Óðinn - 01.06.1912, Qupperneq 3

Óðinn - 01.06.1912, Qupperneq 3
ÓÐINN 19 barna. Þess má og minnast að framtíðarhorfur voru þá ekki miklar í Borgarfirði. Sigling ekki komin í Borgarnes. Ólafsdal keypli Torfi af Jóni Bjarnasyni þing- manni Dalamanna, er þar bjó. Jörðin ekki full 18 hundruð, og engin sjerleg kostajörð talin. Áður en Torfi settist að í Olafsdal, rúmlega þrítugur, hafði hann unnið það verk, er landinu hefur orðið áþreifanlegastur hagur að. Áður en Torfi sigldi til Skotlands liafði hann mikið um það hugsað, að eignast Ijá sem ekki þyríti að dengja, hafði hann gert nokkrar tilraunir, en þær smíðir mishepnast sem vænta mátti. í Skotlands- förinni Ijet liann smíða ljáinn í Manchester eftir fyrirmynd, er liann bjó til, og kom hann heim með 12 ljáblöð, er reynd voru sumarið eftir. Njju Ijáirnir »ensku« ruddu sjer svo alveg til rúms á 3 árum, 1868—1871, að varla sást »íslenskur« Ijár úr því. Amerikuhugurinn kom við Torfa sem fleiri um þær mundir. Vorið 1873 fer hann nokkurs konar landkönnunarferð vestur um liaf, og var sumarið í ferðinni, kom heim um haustið. Var ráðagerð og hugur í nokkrum mönnum í Dala- sýslu að fara vestur, og halda hópinn, ef Torfa litist vel á og vísaði þeim til lands. Torfi kom í kornlöndin frjóu inni i miðjum Bandafylkjum, þar sem Skandínavar voru þá sem örast farnir að taka land, en ekki þótti Torfa ráð fyrir sig, efnalítinn ómagamann, að flytja vestur, og munu þá hinir sýslungar hans flestir hafa og sest aftur. En tveir bræður Torfa eru enn á lífi í Vesturheimi, var annar þeirra í för með Torfa og varð eftir. Jón Sigurðsson víkur að þessari vesturferð Torfa í brjefi til hans nokkru síðar: »Jeg var orðinn hræddur uin, að við mund- um ætla að missa af yður, og þess vegna varð jeg því glaðari í þeirri von, að þjer hafið sannfært yður sjálfan um það, sem jeg held rjelt vera, að nóg sje að starfa á íslandi sjer og öðrum til gagns, og með ekki lakari útsjón en annarstaðar, ef inenn hafa lag á að vera samhentir. Það er líka sorglega hlægilegt, að vjer hugsum nú að fara úr landi, þegar fyrst er von á framförum, sem eru á okkar valdi, eftir mörg hundruð ára kúgun, sem við höfum þó komist frá með iífinu og þó nokkr- um — enda furðanlega iniklum — sálarkröftum og fjöri«. Torfi fór brált að sljetta túnið í Ólafsdal, sem alt var þýft, og notaði plóg og önnur áhöld til Ijettis vinnunni, sem lílið var þá um. Gerðust þá fá- einir ungir menn lil þess að læra hjá honum að plægja og sljetta. Þetta varð orsök til þess, að þeir Sigurður sýslumaður Sverrisson í Bæ og Guð- mundur prófastur Einarsson á Breiðabólsstað á Skógarströnd hvöltu Torfa til að bjóða amtsráði Vesturamtsins, að koma á fól búnaðarkenslustofn- un í Ólafsdal fyrir Vesturamtið. Tók amtsráðið þeirri málaleitan vel og komst stofnunin upp vorið 1880, og byrjaði með 5 lærisveina. þessi búnað- arskóli Vesturamtsins stendur svo fullan fjórðung aldar og þarf eigi að rekja sögu lians. Oftast voru þar 12 lærisveinar, teknir 6 nýir á ári. Framan af voru lleslir nemendur af Vesturlandi, af því að þeir gengu fyrir, en sóttur liefur skól- inn verið af öllu landinu. En mest og best bafa óefað Dalasýsla og Strandasýsla notið Ólafsdals- skólans. Nemendur frá Ólafsdal minnast allir Torfa og heimilisins þar mjög hlýlega, og á húsfreyja þar sinn góða hlut óskertan. Fjelagslíf var þar gott og fjörugt. Haldið var þar úti skólablaði og umræðufundir á hverju laugardagskvöldi. Var húsbóndinn og skólameistarinn sjálfur lífið og sálin í þeiin fjelagsskap pilta. í einu bar Olafsdalsskól- inn sjerstaklega af öðrum búnaðarskólum, hvað þar var mikið smíðað af jarðyrkjuverkfærum, er komu þá eins og á stóð í góða þörf. Jeg liygg að Torfi hafi sjálfur lcngst af verið aðalsmiður- inn, og smíðar kendi hann piltum. Sá, sem þetta ritar, minnist þess er hann fyrir 10 árum kom í Ólafsdal á miðjum degi, þá kom luísbóndinn út úr smiðjunni sinni, kolugur og krímugur, niður að þrepunum upp úr heimreiðartröðunum. Herma þykist jeg það rjett, að fleiri en 100 plógar hafi verið smíðaðir í Ólafsdal, eitlhvað svipuð tala af lierfum, og tíðast voru þá aktygin keypt með, sem þar voru og gerð. Þá voru þar og smiðaðar einar 60—70 kcrrur, einkar traustar og sterkar, eins og öll áhöld voru frá Ólafsdal. Nefna mælti enn hestarekur og ristuspaða. Torfi hefur verið forgöngumaður margskonar fjelagsskapar i sinni bygð, komið á lestrarfjelagi og bindindisfjelagi, stofnað verslunarfjelag Dala- sýslu og var fonnaður þess í ein 15 ár. Eins mun hann hafa átt góðan hlut í stofnun kaupfje- laga þar vestra. Mikið kapp hefur hann lagt á skuldlausa verslun i þeim fjelagsskap, þótt eigi hafi lánast svo sem hann vildi. Sjálfur hefur hann alla sína æfi, frá því er liann fór að búa, áll

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.