19. júní - 01.05.1921, Blaðsíða 7
19. JÚNÍ
S7
Landsspítalasjóðsdagurinn.
Nú fer að styttast til 19. júní. —
Landsspítalasjóðsnefndin hér hefir
þegar mikinn undirbúning undir dag-
inn, svo að hann geti orðið að veru-
legum tyllidegi. Enginn vafi er á að
það muni takast, því landsspítala-
sjóðsdagurinn er orðinn fastur í með-
vitund bæjarbúa. Af skemtiatriðum
þeim, er nefndin hefir hugsað sér,
má nefna: skemtun á íþróttavelli og
Austurvelli, kvöldskemtanir í ein-
hverjum af samkomuhúsum bæjarins,
hlutaveltu, bazar og lotterí, veitingar
og ýmislegt fleira. Það verður því
nóg að gera þann daginn, bæði fyrir
þær er að þessu starfa og þá er það
sækja. En það er vonandi að Reykja-
víkurkonurnar verði ekki þær einu
er annríkt eiga þann dag. Konur úti
um land munu og víða minnast 19.
júní og landsspítalasjóðsins. í ár ber
daginn upp á sunnudag. þá er hæg-
ast um alla mannfundi. Takmarkið í
ár er að sjóðurinn verði 200 þúsund
eftir daginn. Vinnum allar að því.
Munið: sunnudag til sigurs.
Útrýmið flugunumí
Flugurnar eru einhver hin skað-
legustu skorkvikindi. Þeim er ungað
út í sorpi og rotnuðum úrgangi úr
jurta- eða dýraríkinu.
Flugur bera með sér sóttkveikjur,
t. d. taugaveiki, berkla o. fl. Þær
róta i og eta allskonar óþverra og
haldast við í öskukössum, mykju-
haugum og alstaðar þar sem óþrifn-
aður er, er þær síðan bera á hendur
manna og andlit, á varir sofandi
barna, í mat og drykk.
Sýklar geta haldist lifandi í melt-
ingarfæri flugunnar svo dögum skifti.
Flugurnar tímgvast mjög ótt, verpa
oft á sumri.
Látið ekki rusl safnast fyrir í
krókum og kimum, látið engan úr-
gang liggja og rotna nálægt húsum
eða bæjum. Öskukassar og sorpílát
ættu að vera með loki og hreinsuð
vel innan í hvert sinn, sem þau eru
tæmd. Fegar saíerni eru hreinsuð,
ætti að hylja saurindin með mold
eða mómylsnu. Mykjuhaugar eða
opnar forir ættu ekki að vera of
nærri íbúðarhúsum.
Allan mat, einkum þó mjólk, ætti
að geyma í lokuðum skápum, eða
hafa lok yfir ílátunum eða breiða
yfir þau gisna rýju.
Á hverju herbergi þarf að vera
hægt að opna að minsta kosti einn
glugga; í búri og eldhúsi er gott að
taka eina rúðuna úr, en setja vírnet
f staðinn, það heldur flugunum úti.
Smábörn og sjúklinga þarf að
vernda fyrir ílugunum, þegar þau
sofa, með því að breiða þunnan dúk
yfir andlit þeirra.
Drepið flugurnar alstaðar þar sem
þið náið til þeirra og byrjið á því
strax og þær koma, áður en þeim
fjölgar um of.
Til útrýmingar má nota flugna-
pappír, fæst í lyfjabúðum. Annað
gott ráð er að blanda tveimur mat-
skeiðum af formalin (fæst í lyfjabúð-