Alþýðublaðið - 19.05.1963, Síða 10
Stefnuskrá Alþýðuflokksins
Framhafd úr opnu. X. UfCMríkÍsmál
IX. Menning
Varðveizfa menningararfsins.
Alþýðuflokkurlnn vill stuðla að varðveizlu hins
forna íslenzka menningararfs, jafnframt þvf, sem
þjóðin tileinkar sér hið bezta úr menningarstraum-
um samtíðarinnar.
Menning þjóðarinnar sé sameign hennar allrar. Til
þess að almenningur eigi kost á að njóta ávaxta
blómlegrar menningar, heldur hið opinbera uppi skóia-
kerli og veitir vísindum og listum beinan stuðning.
Rikið eitt rekur útvarp og sjónvarp, er leggur á-
hei-zlu á frasðandi og menntandi efni, auk hollrar
dægrastyttingar.
Skólakerfið.
Ríkið heldur uppi fullkomnu skólakerfi til að veita
öllnm landsmönnum ókeypis kennslu frá barna-
fræðslu til háskólanáms. Tilgangur kennslunnar sé
að bæta aðstöðu þegnanna í lífsbaráttunni, gera sér-
hvern einstakling að sjálfstæðari og betri manni og
efla með honum lífsviðhorf lýðræðis og mannúðar.
Leggja skal 'jöfnum höndum áherzlu á bóklegt
nám og verknám og efla iðnfræðslu og tæknimennt-
un. Tengja skal kennsluna félagslegri og efnahags-
legri lífsbaráttu þjóðarinnar.
Tryggja skal, að enginn fari á mis við skólagöngu
af fjárhagsástæðum. Auk styrkja og lána til fram-
haldsnáms skulu ioma föst laun nemenda £ tilekn-
um greinum.
Auka ber skilyrði til að afla menntunar með tóm-
stundan’ámi, eftir að skólagöngu lýkur.
Vísindi og rannsóknir.
Rfkið efli hvers konar vísinda- og rannsóknarstörf,
bæði í hugvfsindum og raunvísindum. Leggja skal
storaukna áherzlu á tilraunir og rannsóknir í þágu
atvinnuvega þjóðarinnar, enda munu þær auka af-
rakstur þeirra og stuðla að bættum lífskjörum.
Bókaútgáfa og bókasöfn.
islendingar eru bókaþjóð og ber að hlúa eftir
megni að hollri bókaútgáfu og bókagerð. Leggja ber
stóraukna áherzlu á eflingu almenningsbókasafna og
að minnsta kosti eins fullkomins landsbókasafns.
Fullvðldi og frelsf.
Alþýðuflokkurinn telur, að utanríkisstefna íslend-
inga skuli gegna því hlutverki:
að tryggja fullveldi þjóðarinnar og lýðræðislegt
stjómarfar í landinu;
að tryggja vinsamleg samskipti við allar þjóðir, á-
samt hagkvæmum og heilbrigðum viðskiptum
við þær;
að stuðla að friði og frelsi í heiminum.
Sameinuóu þjóöirnar.
Alþýðuflokkurinn telur, að friður og frelsi verði
bezt tryggt með því, að Sameinuðu þjóðimar verði
efldar, þannig, að allsherjarþing þeirra fái vald til
þess að setja lög um samskipti þjóða, hafi öflugt lög-
reglulið til að framfylgja lögum sínum og samþykkt-
um, en alþjóðlegur dómstóll dæmi í ágreiningsmál-
um ríkja í milli.
Svæöabandalög gegn ofbeldi.
Unz þetta verður að veruleika, telur Alþýðuflokk-
urinn óhjákvæmilegt, að frjálsar þjóðir myndi með
sér bandalög á einstökum svæðum til að spyma gegn
útbreiðslu ofbeldisstefna, er keppa að heimsyfirráð-
um og undirokun.
AlþféÖIeg afvopnun.
Alþýðuflokkurinn telur, að íslandi beri að styðja
alþjóðlega afvopnun undir ströngu eftirliti og telur
það höfuðnauðsyn til að tryggja frið, að slík afvopn-
un takist.
AuSjöfnun.
