Alþýðublaðið - 25.07.1963, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 25.07.1963, Blaðsíða 2
—»«j«r*r: G^li J. Asxpórssor (éb? o« Benedlkt Gröndai.—A0sto0»rrltrtJ6n SS«-.‘ífvln GuCmuiiússon - Fréttastjóri: Slgvaldl Hjálmarsson. - Símar <«W09 i« <K)J - 14 903. Auglýslngasíml: 14 908 - Aösetur. AlþýOuhúslO eran smif ja A!>íöublaös: ns, Hverflsgötu 8-10 - Asfcrlftargjald kr. 65.CV aaanuO. 1 'avaafiöiii kr. 4 00 eint. Utgefandj* Aipýöufiokkuilnfi Feitar kýr og magrar UM LANGT ÁRABIL, áður en núverandi rík- isstjórn kom til valda, lifði þjóðarbúið frá degi til dags í fjár'hagslegu tilliti. Öllum tekjum var að heita má eytt jafnóðum. Þjóðin fleytti sér yfir tíma bil aflaleysis og erfiðleika með lántökum — eða höftum og skömmtun. Nú hefur ríkisstjórnin reynt að fara hyggilegri leiðir. Viðreisnin hefur byggt upp gjaldeyrisvara- sjóð, sem á að tryggja jöfn lífskjör, þótt sveiflur verði á gjaldeyrisöflun. Velmegun síðastliðins árs leiddi til mikils greiðsluafgangs hjá ríkissjóði, og hefur stjórnin ákveðið að leggja 100 milljónir fyr- ir samkvæmt 30 ára gömlum lögum. Alþýðuflokksmenn fluttu frumvörp um Jöfn- unarsjóð ríkisins á Alþingi 1930—32. Þeír Har- aldur Guðmundsson, Héðinn Valdimarsson, Sigur jón Á. Ólafsson og Jón Baldvinsson voru forsvars menn þess máls, og tilgangur þeirra var að verja verkalýðinn fyrir atvinnuleysi. Þeir bentu á, að í góðæri væri umframtekjum venjulega eytt strax, enda þótt skortur á vinnuafli væri í landinu, eins og var 1928—29. Töldu þeir hyggilegra að leggja þá fyrir, til að framkvæmdir ríkisins þurfi ekki að dragast saman, þótt tekjur minnki í verri árum. Ef þetta hefði verið gert 1928, hefði iverið til gild- ur sjóður í byrjun kreppunnar, eins og Haraldur benti þá á. , „Tilgangur frumvarpsins er að koma því lagi á“, sagði Haraldur Guðmundsson, ,,að það fé, sem varið er til verklegra framkvæmda . . . verði mei'r notað, þegar atvinnubrestur er, en aftur á móti dregið úr opinberum framkvæmdum, þegar at- vinnulíf er fjörugt og nægileg atvinna". Frum- varp jafnaðarmanna um atvinnuleysistryggingar fékk slæmar móttökur á þingi 1928, en þær komust á aldarfjórðung síðar fyrir forgöngu Emils Jóns- sonar. Frumvarpið um jöfnunarsjóð fékk betri við tökur, og töldu menn úr öllum flokkum það sýna „rétta hugsun‘‘. Var málið afgreitt sem lög 1932, að vísu í nokkuð öðru formi en jafnaðarmenn höfðu óskað. Ásgeir Ásgeirsson sagði um þetta mál: „Þeg- ar vel árar, er yfirleitt góður hugur í þingmönn- um, og þá er ekkert sparað, en allt á að gera. Svo þegar harðærin koma, þá hangir sultardropinn úr hverju nefi, og þá þykist hver mestur, sem mest- an naglaskap sýnir. Jöfnunarsjóðurinn ætti að geta komið í veg fyrir þetta“. Skynsamir einstaklingar leggja fyrir, þegar f járhagur þeirra rýmkar. Það hlýtur einnig að vera skynsamlegt fyrir þjóðarheildina. ViS töiciiin upp ^NQRPÍBeITOe) sjénvarpstæki tvisvar í viku. 1. Eru fyrir bæði kerfin það AME ÍIÍSKA og EVRÓPSKA. 