Alþýðublaðið - 07.07.1963, Side 9

Alþýðublaðið - 07.07.1963, Side 9
/ Til þess að grandskoða þennan útbúnað verður að klifra upp á gamalt skúrþak í grennd við múr- inn. Þaðan sjást vel öll þau her- virki, sem að framan er lýst. Það an sést líka inn í Austur-Berlín. Af skúrnum horfði maður eftir tveim allbreiðum götum, og sést þaðan nokkuð vítt um. Enginn bíli var á ferðinni. Enginn bíll sjáan- legur. Mjög fátt fólk var á ferli á þessum götum, aöeins nokkrar hræður. Þetta var ekki ósvipað því GUÐNASON að horfa inn í dauðramanna borg, þar sem örfáir eftirlifendur eru ennþá á kreiki. Á einstaka stað sást fólk í gluggum. Yfir þessu vöktu hermenn í varðturni hátt uppi á húsi einu skammt handan við mörkin. Verðirnir, sem standa vörð við múrinn eru flestir ungir menn, að því er okkur var tjáð. Vörður- inn-er kvöð, sem lögð er á þá nauð- uga viljuga. Þeir eiga þá ósk heit asta, að losna sem fyrst undan þessari ánauð, og þurfa ekki sam- kvæmt skipunum yfirboðara að skjóta Ianda sína á leið til frelsis- ins. Við sáum þá víða og oft sá- um við aðeins í augu þeirra og ein- kennishúfur. Þeir voru huldir bak við gægjugöt, og fylgdust þar með því sem fram fór. Fyrir framan eitt húsið í Bern auerstrasse var minnisvarði, og reyndar eru fleiri slíkir meðfram múrnum. Fylgdarmenn okkar tveir ungir Vesturberlínarbúar, sögðu okkur sögu þessara minnisvarða. Minnisvarðinn í Bernauerstrasse var til minningar um gamla konu, sem stokkið hafði út úr sjö hæða húsinu, sem að framan er getið. Lögreglumenn héldu útbreiddri ábreiðu, sem gamla konan skyldi stökkva í. Henni tókst það ekki, og lét liún lífið. Við varðann voru fersk blóm og lárviðarsveigur. Síðan skoðuðum við minnisvarð ann um Peter Feuehter, drenginn sem blæddi út við múrinn í augsýn þeirra, sem myr.tu hann. Sú stund er við dvöldumst þar var áhrifarík. Eftir Bernauerstrasse endilöngu eru sporvagnateinar. Vestanmegin hverfa þeir undir múrinn.og spor- vagninn, sem þessa leið gengur snýr þar við. Austanmegin hvecfa teinarnir ekki innundir múrinn, þeir hafa verið rifnir upp, og hring braut búin til, þar sem vagninn snýr við. Með þessu sýna valdhaf arnir austanmegin, það að skipt- ing borgarinnar er varanleg, en ekki til bráðabirgða að þeirra dómi. Vestur-Berlínarbúar hafa ekki gert neinar breytingar, því þeir telja og vona að borgin verði heil og óskipt innan tíðar. Frá Bernauerstrasse fórum við að Charlie varðstöðinni (Checkpo- int Charlie). Þar er aðalhi'aíð á múrnum. Þar var fremur lítil um- ferð er við vorum þar á ferð. Nokkr ir bílar fórii og komu, sömuleiðis Svona hefur Ulbricht látið hlaða upp í alla glugga húsa, sem standa á mörkum borgarhlutanna. Á stöku stað eru örlítil gægjugöt milli múrsteinanna. Þar fyrir innan standa verðir og fylgjast með því sem fram fer. Húsið, sem myndin sýnir er í Bernauerstrasse. Á framhlið þess eru alls 70 gluggar, sem öllum hefur verið lokað eins og myndin sýnir. nokkrir vegfarendur. Ekki fórum við austuryfir, enda tíminn naum ur og margt að skoða. Öllum er frjálst að fara yfir til Austur-Berlínar, — nema VestuV Berlínarbúum, — en þeir eru kannski þeir einu, sem þangað eiga áríðandi erindi. Múrinn kemur þannig í veg fyrir að ættingjar, bræður systur, foreldrar og börn geta hitzt. Þetta eru grimmdar- legar ráðstafanir, um það ættu allir að geta verið á einu máli. Það er til ein leið, fyrir Vestur- j Berlínarbúa til að hitta vini sína og vandamenn austanmegin. Sú leið er að mæla sér mót við þá í Prag, Moskvu, eða einhversstaðar á Krímskaga. Slíkar ferðir eru að sjálfsögðu dýrt spaug og ekki á allra færi. ' að lokum sigra, og þá verður múr- inn rifinn. En minningin um hann mun lengi geymast. Það eitt að sjá Berlíarmúrinn; það eitt að hann skuli vera til, er áhrifarík sönnun þess, að ekki er allt með felldu hvað varðar stjórn- arfarið í .ðSustur-Þýzkalandi. Stjórn arfarið þar, er það sama og íslenzk- ir kommúnistar berjast fyrir með oddi og egg að komið verði á hér. Einn flokkur, — einn stjórnandi, — einræði. Það má aldrei ske. En Framhald á 14. síðu. Nú er meira að segja svo kom- ið að fólk austanmegin má ekki Iengur veifa til fólks, sem stendur vestanmegin; ættingja sinna eða skyldmenna. Þetta eru harðir kost- ir. Margir hafa tekið upp það bragð að strjúka hár sitt, eða fara hönd- um um andlit sitt og láta slíkt koma í staðinn fyrir að veifa. Nú kynni einhver að segja sem svo: Auðvitað hlýtur þó þetta fólk þó að geta talað saman í síma sín á milli. Það skal að vtsu játað, að slíkt er mögulegt, en erfitt er það. Til að hringja til Austur-Berlínar í hús, sem ef til vill stendur 100- 200 metra frá mörkunum, verður fyrst að hringja til Frankfurt, eða jafnvel Kaupmannahafnar, svo það an til Leipzig og frá Leipzig til Austur-Berlínar. Oft tekur það 7 klukkustundir að ná sambandi efí- ir þessum krókaleiðum. Samt hikar : I fólk ekki við að leggja þetta erf- iði á sig til að geta rætt í örfáar mínútur við vini austanmegin. | Umbúnaöurinn í Bernauerst nar. Takið eftir, að enginn bíll er sjáanlegur og fátt fólk er á ferli. Vgarður, sem fyrst og fremst er reistur til að koma í veg fyrir að götunni. í vinstra horni sést skurður, ein af hindrunum Ulbrichts ríkí sínu. Það er erfitt að lýsa nákvæm- lega hvaða áhríf múrinn hefur á mann. Fyrst og fremst vekur hann ógn og viðbjóð gagnvart þeim valdhöfum, sem voguðu sér að láta reisa hann. Með múrnum hafa UI- bricht og félagar hans reist sér ævarandi svívirðingarvarða. Við vonum og vitum að hið rétta mun ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júlí 1963 §

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.