Alþýðublaðið - 17.07.1963, Side 16
44. árg. — Miðvikudagur 17. júií 1983 — 153. tbl.
Færeyjaflug
23. júlí?
í FRÉTTASKEYTI frá norsku
frcitastofunni NTB í gær segir,
að þess sé að vænta, að nýi flug-
völiurinn á Vaagö í Færeyjum
verði opnaður tií umferðar í þess-
ari viku. Þá segir, að Flugfélag Is-
lands muni næstu daga fljúga
reynsluferðir til Vaagö áður en
hafnar verði reglulegar áætlunar-
ferðir þangað. á leiðinni til Ber-
gen. Kaupmannahafnar og Skot-
lands.
Blaðið náði tali af Birgi Þórhalls
syni, deildarstjóra hjá Flugfélag-
inu og spurðist fyrir um hvað liði
Færeyjaflugi. Kvað hann ekki rétt,
að farið yrði nokkuð tilraunaflug,
en það væri von ráðamanna Flug-
félagsins,,að hægt yrði að hefja á-
ætlunarflug um Færeyjar 23. júlí,
næstkomandi. Ekki væri endan-
lega búið að ganga frá nauðsyn-
legum leyfum, en vonandi mundi
það komast í lag innan skamms.
Birgir sagði, að um lengri tíma
hefði verið stefnt að því, að byrja
Færeyjaflugið 23. júlí, og búið er
að fá flugvél af gerðinni DC-3 til
flugsins. Er hún væntanleg til
landsins á morgun.
LITIL VEIÐI
Treg sílaveiði var sl. sóíarhring
Vitað var um afla 24 skipa af mið
unum við Kólbeinsey með samtals
8480 mál og tunnur. Veður var
þar óhagstætt, en mestallur flot-
inn er á þeim sl'óðum.
Veður var einnig óhagstætt fyrir
austan land. Þar fréttist af einu
skipi með 150 tunnur síldar, sem
fékkst út af Glettingi. Þessi ekip
höfðu tilkynnt afla 500 mál eða
tunnur og þar yfir.
Helga Björg 500, Guðmundur
Pétursson 1100, Sólriín 700, Jón
Finnsson 900 og Sigurður SÍ 750.
RAFVIRKJAR
HAFA SA
Félag íslcnzkra Rafvirkja sam-
þykkti á fundi sínurn í gærkveldi
nýja kaup- og kjarásamninga.
Samið var um 13% kauphækkun
og gildir samningurinn frá og með
12. júlí til 15. október n.k. og fell-
ur þá úr gildi án uppsagnar.
Það nýmæli er í þessum samn
ingum, að nú fá rafvirkjar 0,75 kr.
á tímann í verkfæraþóknun til
viðbótar tímakaupinu. Þá var og
um það samið, að rafvirkjar,; sein
stjórakaupið 15% liærra en
lokið haía prófi frá rafvirkjadeild
Vélskólans, fái 10% liærra kaup,
en annars er samið um.
Einnig var samið um greiðari
áðgang rafvirkjasveina að nám-
skeiðum, en próf frá slíkum nám-
skeiðum hækkar kaup sveina um
10%. ' .
Þá var sgmið í fyrsta skipti um
kaup flokksstjóra og verður flokks
sveinakaup.
Reumert afhenti Þjóðleik-
húsinu mynd af konu sinni
Paul Reumert afhenti Þjóð-
leikhúsinu í gær mynd af
konu sinni, frú Önnu Borg. Af-
hjúpaði Reumert myndina í við
_ urvist menntamálaráðherra,
ÞjóðleilihúííVáðs,: sonar sfns.
Stefáns og blaðamanna. Þjóð-
: leikhússtjóri, Guðlaugur Rósin-
kranz veitti gjöfinni móttöku
fyrir hönd Þjóðleikhússins og
, kom henni fyrir í kristalssalu-
Kl. 3 í gær var safnast saman
í kristalssalnum fyrir framan
í myndina af frú Önnu. Þarn®
voru auk Raul Reumert og Stef
;;_t_-----------------
Éfri myndin er af (talið frá
vinstri) Vilhjálmi Gíslasyni,
útvarpsstjóra, Gylfa Þ. Gísla-
syni menntamálaráðherra, Har-
aldi Björnssyni leikara, Paul
Reumert og Guðlaugi Rósin-
kranz Þjóðleikhússtjóra.
Neðri myndin er tekin af
Reumert þar sem hann stendur
fyrir framan myndina.
áns sonar hans, sem er bús.ettur
hér, menntamálaráðherra, Gylfi
Þ. Gíslason, Guðlaugur Rósin-
kranz Þjóðleikhússtjóri, með-
limir Þjóðleikhússráðs, Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps^
stjóri, Hörður Bjarnason húsa-
meistari ríkisins, Jakob Bene-
diktsson, Haraldur Björnsson
leikari, og blaðafulltrúi Þjóð-
leikhússins, Klemens Jónsson.
Paul Reumert kvað Önnu
orð áður en hann afhjúpaði
myndina., Hann sagði, að á
þessari stund væri hugurinn
hjá Önnu Borg, hennar auðuga
persónuleika, göfuga hugarfari
og næma tilfinningalífi.
„Anna Borg elskaði land sítt
ekki aðeins fólkið, þjóðina,
heldur landið sjálft, hina is-
lenzku jörð. Eitt sinn er við vor
um á leið til Þingvalla var
stanzað á Kambabrún og áður
en nokkur vissi af, beygði Anna
sig niður og kyssti moldina,
hina íslenzku jörð.“
Paul Reumert kvvað Önnu
alltaf hafa verið hrifna af ís-
landi. Enda þótt hún hefði
dvalið lengst af erlendis, þá
hefði hugurinn alltaf veríð á
íslandi. Hann sagði, að það væri
sér einlægalega kærkomið að
afhenda Þjóðleikhúsinu mynd
af konu sinni.
Er Reumert hafði lokið hinu
hrífandi ávarpi sínu, afhjúp-
aði hann myndina. Er þetta mál
verk gert eftir mynd.er Her-
' man Wedel málaði af Önnu í
stríðsbypjun. Ijjfti'rmyndin er
gerð af Daniel Hvidt.
Þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur
Rósinkranz, þakkaði gjöfina
með nokkrum orðum. Hann
sagðl, að myndin sýndi ekki
einungis ytri fegurð frú Önnu
Borg, heldur einnig hlna innri
fegurð, sem hún hefði verið
svo auðug af. „Anna Borg hóf
leikferil sinn á íslandi, en það
átti fyrir henni að liggja, að
Framh. á 11. viðc
Reykjaví
mjólkurlaus:
?
Eins og sagt var frá í blaðinu í
gær, hafa mjólkurfræðingar boð-
að verkfafl frá og með n.k. laugar
degi, ef ekki uæst samkomulag
fyrir þann tíma. Verkfall þe;ta
næðl, ef til kæmi, til mjólkurfræð-
inga hér í Reykjavík, við Flóabú-
ið, í Borgarnesi, á Blönduósi, á
Sauðárkróki og á Húsavík.
Þetta eru uggvænleg tíðindi, því
að verkfall mjólkurfræðinga á
þessum stöðum þýðir, að engira
söluhæf mjólk yrði framleidd á
mjó.lkurstöðvunum, sem þarna eru
staðsett'.þ- meöan á verljallinu
stæði.
Það munu því margir l'andsbúar
fylgjast með þessum málum af at-
hygli og áhuga og vona hið bezta.
Sáttasemjari hefur boðað til
sáttafundar með deiluaðilum kl.
18.30 í kvöld.