Alþjóöasamstarf.
sínu við hin Norðurlandaríkin og hafi við þau við-
tækt samstarf á sem flestum sviðum.
XI. Réttindi og
skyldur
Framkvæmd þessarar stefnuskrár myndi tryggja
sérhverjum manni:
rétt til að lifa frjálsu og heilbrigðu lífi,.
rétt til að búa sér góð lífskjör með vinnu sinni,
rétt til að afla sér menntunar og eiga hlutdeild
í menningu þjóðarinnar,
rétt til að vera án ótta við sjúkdóma, slys, ó-
megð eða elli,
rétt til að taka þátt í mótun og stjórn þjóðfé-
lagsins.
Jafnframt því, sem jafnaðarstefnan vill tryggja
þegnunum þessi víðtæku réttindi, leggja þau þeim
skyldur á herðar, þ. á. m.:
þá skyldu að vera hugsandi og virkur borgari og
nota áhrifarétt sinn á landsmál á ábyrg-
an hátt,
þá skyldu að leggja fram vinnu sína eftir getu og
hæfileikum,
þá skyldu að stuðla að betra og göfugra þjóðlífi
með eigin framkomu og uppeldi barna
sinna.
Alþýðuflokkurinn styður baráttu undirokaðra þjóða
fyrir frelsi sínu. Hann telur auðjöfnun þjóða heims
eitt meginverkefni alþjóðamála.
Þeim verkefnum fer ört fjölgandi, sem verða betur
leyst. með alþjóðasamstarfi en innan vébanda ein-
stakra ríkja. Alþýðuflokkurinn telur íslendinga eiga
að taka þátt í slíku alþjóðasamstarfi. Flokkurinn tel-
ur'mikils virði, að ísland haldi menningarsambandi
XII. Lokaorð
Alþýðuflokkurinn lióf merki lýðræðisjafnaðar-
stefnunnar á íslandi, hefur boðað hana og barizt fyrir
framkvæmd hennar á fimmta áratug. Flokkurinn
hefur aldrei ánetjast föstum og ósveigjanlegum
kennisetningum né verið blindur á þær stórfelldu
breytingar, sem orðið hafa á högum mannkynsins
síðustu áratugi. Því hefur stefna flokksins þróazt og
mótazt með breyttum aðstæðum nýrra kynslóða, enda
þótt lokatakmarkið sé ávallt hið sama: þjóðfélag, þar
sem ríkir frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Þessi stefnuskrá, sem nú er birt íslenzku þjóðinni,
er jöfnum höndum reist á grundvallarhugsjón jafn-
aðarstefnunnar og íslenzkum þjóðfélagsaðstæðuni,
eins og þær eru nú. Það er bjargföst trú Alþýðu-
flokksins, að sé stefnuskrá þessari hrundið í fram-
kvæmd, þá aukist frelsi einstaklingsins, afkoma heim-
ilanna batni, félagslegt öryggi vaxi, menning þjóðar-
innar eflist og allt hafi þetta í för með sér, að ís-
lenaingár lifi farsælla lífi en áður.
í þeirri trú heitir Alþýðuflokkurinn á íslenzka þjóð
að ganga til liðs við flokkinn og vinna að framkvæmd
þessarar stefnuskrár.
A-LISTINN
A-LISTINN
SIÐDEGISSKE
verSur haldlti í Súlnasal Hétel Sögu í dag kl. 2 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Einsöngur: Þuríður Pálsdóttir, óperusöngkona. 3. Söngkvaríett syngur: — Árni Tryggvason, Bessi
Undirleikari: Jórunn Viðar, píanóleikari. Bjarnason, Brynjólfur Jóliannesson, Lárus Ingólfs-
2. Ávörp: Eggert G. Þorsteinsson alþm., Guðmund- son.
ur Magnússon skólastjóri, Ófeigur J. Ófeigsson
læknir.
Píanóleik milli atriði annast Einar Jónsson. — Kaffi verður reitt fram meðan á dagskrá stendur.
Alþýðuflokksfólk og aðrir stuðningsmenn A-listans eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega.
A-LISTINN A-LISTINN
K; '.Jx wí> £ * ~
|0 19. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