Óðinn - 01.12.1910, Blaðsíða 8
72
ÓÐINN
öll upp komin, en dóttir hans ein, Guðrún að nafni,
á heima hjer í Reykjavík og rekur hún þar verslun.
Nú er Pjetur bráðum 79 ára gamall, en þrátt
l'yrir þann aldur og alt það, sem liann hefur orðið
að reyna um dagana, ber hann sig vel. Er sjald-
gæft að sjá jafn-gamla menn ekki meira fyrir-
gengna en Pjetur er. Hann hefur enn allgóða sjón
og minni gott; dökkur er hann enn á hár og furðu
lítið hærður eftir aldri. Pjetur er meðalmaður á
hæð og hefur hann svarað sjer vel, fjörmaður kvað
hann hafa verið mikill og greindur vel og drengur
góður eftir allra dómi, sem hann þekkja.
Svo hafa kunnugir sagt frá, að enga þeirra
manna, sem lífs komust af á Mosfellsheiði í fyr-
nefndu mannskaðaverðri, muni lrafa kalið jafn-
rnikið eins og einmitt þá Pjetur og Guðmund.
Mun Pjetur þó liafa kalið öllu meira, því nærri
var komið, að af honum yrðu teknir báðir fætur
og önnur heDdin. En það kveðst hann með öllu
hafa fyrirboðið að gert væri, og var það einungis
það, sem bjargaði honum frá að missa þessa
limi með öllu. En allar tær misti hann af báð-
um fótum og eitthvað af beinum úr annari hendinni.
15/n 1910. M. G.
r
Ur krosskvæði Brynjólfs biskups.
(Carmen votivum de cruce).
Hann fær enga ráðning, er feðurna níðir, því fólk vill það heyra ;
kumpan þeim lieldur er hátt hossað í jafningjasoll.
Vjer sáum til haturs, og ónýtum alt það afburðalausa,
hitt, sem til verðleika veit, er vjelað með heiftum til sín.
A feðranna moldir er migið, og moldirnar hafðar að spotti,
svívirt er flest, sem er fornt, — fremd þykir jafnvel í því.
Lögskyldan heiður þú ílæmir og flærð af foreldrum manna,
sómanun. sviftirðu þá. Svona er athæfi þitt!
En af livaða foreldrum ertu þá sjálfur? Einmitt þeim sömu,
er selurðu skrílnum í skimp, skopan og spjeskap og dár.
Svona virðingu velurðu þeim, sem þjer veittu íyrst lííið,
að móti þeim ofríki með magnarðu andskotaflokk.
Nú eiga þeir, sem fyrir þig fyrr heltu’ út falslausum tárum
af einlægum ásthugagrát, athlægi að verða hjá þjer.
Þeim framliðnu skiftirðu’ og flettir í þrent, svo sem forvitri mikill
rjettvís og ráðvendnin sjálf, rjettandi hverjum sinn part.
Möðkunum limuna sendirðu sjálfur, en sálina í Víti,
kvalarinn þriðji ert þú, og þú, sem á mannorðið legst.
Maðkarnir hætta, — og það skilur þó, — en þið haldið áfram
töglandi Marðar með tönn tugguna sína hver einn.
Og víst er ei sálunum vægari dómur veittur nje mýkri,
er þú skapar ómerkur þeim, og það kallar ráðstöfun guðs.
Hvers vegna gefurðu guði’ ekki neitt ? Hví gefurðu alt Djöfli ?
Þú ert víst að sanna það þá, að þú vildir hafa það svo.
Hví í hásætið Faeton ræðstu og ryðstu og í rökstólinn drottins
sálnanna dómari, sem ert sessrækur þegar f stað ?
Annar á dómari dóm hjer á sök, og dragstu burt óðar,
hröklastu’ af þinginu heim og halt þjer í skefjunum þar.
Hvað mundu óvinir harðara leika hernumdar borgir
en reynst hefur raunin af þjer, ræktarlaus ættfeðra skömm ?
Gefum drotlni þau mál, sem drottinn á sjálfr. En ef Djöflinum viltu
gefa eitthvað, gefðu honurn þitt. Guðs láttu hreint vera kyrt.
Gamall í’ithöíundur. Páll
Rjörnsson próf. í Selárdal, sem hjer
fylgir mynd
af, dóttur-
sonur Arn-
gríms lærða
. og sonar- .
sonurMagn-
úsar prúða,
var lærðast-
ur maður í
. Austur- .
landamálum
á sinni tíð
hjer á landi.
. Hann var .
. aldavinur .
Brynj. bisk-
ups Sveins-
sonar og rituðust þeir á um mörg
lærdómsefni og ræddust við um
þau, pegar þeir fundust. Pað var í
samræðu við sira Pál, að Pórður
varabiskup Porláksson gaf orð í, en
Brynjólfur biskup sagði þetta, sem
minnisstætt er orðið: »Pegiðu barn,
þegar lærðir menn tala«. — Síra
l’áll ritaði margt í guðfræði og öðr-
um lærdómsefnum, en einna nafn-
kunnastar eru ritgerðir hans móti
göldrum og galdramönnum og of-
sóknir hans við þá. Brjef hans til
þingheims 1671 móti Jóni Úlfssyni,
sem borinn var göldrum, er prent-
að hjá Espólin, fult af ofsa og á-
kefð, en var vel tekið upp af lög-
mönnum og öðrum sökum álits þess,
scm síra Páll var í.
Eftir lát Pórðar biskups Porláks-
sonar vildu flestir að síra Páll yrði
biskup í Skálholti, en liann afsakaði
sig sökum elli, og varð þá Jón
frændi hans Vídalin Skálholtsbiskup.
Brynjólfur biskup sendi síra Páli
latínukvæði sitt »De Cruse« (Kross-
kvæði) til yfirlits og umsagnar.
Síra Páll var fæddur 1620, stund-
aði nám við háskólann í Khöfn 1641
—44, vígðist til Selárdals 1645 og
andaðist þar 1706.
Páll Björnsson.
* * *
Prentsmiðjan Gntenherg.