19. júní - 01.05.1921, Síða 5
19. JÚNl
85
kynoka sér við að nefna nöfn. Þetta
þvingunarákvæði mun því eigi ná til
þeirra, þeim mun aldrei sviða undan
þeirri svipu. En hún yrði þeim mun
sárari þeim, sem viðkvæmari eru, lil-
finninganæmari eða samviskusamari
en alment gerist þeim, sem vel vita
hver er faðir barns þeirra, en sem
hafa sínar gildu ástæður til að vilja
halda þvi leyndu, eða finst að þar
um varði engan. Varla þarf að óttast
að þessar mæður verði margar, en sé
þetta ákveðinn vilji þeirra eiga þær
sannarlega að mega fara eftir honum.
Samviskufrelsi einslaklingsins er þó
löngu viðurkent og friðheilagt orðið.
Hví þá svipta því burtu í þessu eina
falli? Engin kona, sem athugar þetta
viðkvæma mál öðruvísi en á yfirborð-
inu, getur með góðri samvisku óskað
þess, að systrum sínum verði hér
sniðinn pyndingastakkur, með köldum
og ómannúðlegum lagastaf, sem ó-
mögulegt er að framfylgja án þess að
beita andlegu ofbeldi. Það væri að
færa okkur allar langt aftur í tím-
ann og yrði í framkvæmdinni álíka
mannúðlegt og opinberu skriftirnar
eða rannsóknarrétturinn spanski.
Happdrætti Landsspitalasjóðsins veröur
haldið um pessa vinninga:
Húsgögn úr tágum (borð bekk og
2 stóla.......verð kr. 300,00
Ferðakíki .... — — 225,00
Kafflstell (handa 12). — — 150,00
Peninga............— — 100,00
Blómsúlu .... — — 50,00
Alt eru petta eigulegir munir og verð-
mætari en venja er til um happdrættis-
vinninga. Tala seðlanna er 10,000.
Lög um afstöðu foreldra til
óskilgetinna barna.
í næslsíðasta tölublaði »19. júnk
var getið allrækilega meðferðar als-
herjarnefndar efri deildar á lagafrum-
varpinu um stofnun og slit hjúskap-
ar og er það nú komið gegnum efri
deild. Þeirrar einu breytingar, er gerð
var á þvi við umræður í efri deild,
var getið í siöasta blaði. Neðri deild
hefir eigi komið fram með neinar
breytingar við frumv. og má því skoða
það sem samþykt og afgreitt frá þing-
inu.
Næst af hinum öðrum frumvörp-
um sifjalöggjafarinnar hefir verið tek-
ið frumvarpið um afstöðu foreldra til
óskilgetinna barna. Þessu frumvarpi,
með öllum þess mikilsverðu nýmæl-
um og breytingum þeim, á eldri lög-
gjöf, er það hefir í för með sér, hef-
ír verið lýst ýtarlega hér í blaðinu
(sjá 3.—4. tölubl. þ. á.). Þarf eigi
að endurtaka það hér. Alsherjarnefnd
efri deildar hefir haft frumvarpið til
íhugunar og hefir hún engar stórvægi-
legar breytingar á því gert. Efnis-
breytingin er vist aðeins ein. Samkv.
frumvarpinu (38. gr.) gat stjórnarráð-
ið heimilað móðurforeldri eða móð-
ursystkini, er hafði á fóstri, þinglýst,
óskilgetið barn, að halda þvi, þótt
faðir barnsins gerði tilkall til þess.
Nú er sú breyting gerð á greininni
að hún veitir öllum fósturforeldrum,
jafnt vandalausum sem skyldum,
heimild til að halda fósturbarni á-
fram, enda kalli þeir eigi eftir með-
gjöf með því af hendi barnsföður.