2. Eru fyrir okkar straum 220 volt, 50 rið. 3. Eru mjög hljómgóð. 4. Myndalampinn er með sérstökum lit, sem hvílir augun. 5. Eru öll í vönduðum trékassa. 6. Afborgunarskilmálar. 7. Varahlutir fyrir hendi. 8. Gott sjónvarpsverkstæði. 9. Ábyrgð á endingu. MUNIÐ, AÐ NORDMENDE ER FYRIR ÞÁ VANDLÁTU. KLAPPARSTÍG 26 SÍMI: 19-800. REYKJAVÍK. HANNES A HORNINU : | ■ýf Rykið veldur ofnæmissjúkdómum. Bréf frá lækni um máliff. + Ummæli þýzks læknis. + Ofnæmissjúkdómar útbreiddari hér en annars staðar. I LÆKNIR SENDIR MÉR eftirfar andi bréf: „í dag skrifar þú um rykbindingu veganna og er ég sammála þér um það sem þú segir um málið. Rykbindingin er mikið nauðsynjamál og líkast tii auðveld asta vegabótin hér á landi slæms ofaníburðar og breytilegrar veðr áttu. Þegar rykið minnkar verð- ur akstur auðveidari og slysahætt (an miklu minni. Það er ég alveg sannfærður um, enda hefur ryk ið á vegunum torveldað umferð- ina. EINU SINNI þegar skemmti- ferðaskip kom hingað var ráðgert, að hópur færi til Þingvalla. Þá var þurrviðri og rok. Þegar komið var upp í Mosfellssveit kröfðust farþegarnir að snúið væri við til Reykjavíkur. Þeir höfðu aldrei séð annað eins, enda sást ekki á milli bíla. > EN ÞETTA ÁTTI ekki að verða aðalefni bréfs míns. Við læknarn ir þekkjum það af eigin raun og starfi okkar að hér eru alls konar ofnæmisjúkdómar ákaflega út- breiddir, og að líkindum mildu út breiddari en í nokkru öðru landi. Ég hef oft hugsað um þetta og rætt um fyrirbrigðið við stéttar- bræður mína, og mér hefur oft dottið í hug hvort þessir sjúkdóm a>- stöfuðu ekki af rykkafinu, sem hér er þegar blástur er og þurrt í veðri. Það er að minnsta kosti alveg víst, að rykið skemmir slím húð, og þegar svo er komið, er voði vís. EN SVO SKEÐI ÞAÐ nýlega að ég hitti þýzkan doktor, sem hér dvaldi í sumar og hann fór að ræða við mig um ofnæmissjúk- dóma hér á landi, sem hann taldi að væru margfalt útbreiddari en í hans heimalandi. Hann sagði með al annars: „Um daginn fór ég vest ur á Snæfellsrtess með vinum mín um. Þegar við ókum þessa leið þóttist ég allt í einu skilja undir- rót hinn mjög útbreiddu ofnæm issjúkdóma hér á landi. lausan rykmökk mikinn hluta leið arinnar, enda var umferð mikil og ég fann á sjálfum mér hvernig rykið smaug inn í vit mín og mér varð þungt. Mér skildist, að það væri undirrót sjúkdómanna, enda hlaut skýringin að liggja Ijós fyr- ir og stafa af einhverju alveg sér slöku á íslandi svo er munurinn mikill á útbreiðslu sjúkdómanna á Islandi og annars staðar í Evrópu“. ÉG SENDI ÞÉR þessi ummæli doktorsins til þess að koma á fram færi skýringu læknisins, sem við íslenzkir læknar höfum í raun og veru haft grun um þó að það hafi að vísu ekki komið fram opinber- lega fyrr en nú. Sjáum við því hversu mikils virði það væri fyr- ir þjóðina ef hægt yrði að stemma stigu við rykmekkinum á þjóðveg. um landsins". Framhald á 12. síðu. J2 25. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ VEÐ ÓKUM gegnum viðstöðu-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.