19. júní - 01.05.1921, Qupperneq 4

19. júní - 01.05.1921, Qupperneq 4
84 19. JÚNÍ en að skipta þessu öllu með þeim manni, er kann að hafa brugðist trausti hennar og reynst henni ódreng- ur, þá er henni máske lá mest á. Sú móðir, er það kýs, að yfirveguðu ráði og eftir baráttu, veit án efa hvað hún gerir; að ætla sér að beita hana valdi væri sannarlegt glæpaverk. Nei, hér eiga lögin ekki að eiga neinn íhlut- unarrétt, til þess er hér um alt of viðkvæmt mál að ræða. Mörg atvik önnur geta til þess legið að sú móðir, er sjálf treystir sér til að annast barnið kæri sig ekki um að feðra það. Viti hún t. d. að fað- irinn sé ráðinn í að þræta fyrir fað- ernið, er henni sannarleg vorkun þó hún hiki við að leggja út í málssókn á hendur honum, einungis til að fá gjaldskyldu hans til barnsins staðfesta. Því annað mun barnið eigi vinna við það. Varla er hægt að gera ráð fyrir að sá faðir, er t. d. lætur konu sverja upp á sig barn, er hann veit sig eiga, muni nokkru sinni sýna því eða móður þess neina umhyggju eða ástúð. Og síst væri það spor í sjálf- stæðisáttina fyrir konur, ef þær í þessu falli mættu eigi ráða fyrir sjálfa sig og barnið. Hins væri meiri þörf að eitthvað yrði gjört til þess að móðurhlutverkið væri í réttum heiðri haft, jafnt ógiptu móðurinnar, sem hinnar giptu. Og barnið. Mundi því verða nokk- ur þægð i að bera nafn þess manns, er eigi sinti neitt um það, og sem það ef til vill vissi það eitt um að hefði reynst móður þess ver en skyldi. Mundi það vilja vinna það fyrir þó einhver efnalegur hagnaður kynni að fylgja. Nei, sannarlega mun hvert slíkt barn er svo kernst til vits og ára að það geti litið af skynseroi á allar ástæður, engu síður vera þakk- látt þeirri móður, er sjálf hefir bar- ist og strítt til að koma því til manns, en hinni, er máski hefir varpað mest- um hluta þess erfiðis upp á herðar föðurs, sem annars lætur sér barnið litlu skipta. þær mæður sem þetta kunna að gera verða aldrei mjög margar, það verða heldur ekki verstu mæðurnar og án gildra ástæðna munu þær sjaldnast gera það. En hitt er auðvitað mál að hvert barn á heimt- ing á að vita um faðerni sitt og munu allar mæður telja sér skyldu að skýra barninu frá því, þá er það hefir náð nægum þroska. En það á líka að mega vera einkamál móður og barns, um það varðar engan annan. Eigi er heldur golt að átta sig á hver hætta sé fólgin í því að móðir sem eigi vill eða getur gert faðerni barns síns lýðum kunnugt ali barnið upp, og því síður er hægt að sjá að neinn voði sé á ferðum þótt hún fái að njóta almennra borgaralegra rétt- inda. Eina ráðningin á því er sú: að þær mæður er þannig breyti verði að teljast svo siðlausar að eigi sé þeim trúandi fyrir barninu. Að eigi muni aðrar kveinka sér við að skýra frá faðerninu en þær, er haft hafi kunn- ingsskap við fleiri en einn karlmann og sem þess vegna eigi geti nefnt neinn ákveðinn barnsföður. Við þessu er því að svara, að þær stúlkur sem þannig hafa lifað munu sjaldnast komast í vandræði með að feðra né

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.