Alþýðublaðið - 17.07.1963, Blaðsíða 7
Leikararnir Linda Christian og Edmund Purdom giftu sig
í aprílmánuði áriff 1962. Eftir nokkurra mánaffa sambúð hljóp
allt í bál og brand og þau fengu skilnaff.
— Edmund er afbrýffisamur og eigingjarn, sagffi Linda og
andvarpaffi.
Fjórtán mánuffum eftir giftinguna tóku þau Linda og Ed-
mund saman aftur. Þau hittust í Róm og nutu lífsins þar í rík-
um mæli. Þau leigffu sér snoturt hús fyrir utan borgina og
Iifffu í vellystingum praktuglega.
— Margt í fari Edmunds finnst mér ákaflega hvimleitt,
sagffi Linda fyrir skömmu á næturklúbbi einum í Rómaborg,
er þau voru bæffi stödd þar. Hann er alltaf seinn. Og hann er
óskaplega seinn aff borða. En þrátt fyrir þaff, elska ég hann,
— ög alla hans mörgu galla.
Og Linda þrýsti hönd Edmunds sfns eins og til aff gefa
orffum sínum áherzlu.
— Viff Edmund munum aldrei framar skilja, er þaff síff-
asta sem haft er eftir Lindu Christina.
Skyldi hún reynast sannspá?
Áfmæli
,glæpons'
í Chicago í Bandaríkjunum
hélt stórglæpamaðurinn New
Nardiello nýlega upp á 80 ára af-
mæli. Það er mesta furða, að Nar-
diello þessi skuli enn vera lifandi,
því að hann hefur oft komizt í klær ;
lögreglunnar fyrir alvarlega glæpi. i
Á langri æfi hefur hann oftar en
einu sinni sloppið naumlega við
rafmagnsstólinn og skotin úr byss-
um lögreglunnar.
Þegar blaðamaður nokkur spurði
Nardiello í tilefni áttræðisafmæl-
isins, hverju hann þakkaði sitt
langa líf, hafði Nardiello svarið
á reiðum höndum. Hann brosti
og svaraði kankvíslega: Eg á án
efa líf mitt að launa skothelda
vestinu mínu og duttlungum yfir-
valdanna.
Bann við
barsmíð
Allmargir þingmenn Neðri mál-
stofunnar brezku hafa borið fram
lagafrumvarp um að afnema lög
frá sextándu öld, sem enn eru í
gildi.
Umrædd lög kveða á um það,
að eiginmenn megi ekki berja
konur sinar á milli klukkan níu
að kvöldi og sex að morgni „vegna
þess að liávaðinn af því kann að
raska næturró íbúanna.”
■SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI-
Doddi: Má ég sjá lófana á yður,
herra Pétur?
Pétur: Gjörðu svo vel, en segðu
mér hvers vegna í ósköpunum þig
langar til þess?
Doddi: Ja, ég heyrði systur mína
vera að hvísla því að mömmu, að
þér væruö „loðinn um lófana.”
Er það hér, sem laxerolían er
seld, spurði drengurinn um leið og
hann kom inn í apótekið.
— Já, vinur.
— Þið aettuð að skammast
ykkar.
Dóttirin í umkvörtunartón.- Jón-
as þreytir mig, pabbi.
Faðirinn: Það er eðlilegt, vina
mín. Þú ert alltaf á hælunum á
honum.
★
— Heldur þú, að nokkur veitti
Shakespeare athygli, ef hann lifðí
nú á tímum?
— Þú getur nú rétt ímyndað
þér. 400 ára gömlum manninum!
★
Móðirin: Er ég ekki oft búin að
banna þér að stinga hnífnum upp
í þig?
Sonurinn: Eg má til, mamma.
Þú sérð sjálf að gaffallinn lekur.
KONUR
32 ára gamall blökkumaður í
New York, myrti í síðastliðinni
viku konu sína og mágkonu og
særði þrjá aðira illilega. Efttr
hermdarverkin ruddist hann inn
í íbúð nágranna síns, batt fjöl-
skylduna á höndum og fótum, —
rændi 18 ára gamalli dóttur hús-
bóndans og hafði á brott með sér
í bifreið.
Blökkumaðurinn Richard Cole-
man náðist von bráðar ásamt
stúlkunni, sem hann hafði rænt.
Hann gaf þá skýringu á glæpum
sínum, að sér og konu sinni hefði
orðið sundurorða.
