Óðinn - 01.06.1912, Qupperneq 2

Óðinn - 01.06.1912, Qupperneq 2
18 ÓÐINN varð af fyrirmyndarbúinu. Segir Torfi mjer að samkomulag hafi ekki fengist, og svo mun og hafa staðið á fjenu, eins og frá er skýrt þá í blöðunum. Frá Skotlandi ritar Toríi vorið 1867 búnaðar- inálabrjefin þrjú, sem prentuð voru í Nýjum Fje- lagsritum það ár (Ný Fjelr. XXV). Brjefin voru send Jóni Sigurðssyni, og hann virðist hafa hleypt Torfa af slað. í febrúar ritar Jón Torfa: »það væri gaman, ef þjer væruð nú upplagður til að skrifa mjer langt og fróðfegt búnaðarbrjef frá Skot- landi, sem jeg gæti fengið prenlað í ritunum«. Þeir eru fjörugir þessir búnaðarpistlar Torfa, og fyrirheitin eru í þeim um alt æfistarf manns- ins. Hann er kominn í nýjan »Sólarheim«, en svo sjer hann fljótt að náttúran hefur ekki gert landið svona fagurt. Nei, mikið af þessum fögru ökrum og grænu grundum bafa verið fúaflóar fyrir svo sem 100 árum, og þar sem skógurinn gnæfir yfir landið af hæðunum, var um sama leyti ekkert nema lyngmóar, eða máske eyðimelar. Öllu hefur verið umsnúið, flóarnir þurkaðir, mór- inn færður burt til eldiviðar, svo tók plógurinn við; holtin pækl og Iosuð með pálum og pjökkum, þar sem plógurinn vann ekki á, stórgrýtið sprengt og flutt til húsabygginga eða til að girða landið. »Þetta alt hetur nú lúð marga hönd, beygt margt bak og tæml margan vasa, en það hefur líka fælt af sjer ánægju og auð á eftir. Hvar sem lilið er sjest að óþreytandi atorka og starfsemi og tröllamáltur hugvitsins hafa styrkt hvað annað«. Haustið 1868 giftist Torfi frænku sinni Guð- laugu Zakkaríasdóltur frá Hevdalsá í Strandasýslu. Hún liafði og verið á Þingeyrum hjá Ásgeiri móð- urbróður sínum. Vorið eftir reisa þau hjón bú á Varmalæk í Borgarfirði. Þá ritar Jón Sigurðsson kunningja sínum í Reykjavik: »Pað er gott að Torfi Bjarnason kemur að Varmalæk, þar er jörðin, bara að hann hefði nokkuð í liöndunum að geia það með«. Ekki býr Torfi nema 2 ár á Varmalæk. Nú finst manni undarlegt að flytja sig frá þeirri jörð og úr þeirri bygð vestur í fjallaklasann milli Bitru og Gilsfjarðar. Hugði jeg að heimahagarnir hefðu dregið hjónin vestur þangað, miðja vegu milli Dala- og Strandasýslna, en svo hefur Torfi sagt mjer, að mest hafi hann fiúið þjóðbraulina. Um- ferð þar var afarmikil, er alt var á landi farið, og fyrir Hvalfjörð, en Toríi orðinn jijóðkunnur maður, og ákaflega gestrisinn; taldi hann það ofætlun fyrir konu sína að annast gesti daglega auk bús og

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.