19. júní - 01.10.1920, Síða 4

19. júní - 01.10.1920, Síða 4
28 1 9. JÚNÍ Konur í þjónustu kirkjunnar Síðan konur fengu leyfi til að stunda háskólanám, hafa ýmsar þeirra lagt stund á guðfræði og tekið í henni embættispróf. En sá hængur hefir hvarvetna verið á að hinn ungi kveu-kandidat, hversu vel sem hún hefir leyst námið af hendi, á hvergi kost á að starfa í þjónustu kirkj- unnar. Henni er eigi leyft að taka prestvígslu né gegna föstu prestem- bætti. Sama máli var að vísu, í fyrst- unni, að gegna um önnur embætti, konur gátu eigi fengið aðgang að þeim, þótt þær uppfyltu öll skilyrði, en nú eru þær hömiur úr vegi á öll- um sviðum nema þessu eina. Þar er þeim enn þá varnað að starfa. Á Englandi er nú vöknuð hreyfing í þá átt að kveða niður þennan úrelta kynferðis hleypidóm og tá eldri lög- gjðf breytt þannig, að konur geti orðið sálusorgarar í ríkiskirkjunni. Eru það ekki konur einar sem bera þá hreyfingu uppi, hana styðja og kröftuglega ýmsir mest metnu menn kirkjunnar. í Englandi eru tveir kvennprestar er getið hafa sér mikið álit. Önnur er Edith Piston-Turbervill, sem er af Lundúnabiskupi sett til að gegna prédikarastarfi þar í borginni. Ung- frú Turbervill, var á fundinum í Kristjaníu, en eigi gafst þar kostur á að heyra til hennar í kirkju, að- eins á opinberum fundi fyrir æsku- lýð. í kristilegum unglinga félagsskap hefir hún inikið starfað, er varafor- maður ensku deildar K. F. U. K. Um 6 ára skeið starfaði hún fyrir kristilegan unglingafélagsskap á Ind- landi. Ungfrú Turbervill er það mikið áhugamál að kouur fái að takast á hendur prestþjónustu, »það er sann- færing mín«, segir hún »að fagnaðar- erindi Krist, þá fyrst verði öllum til fullrar blessunar, er konur fá leyfi til að boða það. 1 því eru fólgin ýms sannindi, er konur skilja betur en karlmenn«. Auk þess er Turbervill rithöfundur og hefir samið ýmsar bækur andlegs efnis. Á fundi kvennréltindasambands- ins í Gefn prédikaði hún í einni kirkjunni þar. Og síðast liðinn vetur var hún að undirlagi erkibiskups íra kölluð til að flytja guðsþjónustu í stærstu kirkju Dýflinnarborgar. Sama sunnudag og Edith Turber- villa prédikaði í Dyflinni flutti hinn merki kvenpresturinn enski, ungfrú Maude Royden kveðjuguðsþjónustu í kirkju þeirri, er hún hafði þjónað nú í þrjú síðastliðin ár. Er það ein stærsta kirkja Lundúna, City-must- erið, eign Nonconformista (fríkirkju- manna). í öll þessi ár hefir Maude Royden prédikað þar á hverjum sunnudegi og safnað að sér meiri mannfjölda en nokkur annar prestur þar, í þetta sinn voru áheyrendurnir full 3000, en fjöldi varð frá að hverfa. En hví var hún þá að kveðja? Ástæðan til þess var sú — og hún sýnir glögglega vaxandi traust kirkj- unnar á starfi kvenna í hennar þjón- ustu — að Maude Royden var nú kölluð til annars víðtækara verksviðs. Ymsir af bestu mönnum ensku kirkj- unnar eru nú að gera tilraun til að

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.