖFÐA, 16. maí. —
Bandariski geimfarinn, Gordon
Cooper, var í góðu skapi og við
beztu heilsu, þegar dró að lokum
34
Ráðstafanir hér
vegna bólunnar
HEILBRIGÐISMÁLARÁDUN.
hefur ákveðið, að tillögu landlækn
is, að allir, sem koma frá Sví-
þjóð gang'st undir kúabólusetn-
ingu eða sæti sóttvarnareftirliti,
unz liðnir eru 14 dagar frá því
að þeir fóru frá Svíþjóð.
Ástæðan er bólusóttin í Stokk
hólmi. Nú er vitað um sex örugg
bólusóttartilfelli í borginni. Allir,
sem sýkzt hafa, hafa haft sam-
band við 57 ára gömlu konuna,
sem lézt úr bólusótt fyrir þrem
vikum.
í tilkynningu frá landlækni, er
blaðinu barst í gær, segir, ,ið all-
ir, sem frá Svíþjóð koma og ekki
geta sýnt gilt kúabólusetningar-
vottorð, skuli, þótt þeir komi frá
ósýktu svæði, gangast undir kúa
bólusetningu eða, ef þeir neita
bólusetningu, sæta sóttvarnareft-
jirliti, unz liðnir eru 14 dagar fra
því er þeir stigu um borð í flug
far eða skip frá Svíþjóð.
Öllum, sem ferðast til Svíþjóð-
ar og ekki hafa verið bóluseltir
með fullum árangri á síðustu 3
árum, er ráðlagt að láta bólu-
setja sig gegn bólusótt, segir enu
jfremur i tilkynningu landlæknis.
í frétt frá norsku fréttastof-
unni í gær segir, að sænska hoil
brigðismálastjórnin telji, enn sem
komið er, ónauðsynlegt að fyrir-
skipa f jöldabólusetningu í. Stokk-
hólmi vegna bólusóttar-tilfeilanna
þar.
Heilbrigðismálastjórnin sænska
telur ekki nauðsynlegt að fyrir-
skipa bólusetningu meðan ekki
er tilkynnt um örugg tiifelli með
al fólks, sem ekki unmgekkst
konuna, sem lézt fyrir þrem vik-
um.
geimferðar hans, sem stóð i
tima, í dagr.
Ráðgert hafði verið, að geimhylk
lð lenti í fallhlif á Kyrrahafi um
kl. 23.20 (ísl. tími) nálægt Mid-
way-eyju, og þar beið mikiil
fjöldi skipa, þar á meðal flugvéla
móðurskipið „Kearsarge", reiðu-
búin til að ná geimfaranum úr
sjónum.
Cooper, majór, kemur me'ð mik-
ihn fjársjóð vísindalegra upplýs-
inga úr geimferð sinni, og munn
þær koma að miklu gagni við til-
raunir til þess að senda mann til
tunglsins fyrir Iok þessa áratugs.
Þessi verkefni, þ. á. m. miklar
myndatökur fyrír “vTsindamenn,
urðu til þess, að Cooper sagði
eitt sinn hlæjandi: „Það eina, eem
ég geri er að taka myndir, myndir,
myndir".
En stundum tók hann sér hvíid
frá störfum þeim, sem honum
hafði verið falið að gera, til þess
að senda önnur skeyti. Er Cooper
flaug yfir Afríku á 28.074 km.
hraða á klst., sendi hann ráð-
stefnu æðstu manna Monroviu-
ríkianna í Addis Abeba, Eþíópíu,
heillaóskaskeyti.
Öðru sinni sá hann þrumuveð-
ur í aðsigi, þegar hann fór yfir
Ástralíu. Hann aðvaraði strand-
borgina Perth við storminum, sem
í aðsigi var.
Einnig fékk hann heillaóska-
skeyti frá leiðtogum margra þjóða.
Forseti E1 Salvador sendi beztu
heillaóskir og birgðamálaráðherra
Ástralíu sendi eftirfarandi skeyti:
„Gervöll Ástralía fylgist með ferð
yðar af miklum áhugá".
Raunar fylgist allur heimur-
inn með ferð Coopers í sjónvarpi
eða útvarpi. Ekkert heyrðist frá
kommúnistaríkjunum um geim-
ferðina.
Þetta fór ekki fram hjá blöðun-
um. ítalska blaðið,- „II Popolo“
benti á í forystugrein, að Rússar
tilkynntu aðeins um geimferðir
sínar þegar vitað væri með vissu
að þeer myndu heppnast.
