Alþýðublaðið - 19.05.1963, Blaðsíða 1
sem tryggi frelsi einstaklingsins, félags-
legt öryggi, næga atvinnu, réttláta tekju-
skiptingu og fullkomin menntunarskilyröi
%
ALÞÝÐUFLOKKURINN hefur samþykkt nýja stefnuskrá. Samkvæmt
henni stefnir flokkurinn að því að skapa hér á landi velferðarríki, er grundvall-
ist á traustu lýðræði og algeru jafnrétti. Alþýðuflokkurinn stefnir að því að
skapa réttlátt þjóðfélag, þar sem allir húa við velmegun og enginn þarf að óttast.
um afkomu sína, mannréttindi sín eða frelsi sitt.
Alþýðuflokkurínn telur leiðina
að þessu marki þá, að ísleadingrar
hélgi sér markmið jafnaðarstefn-
Onnar í því skyni að tryggja:
1. ÞJÓÐFÉLAG, sem setur frelsí
einstaklingsins í óndvcgi osr
verndar hann fyrir hvers konar
kúgrun ogr ofríki, gcrir alla þeg-na
jafna fyrir lögrum og tryggir fé-
lagslegt réttlæti.
?. ÞJÓÐFÉLAG, sem hcfur skipu-
lega heildarstjórn á efnahags-
kerfinu til þess að tryggja al-
menna velmegun, næga atvinnu
réttláta tekjuskiptingu og sann-
gjarna niðurjöfnun skatta, örv-
ar framtak einstaklinga, féiög
pg opinbera aðila, en lætur esgn
og stjórn atvinnutækja lúta hags
munum þjóðarheildarinnar.
3. ÞJÓÐFÉLAG, sem veitir öllum
þegnum sínum öryggi irá vöggu
til grafar, verndar lítilmagnana,
tryggir afkoinu sjúkra, ijrkumla
og gamalla.
4. ÞJÓÐFÉLAG, sem veitir öllum
jafnan rétt til hvers konar
menntunar án tillits til búsetu
eða efnahags, örvar menningar-
starf og eflir listir og vísindi.
5. ÞJÓÐFÉLAG, sem er aðili að
alþjóðlegu samstarfi þjóða til
varðveizlu friðar og frelsis.
Framundan er barátta fyrir þjóð
félagi jafnaðarstefnunnar. í þeirri
baráttu vill Alþýðuflokkurinn liafa
samstöðu með frjálslyndum öflum,
sérstaklega samtökum launþega og
annarra neytenda. tSjá opnu).
ALLT Á
HULDU!
ELAÐIÐ ræddi í gær við
Loga Einarsson, yfirsaka-
dómara, og innti hann
frétta um „njósnamái*
Þjóðviljans, en eins og kunn-
ugt er, afhjúpaði Vísir lyga-
vef kommúnista í fyrradag,
og stcndur nú hver fullyrð-
ingin upp á móti annarri í
þessum blöðum. Logi sagði,
að ekkert væri nýtt að frétta
í því máli. Spurningu um,
hvort Ásgeir hefði í hyggjti
að kæra þau ummæli Þjóð-
viljans í gærmorgun, að hann
væri njósnari bandaríska
sendiráðsins, svaraði yfirsaka
dómari þannig, að sér væri
ekki kunnugt um það.
\
Afvinnutækin
lúti heildinni
EINN mikilvægasti kaflinn í hinni nýju stefnuskrá Al-
þýðuflokksins er kaflinn inn hagkerfi jafnaðarstefnunnar. Þar
segir svo:
Alþýðuflokkurinn telur eðlilegt, að íslenzkt hagkerfi sé
reist á opinberum rekstri, samvinnurekstri og einkarekstri.
Höfuðatriðið er, að eign og yfirráð atvinnutækja þjóni hags-
munum þjóðarheildarinnar, en ekki cingöngu einstaklinga eða
hópa inanna.
Opinber fyrirtæki skulu skipa veigamikinn sess í íslenzku
þjóðfélagi. Ríki og sveitarfélög hafi forystu um að koma á fót
og viðhalda þjónustustofnunum og atvinnutækjum, orkuvemm
og stóriðju.
Þá er kafli er nefnist lýðræði í efnahagsmálum. Hann er
á þessa leið:
LÝÐRÆÐI í EFNAHAGSMÁLUM.
Alþýðuflokkurinn telur íslenzku þjóðfélagi hættulegt, að
mikið efnahagsvald safnist á hendur einstakra eða fárra
manna.
Setja verður löggjöf um stórfyrirtæki og fyrirtækjasam-
steypur til að tryggja lýðræðislega stjórn þeirra og birtingu
upplýsinga um hag þeirra og starfsemi, og einnig löggjöf, er
keinur í veg fyrir einokun eða myndun einorknnarhringja. I
stjórnum fyrirtækjasamsteypa og stærstu fyrirtækja sitji full-
trúar hins opinbera. Efla skal starfsemi gagnkvæmra trygg.
ingarfélaga, er skili hinum tryggðu ágóða sínum.
StefnuskráBii í heild á bls. 8r 9 og10.
SKEMMTUN
Á-LISTANS
ER / DAG
MÆÍIÐ ÖLL
Eggert Guðm. Ófeigur Þuríður
Það er í dag kl. 2, sem A-
lista skenuntunin verður í
Súlnasalnum í Hótel Sögu.
Þrír frambjóðendur A-Iistans
flytja ávörp, þ.e. þeir Guð-
mundur Magnússon skóla-
stjóri, Ófeigur J. Ófeigsson
læknir og Eggert G. Þorsteins
son alþingismaður. Þuríður
Pálsdóttir óperusöngkona syng
ur einsöng Jórunn Viðar píanó
leikari leikur undir. Söngkvart
ett syngur: Árni Tryggvason
Bessi Bjarnason, Brynjólfur
Jóhannesson og Lárus Ingólfs
son. Kynnir verður Sigurður
Guðmundsson. Einar Jónsson
píanóleikari leikur á milli at-
riða. Síðdegiskaffi verður iram
reitt meðan á dagskrá stcnd
ur. Aðgöngumiðar eru afhent
ir í skrifstofu Alþýðuflokks-
ins og hjá trúnaðarmönnum
um allan bæ. Stuðningsmcnn
A-listans! Mætið vel og gerið ,
kjósendafagnaðinn glæsilegau