SYNDA-
MESSUR
Prestur einn í Boston kveðst
hafa fundið upp snjallræði til að
örva kirkjusókn til sín. Á kirkju-
hurðina festi hann miða með þess-
um orffum:
„Hér eru haldnar sérstakar mess
ur fyrir syndara.”
Kirkjan hans, sem venjulega
hafði verið hálftóm, er nú full-
setin suxmudag eftir sunnudag.
í DAG eru alls 2800 menn
í lögreglunni í Kaupmanna-
höfn. Yfirmaður hennar er
Eivind .Larsen lögreglustjóri.
Undir hann heyra hinar
mörgu og ólíku deildir lög-
reglunnar.
Á hverju ári koma um 30
þús. lagabrot — allt frá rán-
morðum til reiðhjólaþjófnaða
— til kasta Kaupmanna-
hafnar-lögreglunnar.
Lögreglan heldur um það
bil 5000 manns föngnum í
Kaupmannahöfn og um 7000
eru settir í gæzluvarðhald.
Lögreglan í Kaupmanna-
höfn er völd að því, að ár-
lega eru þar greiddar sektir að
upphæð 4,6 millj. danskra kr.
og er þessari fjárhæð deilt
niður á 48 þús. manns, sem
eitt og annað hafa gert af
sér.
Símon varð
brúðarsveinn
Sjö ára gamall snáði í London,
Simon Scudamvores að nafni, —
hefur átt þá ósk heitásta um
margra ára skeið, að verða brúð-
arsveinn við brúðkaup. Eftir aff
hann hafði séð brúðkaup Alexn
öndru prinsessu í sjónvarpinu —
héldu honum engin bönd lengur.
Hann varð óður og uppvægur að
fá ósk sina uppfyllta.
Þess vegna greip móðir lians
til þess örþrifaráðs að setja eft-
eftirfarandi auglýsingu í blöðin:
„Lítill drengur, sjö ára gamall,
hefur um langt skeið óskað sér
þess að verða brúðarsveinn viff
brúðkaup án þess að sú ósk hans
hafi orðið uppfyllt. Nú eru þaff
eindregin tilmæli móður hans, aff
þeir aðilar, er gætu liðsinnt iion-
um, hafi samband við símanúm-
erið ...”
Og eftir að þessi auglýsing
hafði hirzt, bárust Simon litla
hvorki meira né minna en 50 til-
boð úr ýmsum áttum!
Tannburstar, sem ganga fyrit*
rafmagni hafa vakið mikla athygli
í Bandaríkjunum að því er segir
í Wall Street Journal. Rafmagns
tannburstar þéssir eru af 35 mis~
munandi gerðum og verð þeirra
er allt frá 3 til 20 dollarar.
Síðastliðið ár seldust rafmagns-
burstar fyrir um 28 milljónir doll-
ara í Bandaríkjunum, og búizt er
við því, að salan í ár verði allk
að því helmingi meiri.
8.00
12.00
13.00
15.00
18.30
19.30
20.00
20.15
20.40
21.00
21.25
21.50
22.00
22.10
22.30
23.00
MIÐVIKUDAGUR 17. JULI:
Morgunútvarp. Bæn. Tónl. 8.30 Fréttir. Tónl. Veðurfr.
Hádegisútvarp. Tónl. 12.25 Fréttir og tilk.
Við vinnuna. Tónleikar.
Siðdegisútvarp. Fréttir og til. 16.30 Veðurfr. 17.00 Fréttir.
Lög úr söngleikjum. 18.50 Tilkynningar. 19.20 Veðurfr.
Fréttir.
Söngvar til elskunnar minnar: George Shearing stjórnar.
Vísað til vegar: Frá Ölfusárbrú til Veiðivatna. (Guðmundur
Kjartansson).
Einsöngur: Engel Lund syngur íslenzk þjóðlög.
Alþýðumenntun, IX. erindi: Upphaf lýðháskólanna í Danmörku.
(Vilhjálmur Einarsson kennari).
Píanótónleikar. Horowitz leikur sónötu nr. 2 í b-moll op. 35
eftir Chopin.
Upplestur: Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi les frumort
kvæði.
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: Keisarinn í Alaska, 13. lestur. Herst. Pálsson.
Næturhljómleikar: Frá tónlistarhátíðinni í Prag í maí sl.
a) í riki náttúrunnar, forleikur eftir Dvorák.
b) Píanókonsert eftir Petr Eben.
Dagskrárlok.
HIN SlÐAK
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 17. júlí 1963 J