Sovézkir borgarar kynnast ekki
geimferðahetjum sínum, fyrr en
ferðin er hafin, en við vitum um
öll einstök atriði varðandi Cooper
og fyrirrennara hans, segir blaðið.
Um það bil 700 blaðamenn frá
mörgum ríkjum fylgdust með upp
hafi geimferðar Coopers. Honum
var skotið upp frá skotpailinum
á Kanaveralhöfða kl. 13.04 eftir
ísl. tíma í gær. Öflug Atlas-eld-
flaug þrýsti „Faith 7“ geimhylki
hans á fullkomna braut umhvetf-
is jörðina.
„Faith 7“ þaut í gegnurn geim
inn á nær 8 km. hraða á sekúndu
og fór yfir 105 ríki, eyjar og ný-
lendur.
Alls átti Cooper að ferðast 920
þús. km. áður en ferðinni átti að
ljúka um 80 mílur suðaustur af
Midway-eyju.
Starfsmenn Mercury-tilraunar-
innar áttu ekki nógu sterk orð
til þess að lýsa árangri ferðarinn
ar.
„Ótrúlegt", sagði John A. Pow-
ere, undirofursti, aðalformælandi
Mercury-tilraunarinnar. „Snprð u-
lausasta ferðin til þessa“, sagði
Christopher Kraft, sem stjórnaði
geimferðinni.
Líðan Coopers var sögð ágæt
Cooper kom hins vegar með
skýringu á þessu. Hann hafði vakn
að við að honum var heitt í bún
ingnum. Hann lagfærði hitann og
sofnaði aftur.
Auk þessa skýrði Cooper svo
frá, að líðan hans væri ágæt. —
Læknar í aðalstöðvum tilraunar-
innar hafa staðfest þetta. Æða
sláttur hans, blóðþrýstingur og
hiti hafa ekki sýnt neitt óeðlilegt,
sögðu þeir.
Þjóðhátíðar-
dagur Norð-
manna í dag
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARD AGUR Norð-
manna er i dag, 17. maí. Normands
laget í Reykjavík mun minnast
þessa dags að venju, en kl. 8,30
, f. h. í dag fer fram athöfn I Foss
j vog^kirkjugarði) er blómsveigur
verður lagður á leiði Norðmanna,-
Hann svaf í sjö tíma frá því er ) sem létu lífið í heimsstyrjöldinni
hann fór í níundu hringferðina ; síðari.
og þar til hann lauk við þá 14. | Þá mun norski sendiherrann
„Ég svaf vel“, sagði hann Við | hafa boð inni fyrir norsk börn
hlustunarstöðvar. Mælingar, sem á íslandi, og eftir hádegi vcrðnr
gerðar voru á jörðu niðri, sýndu. j móttaka fyrir meðlimi Normands-
að æðaslátturinn jókst mikið — I laget og ýmsa gesti í norska sendi
frá 58—60 slögum að meðaltali ráðinu. — í kvöld verður svo
í 100 slög -— eitt sinn töldu lækn j veizla í Sjálfstæðishúsinu og dans
ar að hann hefði verið að dreyma. ' inu stiginn fram eftir nóttu.
40 KORNTILRAUN-
IR Á 18 STÖÐUM
TILRAUNIR með kornrækt eru
geröar á 18 stöðum hringinn í
kringum landið og lýkin- sáningu
í tilraunareitina í dag, ef veður
leyfir, sagði dr. Biörn Sigurbjörns
son, stjórnandi tilraunanna, í við-
tali við Albvðnhlaðið í gær. Alls
eru tilraunirnar á að gizka 40 tals-
ins. í flestum tilfellum eni þær
gerðar í samráði við búnaðarráðu-
nauta á hverjum stað, en á stöku
stað í samráði við einstaka bænd-
ur.
Mest af tilraunum Atvinnudeild-
ar Háskólans fer fram í Gunnars
holti, að Kormilfsstöðum, í eigin
stöð deildarinnar, og á Skóga-
sandi.
Tilraunirnar skintast í þrennt:
í fyrsta lagi svok«Haðar afbrigða-
tilraunir, sem miða að því að bera
saman mismnnandi afbrigði af
byggi, höfrum og hveiti. Eru í þess
um tilraunum notuð um 60 af-
brigði af hverri tegund. í öðru lagi
eru gerðar áburðartilraunir, og
loks koma svo kynbætur. Þær fara
fram þannig, að víxlað er saman
mismunandi afbrigðum og síðan
valið úr. Sagði dr. Björn, að til-
raunir þessar væru á þriðju kyn-
slóðinni, en það tekur 7 ár að fá
hreint afbrigði aftur, og síðan 3—4
ár til að fjölga því og koma á mark
að.
