Alþýðublaðið - 29.06.1963, Síða 5

Alþýðublaðið - 29.06.1963, Síða 5
 MYNDIN af stúlkunum tveim meðal barnanna er tekin á leikveilinum við Njálsgötu. I>ær eru báðar í vinnuskóla Reykjavíkurborgar, og hafa í dag starfað við barna- gæzlu í eina viku, finnst það gaman og verkið farið þeim vel úr Iiendi. Þefsar ungu blómarósir með föturnar hafa unnið við gróðursetn- ingu og hirðingu trjá- plantna í Öskjuhlíð. í fötun- um er Skarni, en eftir bros- unum að dæma virðist þeirn ekki óa við lyktinni. Það hef- ur reynzt vel að bera þenn- an umrædda áburð á trjá- plöntur. Stúlkan á litlu mynd inni situr fyrir framan eitt af trjánum i Öskjuhiið, sem vinnuskólinn hefur gróður- sett. I vinnuskóla Reykjavíkur- borgar eru 316 unglingar t vinnuskóla Reykjavíkur- borgar eru nú 316 unglingar, sem vinna að hinum margvís legustu störfum. Af þessum 316 unglingum eru 168 þeirra stúlk ur og 148 drengir. Stjórnand vinnuskólans er Kristján Gunn- arsson skólastjóri og hefur hann verið það allt frá 1954. Það mun hafa verið árið 1948 sem unglingavinnan hóf göngu sína hjá Reykjavíkurborg Fyrsti stjórnandi hennar var Magnús Sigurðsson núverandi skólastj. Hlíðaskólans. Voru þá eingöngu drengir teknir í unglingavinn- una og munu þeir þetta fyrsta sumar hafa verið um 40. Árið 1951 byrjar svo Vinnuskóli Reykjavíkurborgar og hefur hann starfað á hverju sumr? síðan og er því þetta 13. starfs ár hans. Eins og áður segir eru nú 316 unglingar starfandi í vinnuskól anum. í fyrra var skólinn fjöl- mennastur. Þá voru í honum 3V7 stúlkur og 227 drengir, sam- tals 604 unglingar. Auðvitað stendur fjöldi í vinnuskólanum í beinu sambandi við það, hve mikil eftirspurnin eftir vinnu- afli unglinganna á vinnumark aðinum er á hverjum tíma. í fyrra t.d. hefur það vafalaust haft mikil áhrif til þess' hve skólinn var fjölmennur, að þá var togaraverkfall og þess vegna lítil sem engin frystihúsavinna, en þar eru oft margar stúlkur á þessum aldri í vinnu. . í vinnuskóla Reykjavíkurborg ar kemst engin eldri en 15 ára og lágmark aldurs er hjá stúlk um, aö þær verði á þessu éri 14 ára, en lágmark drengja að þeir verði 13 ára á starfsárinu. í sumar eru sárafáir unglingar í eldri árgöngunum. Þeir eru flestir í vinnu á hinum almenna vinnumarkaði. Yngsti árgangur inn er fjölmennastur í vinnuskól anum. Nemedur vinnuskólans fá laun fyrir vinnu sína, en mis- munandi eftir aidri. 13 ára ungl ingar fá 8.00 kr. á tímann, 14 ára 9.00 kr. á tímann og 15 ára 11.00 kr. á tímann. Þarna ríkir alls staðar fullkomið launajafn rétti karla og kvenna. Vinnuskóli Reykjavíkurborg- ar hefst um mánaðamótin mai og júni og starfar óslitið til ágústloka að undantekinni einni viku í júlí, en þá er gefið sum- arfrí. Svo er alltaf nokkur vinna á hans vegum í septemr ber við að taka upp kartöflur. Vinnan byrjar kl. 8 á morgnana og kl. 3 síðdegis hætta ctúlkurn ar vinnu, en drengirnir kl. 4. Þannig skila stúlkurnar 36 vinnustundum á viku, en dreng irnir 42 vinnustundum. Aðsójcn að vinnuskólanum hef ur verið mísmunandi mikil eins og áður seglr, en alltaf hefur verið hægt að taka alla, sem vilja komast í vinnuskólann hverju sinni. Tilgangurinn með vinnuskól anum er fyrst og fremst sá, að sjá unglingunum fyrir hæfileg um og hollum viðfangsefnum þar sem hvorki sé um að ræða of erfiða vinnu, né of langan vinnu dag. Þannig á skólinn að forða þessum unglingum borgarinnar frá því að ganga um í iðjuleysi og tilgangsleysi yfir sumartím- ann. . Verkefnin, sem unnið er að í vinnuákólanum eru mörg og margvísleg Er þar fyrst að nefna umhirðu og snyrtingu skrúð- garða borgarinnar. Þá er Gkóg- rækt stór þáttur í starfsemi skólans, bæði í Heiðmörk og Öskjuhlíðinni. Hefur það starf þegar skilað góðum árangri. í Öskjuhliðinni hefur vinnuskól- inn einnig unnið við að leggja gangstíga. Á hverjum leikvelli borgarinnar eru tvær stúlkur frá vinnuskólanum til þess að leika við börnin þar og líta eftir þeim. Drengjaflokkar frá vinnuskólanum eru önnum kafn ir við vinnu sína á- íþróttavöíl unum, núna er þeir að vinnu á KR-vellinum og Víkirigssvæð- inu. Fjórir flokkar hafa hreins unarverkefni hjá borginni. Hverfisstjórar borgarinnar benda á verkefnin, sem vinna þarf, en síðan eru verkefnin unnin undir stjórn vinnuskólans Er þetta míkil þarfavinna í þágu borgarinnar. Þá eru vinnu flokkar frá vinnuskolanum að störfum á golívellinum og upp.i á Silungapolli. Um daginn fékk vinnuskólinn mjög skemmtilegt verkefni að vinna. Einar Pálsson, fékk drengi úr vinnuskóianum tíl starfa fyrir Umferðarkönnun- ina. Þetta starf stóð í 4 daga og voru drengirnir nettir á vissa staði til þess að telja umferðina Tókst þessi umferðarkönnun hið bezta og er sennilegt að erfitt hefði reynzt að £á vinnukraf • til þess að framkvæma þessa - umférðarkönnun, ef vinnuskól- . inn hefði ekki getað leyst hana af hendi. Bein garðyrkjustörf eru lítið sem ekkert unnin í - vinnuskólanum. Þau störf eru fyrst og fremst unnin í Skóla- görðum Reykjavikurborgar en það er önnur og sjálfstæð stofn un. Unglingarnir í vinnuskól anum vinna i þrjár vikur á sama vinnustað, en þá er skipt um. í vinnuskólanum una ungling arnir vel hag sínum. Þeir njóta þess að starfa að heilbrigðum og hæfilegum verkefnum. Það er ekki. oft, sem þau hætta í vinnuskólanum. ug ef þau - hætta er orsökin venjulegast, að þau fara í sumarleyfi með for eldrum sinum eða þeim býðst önnur vinna betur borguð. Mörg koma aftur, þegar sumarleyfi foreldranna .er á enda. í vinnu skölanum við lausn hollra verkefna við sitt hæfi finna ungl ingarnir hamingju sina. ; \ i i \ i r r t t ! ALÞÝÐUBLAÐiÐ — 29. júní 1963

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.