19. júní - 01.05.1921, Blaðsíða 6

19. júní - 01.05.1921, Blaðsíða 6
8ö 1 9. JÚNÍ Þess eru mörg dæmi að vandalausir taki engu minna ástfóstri við fóstur- barn en vandabundnir og barnið við þá, getur það því oft orðið fóstur- eldrum mikil eftirsjón að þurfa að sleppa barninu og barninu mesta ó- lán að vera rifið burt frá góðum fóst- urforeldrum, Er því talsverð bót að þessari breytingu. Hér hefir áður verið minst á mis- muninn, sem er á frumvarpi hr. hæsta- réttardómara Lárusar H. Bjarnason- ar og þeirri breytingu, er stjórnin kom fram með viðvíkjandi erfðarétti óskilgelinna barna. Breyting sú, er stjórnin gerði á hinu upprunalega frumvarpi, er til stórlýta; hún dregur mjög úr þeim jöfnuði, er virðist vera hinn rauði þráður frumvarpsins og setur mikinn fjölda óskilgetinna barna skör lægra en vera ber. En samt er það ljóst að þessi ó- heppilega breyting stjórnarinnar ætl- ar að verða ofaná hjá þinginu. Hér er verið að fremja augljóst ranglæti. Lögin mæla svo fyrir að þeim aðilja skuli dæmt að vinna eið- inn, er ætla megi að hafi réttari mál- stað og trúverðugri. Konan fær þess- vegna því aðeins að sverja fyllingar- eiðinn að allar líkur séu til þess að hún fari með rétt mál. Og varla þarf að ætla að karlmanni verði eiðfall viti hann sig lausan allra saka. Svo að jafnvel þó að eigi kunni að vera með öllu óvéfengjanlegt að hann sé faðirinn, eru þó, þegar þannig er á- statt, svo sterkar líkur fyrir hendi að sjálfsagt virðist að skoða þann, sem lýstur er, barnsföður, í hverju því til- felli, er hann eigi treystist til að synja fyrir faðernið með eiði. Það er því mjög illa farið að þingið skuli eigi geta aðhylst þær tillögur, er fram komu i hinu upprunalega frumvarpi. En vonandi stendur þetta til bóta. Og þegar konur fara að taka beinan þátt í löggjöí vorri, ættu þær að láta sér ant um að koma hér á algjöru réttlæti. Um fleiri breytingar er eiginlega ekki að ræða. Þær taka aðeins til orða- lags frumv. en hafa engin áhrif á efni þess. Fyrsta grein, sem í frumv. er svohljóðandi: »Þau börn eru óskilget- in, er eigi teljast skilgetin«, inniheldur nú ýtarlegri skilgreiningu á því, hver börn skuli teljast óskilgetin, og er það gert vegna þess að likindi eru til að lögin um afstöðu foreldra lil skil- getinna barna verði eigi afgreidd á þessu þingi. Er skilgreiningin í sam- ræmi við skilgreininguna á því. hver börn séu skilgetin í hinu frumv. Af orðabreytingum reka menn eink- um augun í það að burt er kipt því nýyrði frumvarpsins að kalla móður óskilgetins barns óskilfengna móður. Þetta orð var hvorki viðkunnanlegt né vel viðeigandi og er því vel farið að það nær eigi að komast inn í lög- in og þaðan á almennings varir. J’jársöfnim bamlalag'sius til berklahælis á Norðurlandi mun nú vera orðin nálægt 2000 kr. Peir sem enn eiga eftir að styrkja liana eru beðnir að koma með pann skerf, er þeir vilja leggja, í brauðbúöina í Vall- arstræti 4. Par er tekið á móti sam- skotum.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.