Alþýðublaðið - 25.07.1963, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 25.07.1963, Qupperneq 16
verkfræðin byriaðir störf FJORIR verkfræðingar sóttu um stóður þær, sem Vegamálastjórn- in auglýsti fyrir skömmu. Er um- sóknarfrestur nú útrunninn, og voru mennirnir allir ráðnir. Þetta eru fjórir af þeim sex verkfræð- ingum, sem störfuðu hjá Vega- ínálastjórninni áður en til verk- fatlsins kom. Fá þeir laun greidd samkvæmt Gerðardómi, en almennir verk- fræðingar eru í 22. launaflokki, og fá eftir því greiddar 13.690 ’ krónur eftir 3ja ára starf. Verk- fræðingafélagið hefur tekið þá ákvörðun, að láta Félagsdóm fjalla um réttmæti þessara ráðn- ínga, en þeir telja þær verkfalls- Trésmiðir hafa samið Á FUNDI í Trésmiðafélagi Reykjavíkur á þriðjudags- kvöldið voru samþykktir nýir samningar. Gilda þess- ir samningar frá og með 18. júlí og falla úr gildi 15. ok- tóber án uppsagnar. Helztu atriði samninganna eru þessi: Tímakaup sveina var í dagvinnu 30.25 kr. verð ur 34.18 kr.. Vélamanna- kaup var á tímann í dag- vinnu 32.50 kr., en verður 38.43 kr. Greiðsla fyrir hand verkfæri var 1.45 kr. á tím- ann, en verður 1.70 kr. Reikningstala ákvæðis- vinnutaxta var 27.84 kr. verð ur í óendurskoðuðum þátt- um 31.46 kr., en í endur- skoðuðum þáttum hans tíma kaup sveina, eða 34.18 kr. brot og jafnframt brot á vinnu- löggjöfinni. Við höfðum í gær tal af Hinrik Guðmundssyni, formanni Verk- fræðingafélagsins, og spurðum hann álits á þessum ráðningum. Hann kvað þessar ráðningar brot á vinnulöggjöfinni, þar sem mennirnir fjórir hefðu sótt um og ráðið sig í starf, sem þeir væru raunverulega í verkfalli við. „Við munum fá Félagsdóm til að skera úr þessu. Við liöfum ekki fengið okkur lögmann ennþá, en þetta mun ugglaust ganga fljótt og vel fyrir sig”, sagði Hinrik. Hann gat þess, að tveir af mönnunum sem áður hefðu unnið hjá þessari stofnun, h,efðu ekki viljað ráða sig aftur, en fjórir hefðu látið ginna sig til þess. Þá taldi hann, að með kjaradómnum hefði kaup- ið lækkað hjá þessum mönnurn frá því að þeir voru „lausamenn”. Róm, 24. júlí (NTB) Trotskysinnar á Ítalíu dreyfðu í dag bæklingi, þar sem stefna Kín- verja er varin. Þar segir, að deil- ur foringjanna í Moskva og Pek- ing muni ekki splundra einingu verkalýðsins, heldur muni þær verða til þess, að Krústjov og end- urskoöunarsinnar hans muni falla frá völdum og stjórnarbylting verða í Sovétríkjunum og öðrum ríkjum verkalýðsins. MADRID 24.7 (NTB). Fimm þús und námuverkamenn á Norður- Spáni eru í verkfall’i. Verkamenn irnir krefjast hækkunar á l'aun- um. í fyrra urðu mikil verkföll í þessu sama héraði, Asturias, voru þá um liríð 55.000 námuverka- menn í verkfalli. 44. árg. — Fimmtudagur 25. júlí 1963 — 160. tbl. Um 200 skip á Seyöisf irði Bremen Það var kuldalegt um að lit- asl í gær við höfnina, og menn höfðu það á tilfinning unni þegar þeir litu til Esju, að haustið hfefði þegar geng- ið í garð. Skemmtiferðaskip ið Bremen kom á ytri-höfn- ina í gærmorgun, og var það fullskipað þýzkum farþeg- um. Margir treystu sér ekki í land vegna kuldans, og kusu heldur að lialda sig í hlýjunni um borð. Bremen mun vera stærsta skemmti- ferðaskip, sem hingað hefur komið, en það er um 35 þús- und tonn. AFLEITT veður var fyrir Norð- urlandi í gær og skipin í vari. Veður fór skánandi fyrir Aust- urlandi og byrjuðu skipin að tín- ast út í gær. Vitað var um afla 15 skipa með samtals 4740 mál og tunnur. Síid þessi fékkst á svæð- inu frá Norðfirði að Digraness- flaki. Veiðiveður var ekki gott þar eystra. Kunnugf var um afla þessara skipa: Grótta 500, Sigurður Bjarna son 900, Sæfari AK 500, Stein- grímur trölli 500 og Helga Björg 600. Seyðisfirði 24. júlí. Dálítil síldveiði var hér í nótt og komu nokkrir bátar hingaö í morgun með slatta, flestir ineð 200 til 300 tunnur. Hæsti báturinn var með 600 tunnur. Veðrið er leiðinlegt og litur út fyrir bræ.u. Um 200 skip hafa legið hér inr.i á Seyðisfirði undanfarna daga og hafa skipin verið íslenzk, norsk, Framhald á 14. síðu. FÆREYING FINNST SA ÁHUGALAUST Washingtou, 24. júlí (NTB) TILKYNNT var í Washington í dag, að Danmörku hefði verið veitt 25 milljón dollara lán til bygginga orkustöðva. ÞESSI mynd er af ílugstöðv arbyggingunni nýju í Fær- eyjum. Lengst til hægri er sjálfur flugturninn, en þar mun Flugfélagið fá aðstöðu fyrst um sinn, eða þar til aðalbyggingin verður tekin í notkun, sem mun verða inn- an skamms. DANSKA blaðið Politiken skýrði frá því á sunnudag, að fyrsta reglulega farþegaflugið til Færeyja hæfist þann dag er norska einkaflugfélagið Björum Fly flaug frá Osló til Sörvág. Félagið notar tveggja hreyfla Queen Air- flugvél, 6em tekur 6-7 farþega. Frá Sörvág er flogiö um Bergen til Osló, en þaðan eru tíða.r ferð ir með SAS til Kaupmannjhafn- ar. Hið norska félag ætlar að fljúga einu sinni í viku til og frá Færeyjum. í þessu sambandi má geta þess, að Flugfélag íslands notar Dakotavélar, sem táka 28 Færeyingar vænta góðs af flug samgöngunum og búizt er við að bæði flugfélögin, sem nú hafa byrjað áætlunarflug til eyjanna, fái nóg að gera. Færeysk blöð skrifa mikið um flugsamgöngurnar við eyjarnar og siimum þyki undarlegt, að SAS skyldi ekki sýna áhuga á, að hefja flug þangað. Dimmalætting skrif- ar á laugardag, að SAS haíi ckki sýnt neinn áhuga á, að leysa sam- ■gönguvandamái Færeyinga, þótt þess hefði mátt vænta, að það væri nærliggjandi verkefni fyrir hið svokallaða þjóðlega norræria flugfélag.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.