19. júní - 01.10.1920, Side 5

19. júní - 01.10.1920, Side 5
1 9. JÚNÍ 29 ná til alls þess raikla fjölda, er eigi sækir kirkju og hafa í því skyni stofnað svo nefndar »Fellowship Ser- vices« (bræðraguðsþjónustur), sem fluttar eru í ráðhúsinu í Kensington. Við þær á Maude Royden framvegis að starfa. Með því að tryggja sér starf hennar við þetta trúboð, þessa tilraun til að varpa ljósi niður til þeirra, er í svartasta myrkrinu búa, hafa forgöngumennirnir sýnt hve þýð- ingarmikið þeir álíta að kona sé í verki með þeim. Ensk blöð eru vel ánægð með þetta og eitt þeirra kemst svo að orði að það sé eigi einungis óhyggilegt, heldur og »rangt í aug- um Guðs« að forsiná þá hjálp, er konur geta veitt, nú, þegar svo mikil þörf sé á aðstoð þeirra. Ný hjúskapar- og barnalög. þetta eru helztu nýmælin er lúta að því að auka rétt barnanna, en að vísu má einnig segja að þau nýmæli er snerta rétt móðurinnar auki líka rétt barnanna. Hagsmunir móður og og barna fara oftast saman. Samkv. 13. gr. fátækralaganna 10. nóv. 1905, getur móðir óskilgetins barns nú krafist þess að föðui- barns- ins verði gert að skyldu að greiða að minnsta kosti helming þess kostnað- ar, er af barnsförunuin leiðir fyrir hana. Að núgildandi lögum getur hún aðeins krafist þess að barnsfaðir- inn taki þátt i greiðslu sjálfs barns- fararkostnaðarins. Þó hún verði ó- vinnufær vegna meðgöngunnar getur hún ekki krafist framfærslu af barns- föður og ef hún sýkist fyrir fæðing- una eða eftir, út af meðgöngunni eða barnsförunum, þá á hún ekki rétt á að barnsfaðirinn taki þátt í legu- kostnaði hennar. Og barnsfararkostn- aðinn fær hún ekki greiddan fyr en eftir á. í þessu efni eru nýmæli í frumvarpinu mjög hagstæð fyrir barnsmóðurina. Skv. 29. gr. frum- varpsins er barnsfaðirinn ekki aðeins skyldur til að greiða að minsta kosti helming barnsfararkostnaðar, heldur og styrk tii framfærslu móðurinnar, næstu 6 vikur fyrir og eftir barns- burðinn. Ennfremur heitnilar 30. gr. að skylda barnsföður tii enn frekari styrkgreiðslu, ef konan sýkist út af meðgöngunni eða barnsburðinum, til framfærslu hennar og hjúkrunar, jafn- vel alt að 6 mánaðartíma eftir barns- burðinn. Og þessar styrkgreiðslur get- ur konan krafið um fyrirfram. í sam- bandi við það heimilar 6. gr. að barns- faðernismál sé höfðuð áður enn barn- ið er fætt, þegar 6 mánuðir eru liðn- ir af meðgöngutímanum. Um styrk- framlög þessi fer annars að mestu sem um greiðslu barnsmeðlags. Barns- móðirin getur látið valdsmann þar sem hún dvelur ákveða þau. Þau eru gjaldkræf, þegar er úrskurður heör gengið um þau, og greiði barnsfaðir þau ekki getur konan krafist greiðslu á þeim frá dvalarsveit sinni hvoit sem barnsfaðir er lífs eða liðinn. Um meðlagsskyldur barnsföður með barn- inu eru ítarleg ákvæði í frumvarpinu. Eru þau frábrugðin núgildandi lög-

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.