19. júní - 01.10.1919, Side 8
32
19. J Ú N í
Smjörið er látið linast við hita, og
sykurinn hrærður í, uns það verður hvítt.
Eggið er hrært saman við ásamt krydd-
inu og mjólkinni. Þá er hveitið hrært út
í og að síðustu lyftiduftiö sem blandað
er dálitlu af hveitinu. Úr deiginu, er bú-
in til lengja, lögð saman eins og kringla,
borið á hana hálft þeytt egg og sykri og
möndlum stráð á. Bökuð i 20 mín. við
mikinn hita.
Hafrakeks. 500 gr. haframjöl, 210 gr.
hveiti, 60 gr. kartöflumjöl, 60 gr. sykur,
125 gr. smjör, 125 gr. flot, líter mjólk,
1 teskeið salt, 1 teskeið natrón. Flatt þykt
út, búnar til kringlóttar kökur, stungnar
með prjóni og bakaðar í vel heitum ofni.
Eplaskífur. P/2 líter áfir, 4 egg, J/a kg.
hveiti, 2 teskeiðar natron, lítið eitt af
sykri og salti. Áfirnar og eggin eru hrærð
saman og út í það er svo hrært hveitinu,
sem sykri, salti og natróni hefir verið
blendað í. Deigið er látið standa 1 kl,-
stund áður en það er bakað.
Eftirbreytnisvert.
Bæjarstjórn Kristjaníu hefir nýlega sam-
þykt lög um almennan mæðrastj'rk, sem
ná skal til ekkna og annara einstæðings-
kvenna, er börn eiga, hvort heldur eru
fráskildar eiginkonur, konur sem eigin-
mennirnir hafa yfirgefið, ógiptar mæður,
eða konur óvinnufærra manna. Bessi
styrkur á að gera móðirinni kleyft að
standa straum af börnunum, þó fyrirvinnu
föðursins njóti ekki við.
Skilyrði til styrksins eru þau að móð-
irin hafi fyrir barni á sjá sem sé ekki
orðið fullra 15 ára, ef sérstök önnur
skilyrði eru fyrir hendi, má lengja styrk-
veitingartímann til 17 ára.
Til þess að hafa rétt til styrksins má
móðirin og börnin ekki hafa hærri tekj-
ur en:
Móðir með 1 barn kr. 2000,00
— — 2 börn — 2400,00
Móðir með 3 börn kr. 2800,00
— — 4 — — 3000,00
Hæðsti styrkur getur orðið þessi:
Móðir með 1 barn kr. 600,00
— — 2 börn — 980,00
— — 3 — — 1440,00
— — 4 — — 1800,00
Gifti konan sig missir hún styrkinn.
Auk hans er mæðrum og börnum ætluð
ókeypis læknishjálp, meðul og sjúkra-
hússvist.
Lögin öðlast gildi 1. jan. 1920
Hver getur nú annað en öfundað Krist-
janiu, sem orðið hefir fyrst bæjarfélaga á
Norðurlöndum að koma á jafn stórkost-
legum umbótum og þessum. Hugsum oss
hvílík umskifti verða við lög þessi. Ekk-
ert barn þarf að alast upp við skort,
engin móðir að standa ráðþrota yfir þvi
hvar taka skuli brauð handa barni sínu
— og ekkert fátækt heimili þarf lengur
að borða beiska náðarbrauðið sem fá-
tækrastjórnirnar oft og einatt rétta fátæk-
um mæðrum með barnahóp, þar sem
fyrirvinnuna vantar. Hvenær fáum vér
sanngjörn lög um þetta efni?
Ólöf á inöðnin. Skakt var sagt til um
fæðingarár Olafar í síðasta blaði og er
liún fædd ári fyr en þar er sagt. Hina
mörgu vini Olafar getum vér glatt með
því að á næstu fjárlögum er henni ákveð-
in dálitill styrkur — opinber viðurkenn-
ing fyrir skáldskap hennar. En vel hefði
upphæðin mátt vera hærri. Bingmenn
eru ekki vanir að skamta stórt þegar
kvenþjóðin á í hlut.
Ritstjóri: Inga L. Lárnsdóttir.
Prentsmiðjan Gutenberg.