Fyrsta sáning var gerð á Skóga-
sandi 12; marz. Var það korn, sem
há var sáð orðið 5 sentímetra hátt
og fallega grænt hinn 9. apríl, er
Þlraunamenn komu austur til ann
arrar sáningar. Um nóttina gerði
áhlanpið fræga, og morguninn eft-
ir var allt dautt. Hins vegar er hað
kom. sem sáð var 9. apríl, nú orðið
8 sentímetra hátt og lítur ágæt-
lega út. Varð bví ekkert meint af
knldaniim. Síðasta sáning á Skóga
sandi var svo 13. maí.
GRASTILRAUNIR
í FYRRA voru gerðar tilraunir
með 2000 sýnishom af grasfræi.
Samanburðartilraun hefur verið
gerð á íslenzku vallarsveifgrasi og
venjulegu grasfræi, sem keypt var
í verzlun. Áætlar dr. Bjöm, að um
80% af íslenzka grasinu sé lifandi,
en allt verzlunarfræið er stein-
dautt. Það merkilega hefur gerzt
í grastilraununum, að af þessum
12000 sýnishornum skarar EITT
langt fram úr öðrum. Hitt hefur
ekki þolað veturinn. Og þá vaknar
spurningin, hvort gera megi þetta
j eina afbrigði enn betra?
MEKILEGT AFBRIGÐI
í FYRRA og núna í vor hafa verið
gerðar tilraunir með grasafbrigði,
sem vixlað var vestur 1 Kaliforníu.
Mæður í þessu afbrigði hafa verið
fengnar fram af fræi 14 afbrigða,
en feður úr fræi 5000 afbr. Hefur
110 kg. af bessu grasfræi verið sáð
í Gunnarsholti og að Korpúlfsstöð-
um nú tvö ár í röð.
BONN, 16. maí (NTB-AFP) — Vestur-þýzka þingið staöfesti í morgun
fransk-þýzka samstarfssamninginn. Áður hefur þingráðið staðfest
hann, og um þessar mundir fjallar franska þjóðþingið um hann. Sama
ingurinn var staðfestur einróma. Þetta er í fyrsta skipti síoan i styrjöld
inni að mikilvægrt uanrikismál er samþykkt einróma með fulium stuðn
ingi stjórnarandstöðunnar.
★
BÚDAPEST, 16. mai (NTB-Reuter) — Forsætisráðherra Ungverja-
lands, Janos Kadar, sem er aðalritari ungverska kommúnistaflokks-
ins, fór með flugvél frá Búdapest í morgun, sennilega til Moskvu, þar
sem hann mun ráðfæra sig við sovézka leiðtoga. Vestrænir blaðamenn,
sem að tilviljun voru staddir á Ferihegy-flugvellinum skammt frá
Búdapest, sáu forsætisráðherrann stíga upp í tveggja hreyfla flugvél.
Margir menn voru í fylgd með honum, en ekki tókst að bera kennsl
á þá. Formælandi stjórnarinnar gat ekki staðfest eða neitað að Kadar
hefði farið frá Búdapest.
★
POLA, Júgóslavíu, 16. maí (NTB-Reuter). — Nasser, forseti Arabíska
sambandslýðveldisins, fór í dag með flugvél til Kairó að lokinni fjög-
urra daga opinberri heimsókn í Júgóslavíu. Nasser hefur rætt við Tito,
forseta Júgóslavíu.
BÁT STOLIÐ
AÐFARANÖTT s.l. miðvikudags
var bát stolið, en hann hafði verið
sjósettur vestur við Grandagarð.
í gærkvöldi höfðu engar spurnir
iboHst af bátnum, en hann mun
hafa verið búinn góðri vél. Höfðu
jeigendur hans gengið fjörur, en
ekkert fundið.
Báturinn er nokkuð stór, eða
um 5 metrar á lengd, svartur og
hvítur með grænurn borðstokk. —
Þeir, sem einhverjar upplýsingar
gætu gefið, eru beðnlr að snúa sér
til rannsóknarlögreglunnar.
ALÞÝÐUBLAÐI9 — 17. maí 1963 3: