Alþýðublaðið - 01.08.1963, Page 15

Alþýðublaðið - 01.08.1963, Page 15
ÁSIARSAGA Á SJÚKRAHÚSIEFIIR: LUCIILA ANDREWS Harðasta árás venjulega um það bil 200 börn hérna á jólunum. Við búum sjálf út skreytinguna, læknastúdent- arnir hjálpa til við að koma henni fyrir og læknarnir sjá um skemmtiatriðin. En það, sem ríð ur á núna er að teikna. ÉG tókst öll á loft við tilhugs unina um þessa barnahátíð og að nokkrum skyldi detta í hug, að ég gæti gert eitthvað, sem ekki væri á færi hvers sem væri. Ég sagðist vera meira en fús til að teikna mörgæsir, Andrés Önd og fjöldan allan af frændum. — Komið þér þá með mér, systir. Yfirhjúkrunarkonan reis upp og allt í einu var eins og hún hefði yngst um tíu ár. — Ég vonaðist til, að þér væruð fúsar til að rétta okkur hjálparhönd, svo að allt er tilbúið. Setjist þér bara hérna frammi við borðið og takið til starfa. Þér þurfið ekki að vera hræddar við að nota lit- ina. Mér finnst gaman að stór- um myndum í storkum litum. Er þá allt í lagi, systir? — Já, ég held það, yfirhjúkr- unarkona, *— takk. Þegar ég var orðin ein sat ég lengi og starði á hvíta pappírinn fyrir framan mig. Nú, hugsaði ég, nú getur ekkert komið mér á óvart framar. Hvað svo sem inér kann að verða sagt héðan af, tek ég því með knúsandi ró Fyrst er ég hægri hönd yfirlækn isins sjálfs á móttökudeildinni —■ og haga mér eins og fífl. Og svo, ---þegar ég held, að eigi að reka mig, er ég látin fara að teikna Andrés Önd — og fylgdarlið. Ég lokaði augunum. Hvað voru nú margir í fylgdarliði Andrés- ar? Og hvernig leit hann aftur út? Var hann svona? .— Ég greip blýantinn og rissaði upp nokkr- ar fígúrur. Svo mundi ég, hvern ig þessir kumpánar voru. Mér tókst að ná svipnum, Ég var svo niðursokkin í iðju mina, að ég heyrði ekki, að dyrnar voru opn aðar og yfirhjúkrunarkonan kom inn í herbergið. — Þetta er stórkostlegt, syst- ir. Þér getið sannárlega teiknað. Hún var ekki ein. Jake stóð á bak við hana. Hann virti teikn ingarnar mínar fyrir sér, en sagði ekki neitt. Ég þorði ekki að líta á hann. — Ég hugsaði mér, að við hefð um dálítinn kofa. Kofa Mjallhvít ar i skóginum handan við fjöll- in sjö, sagði yfirlijúkrunarkon- an. — Ef við settum ljós inn í kofann, gætu bömin kíkt í gegn um gluggana og . . . systir Stand ing gæti kannski teiknað dverg ana og dýrin fyrir okkur? — Jake sagði, að sér iitist vel á þetta. — En hvernig ætlið þér að byggja kofann, systir? .Úr ull- arteppum? Eða kannski ein- hverju endingarbetra? — Ég var að vona, að skurð- lækningadeildin mundi leysa það vandamál fyrir mig, sagði yfir- hjúkrunarkonan rólega. Jake leit á mig. — Ég gekk beinustu leið í gildruna, var það ekki, sy'stir? Skurðlæknarnir hafa nóg að gera um helgina. Ailt í lagi, — við höfum sjálfsagt gott af dálítilli tilbreytni. En seg ið mér eitt, — hvernig á jóla- sveinninn að vera í ár? Yfirhjúkrunarkonan sagði, að það væri einfalt mál. Herra Spencer segir, að öli nútímabörn séu svo upptekin af framförum á sviði flugmála, að hann eigi ekki annars úrkosti en að koma í þotu. Jake brosti við. — Og méð því er málið leyst? — Hafið þið kannski liugsað yður að fá lánaða þotu lijá hern um? Hann sncri sér aftur að mér. — Ég verð að segja yður, systir Standing, að yfirhjúkrunarkonan er ekki aðeins vís til að fara fram á að fá lánaða þotu hjá hernum heldur er hún meira að segja vís til að fá hana. Yfirhjúkrunarkonan virti fyr- ir sér teikningarnar mínar. — Ö, þetta kemst allt í lag, svaraði iiún rólega. — Lyflækningadeild irnar sjá um þotuna. Við ætlum að hafa aðalæfingu með herra Spencer á sunnudagskvöldið, ef allt er rólegt hérna. Jake sagðist hlakka til að vera viðstaddur æfinguna. En hvað um barnadeildina og kvensjúk- dómadeildina? Þær eiga þó ekki að losna við allt erfiði? — Auðvitað ekki. Allir vilja leggja hönd á plóginn. Bama- deildin á að byggja litla hring- ekju fyrir minnstu börnin, — og svo höfum við hugsað okkur að hafa dálitla geimferð fyrir stærri krakkana. Læknarnir á kven- sjúkdómadeildinni ætla að smíða mána og hengja hann upp fyrir framan augnasjúkdómadeildina, — það er ágætt pláss þar. Hún dró mig aftur inn í sam- ræðurnar. — Þér skiljið, systir Standing, að þetta er stærsti at- burður ársins í augum margra þessara barna. Þau hlakka til þessa árið um kring og mörg þeirra koma ár eftir ár, — þess vegna reynum við að hafa allltaf eitthvað nýtt á prjónunum. Það er lika alltaf gaman fyrir okkur að fá þau hingað — en dálítið erf itt ævintýri að vísu. Þannig er það, — en ég er viss um, að þér komið til með að skemmta yður vel. — Og ég er viss um, að systir Standing hefur aldrei á ævi sinni heyrt önnur eins ólæti eins og verða hérna í fordyrinu á að- fangadagskvöld. sagði Jake. — En við skemmtum okkur sannarlega ágætlega. Hann tók upp eina af teikningunum mín- um og virti hana fyrir sér. — Og þar sem þetta verður síðasta jóla skemmtunin hérna á St. Martins fyrir mörg okkar — verður hún að vera eftirminnileg. Ég kólnaði upp. Ég leit á hann, en andlitið var alveg sviplaust. Svo leit ég á yfirhjúkrunarkon- una. Hún stóð og horfði á teikn- inguna, sem hann hélt á. Léttur roði lék um vanga hennar og veikt bros lék um varirnar. Astor minntist á barnaskemmt unina seinna um kvöldið, þegar við vorum að fara á vakt. — Herra Spencer er alltaf skemmti legur jólasveinn. Móttakan gjör- breytist þetta kvöld. Þér finnst það áreiðanlega ævintýri' líkast. Ég kastaði nú fram spuming- unni, sem hafði brunnið á vör- um mér allt frá því ég frétti af tilstandinu. — Hver hugsar þá um sjúklingana þetta kvöld? Þetta er eina kvöldið, sem mót tökunni er lokað — en aðeins í fjóra tíma frá klukkan tvö til klukkan sex. Næstu dagana var engin jóla stemming hvorki á okkar deild né annars staðar á sjúkrahúsinu. Sjúklingana dreif að ems og vant var, en þegar kvöldaði breyttist andrúmslofið gjörsamlega. Þá liófust jólaannir að marki. Læknastúdentarnir voru í si- felldu randi inn til yfirhjúkrun- arkonunnar til að fá hana til að leggja blessun sína yfir verk þeirra eða spyrja hana ráða um eitthvað atriði. Kvöld nokkurt komu lierra Ross og Linton rösl Framhald af 1. síðu. Fréttastofan Nýja Kína saka'ði sovézku blöðin „Pravda“ og „Izvestia“ um róg í garð Kína í sambandi við árás þcssara blaða á afstöðu Kína til bannsamnings- ins. „Pravda“ sagði fyrir nokkrum dögum, að Kína væri í undarleg- rnn félagsskap ef það hafnaði bannsamningnum. Fréttamenn í Peking lögðu á- herzlu á í dag, að í síðustu yfirlýs- ingum Kínverja væru inö.-g ný at- riði dregin inn í hugmj ndadeilu Kína og Sovétríkjanna. í árásinni |í dag var engin tilvísun til kenn- ingar marxismans-lenínismans, og deilan er þar með komin á raun- hæft og pólitískt stig. Ásakanirnar í garð Krústjov§ um svik við Sovétríkin, sósílísku löndin og allar friðelskandi þjóð- ir eru þær kröftugustu til þessa, og jafnframt hélt Peking-stjórnin því fram, að hún stæði alein uppi í starfinu að friði og afvopnun. Fréttamenn í Peking líta á á- skorunina um albjóðarráðstefnu um bann á kjarnorkuvopnum sem háspil Kínverja í baráttunni um stuðning hlutlausu ríkjanna í Af- ríku og Asíu. Því er haldið fram að álirif Kínverja í þessum lönd- um, sem þegar er orðin töluverð muni nú aukast á kostnað áhrifa Sovétríkjanna. Fréttamennirnir benda að öðru leyti á það, að eðlilegt sé fyrir Kínverja að hvetja til algerrar út- rýmingar kjarnorkuvopna. Landið eigi ekki slík vopn og muni tæp lega cignast þau í bráð. Með til- liti til hins mikla fólksfjölda mundi Kínverjar standa mun sterk ara að vígi í heiminum ef kjarn- orkuvopnum yrði útrýmt. Kínversku leiðtogarnir skipa nú Sovétríkjunum á bekk með Banda ríkjunum sem leiðtogum valda- blokkar heimsvaldasinna, en Kína íelja þeir forysturíki hinna frið- elskandi þjóða. í Moskvu lítur myndin öðruvísi út. Þar eru Kína, Frakkland ig V estur-Þýzkaland talin standa fremst í flokki „stríðsæsingamann- anna“ og fjandmenn nr. 1. Hin „viðráðanlegu" vesturveldi, en þeirra hel'zt eru Bandaríkin og Bretland eru taKn vinsamlegri. Fréttaritarar Reuters í Moskvu og Peking Icggja einnig áherzlu S að deila Kínverja og Rússa sé kom in inn á nýtt stig þar sem póli tískar staðreyndir en ekki hug- myndatúlkanir skipta aðalmáli. Hljómplötur Framh. af 16. síðu söng Fóstbræðra og svo plata er nefnist „Gullöld íslenzkra söngv- ara”. Blaðamaður hefur átt kost á að hlusta á „Gullöldina" og er ekki minnsti efi á, að miki'l feng- ur er að þeirri plötu. Þarna syngja allir þeir íslenzkir söngvavar. sem fremstir hafa verið í flokki sl. 40 ár, allt frá Pétri sáluga Jónssyni til yngsta stórsöngvarans okkar, Sigurveigar Hjaltested. Á þeirri plötu er ýmis gullkorn að finna, en ekkert eins og söng Maríu Markan. Sú upptaka var gerð 1938, og það verður erfitt fyrir nokkra íslenzka söngkonu að ná þeim „standard”. Haraldur Ólafsson minntist á það í ræðu sinni, að plötur þær með söng karlakóranna Fóst- bræðra og Reykjavíkur, sem fyr- irtækið hefur látið gera, nytu mjög mikilla vinsælda og míklar vonir væru tengdar við sölu á I þeim á erlendum markaði. Það væri hvort tveggja, að íslenzkir karlakórar þættu sérlega góðir, og hins vegar, að kórarnir syngju á plötunum eingöngu íslenzk lög, er mjög þættu forvitnileg. Loks má geta úrvalt af íslenzk- um rimnalögum, sem gefin verða út af His Master’s Voice i Dan- |mörku með tryggingu frá Fálkan- um. Slík plata hefur að sjálfsögðu j aðallega gildi fyrir safnendur þjóðlegrar tónlistar, en tiltölulega I litla möguleika á að verða mikil söluplata. Er slík útgáfa gott dæmi um það menningarverk, sem Fálk- inn vinnur með útgáfustarfsemi sinni. Dr. Rosenberg, danskur 's'^r- fræðingur, sem tekið hefur upp mikið af hinni íslenzku tónlisti lyjc ur miklu lofsorði á þá íslenzkú listamenn, sem hann hefur „tek- ið upp.“ Ennfremur lofar hann mjög Knút Skeggjason, magnara- vörð hjá .Ríkisútvarpinu, er vann með honum að upptökunum og tel ur hann sérlega færan í sínu staifi w_________ •_____________ ________w GRANNARNIR — Þetta er í síðasta sinn sem þú færð aS fara með stóra bangsann þinn út í skóg, Dísa. ALÞÝÐUBLAÐIO — 1. ágúst 1963 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.