Óðinn - 01.06.1912, Page 5

Óðinn - 01.06.1912, Page 5
ÓÐINN 21 »Jeg hef lengst af hagað mjer eins og barn: Aldrei komið auga á torfærurnar fyrir því, sem jeg áleit þarft að fá framgengt, og aldrei munað eftir sjálfum mjer«. Þegar Torfi er fallinn í valinn, verður sögð saga hans, sem um leið verður búnaðarframfara- saga landsins um þrjátíu ára skeið. Maklegt lof tær hann þá í minning þjóðarinnar. Verður hon- um þá, er frá líður, eigi til ámælis, að hann var trúarsterka harnið, sem eigi mundi eítir sjálfum sjer. I Samfara þessari miklu vinnu Torfa, sem nú hefur að nokkru verið vikið að, vanst honum timi til allmikilla ritslarfa. Eru búnaðarmálarit- gerðir hans í Andvara, Búnaðarritinu og Tímariti Bókmentafjelagsins og víðar í tímaritum og blöð- um, sem oflangt yrði upp að telja. Sumar rit- gerðir hans eru frá kenslunni á skólanum, og hafa þá jafnframt verið notaðar við kenslu á hinum búnaðarskólunum. Jeg nefni, nokkuð af handaliófi, til að geta nokkurra þýðingarmikilla ritgerða hans í timaritunum: urn áburð — um búnaðarkenslu um framræslu — um súrhey — urn verslun sveita- bænda. Skilst manni við að lesa búnaðarmála- greinar hans, að verið liefur hann afhragðs góður kennari. Hann er svo Ijós og skýr í máli. Það, sem Torfi ber mest fyrir brjósti nú á gamals aldri, er það, livað hann telur framtíðar- horfur landbúnaðarins valtar, meðan búpeningur landsmanna er eigi trygður fyrir harðæri. Hefur Torfi fyrir skemstu rilað greinir í Búnaðarritið um heyásetning og fóðurforðabúr, og áframhald því el'ni til árjettingar bíður prentunar sem stendur. Torfi mun hafa haft á hendi öll venjuleg störf fyrir sitt sveitarfjelag og sitt hjerað um lengri eða skemmri tíma, í hreppsnefnd, sýslunefnd og amls- ráði, en við stjórnmál hefur hann aldrei viljað fást. Hefnr hann þó oftar en einu sinni átt kost á að verða kosinn á þing. Telur hann sig hvorki hafa haft tíma til þess að setja sig inn i stjórnmál, og eigi heldur treyst sjer til að kom þar fram til gagns. Torfi þakkar Guðlaugu konu sinni mest og best heimilisstjórn alla í Olafsdal. Og eigi hefur hún síður þurft að laka til hendinni um dagana. Sjö árum er hún yngri en Torfi, sköruleg kona og gæðaleg. Gestkvæml hefur verið í Olafsdal og heimilið lengst af mjög fjölment. I’au hjón eignuðust sam- an 12 börn. Þrjú dóu ung, fimm börnin hafa andast uppkomin, 4 dætur og sonur kominn til náms á háskólann. Fjögur börnin lifa, dætur tvær Áslaug og Bagnheiður, giftar konur, Ás- laug á Ljótsstöðum í Laxárdal í Suðurþingeyjar- sýslu og Bagnheiður á Skeljabrekku í Borgarfirði, og synir tveir, Ásgeir efnafræðingur og Markús, yngstur barnanna, búfræðingur, sem er föður sin- um til aðstoðar í Ólafsdal. P. I). Sl Jón hreppstjóri á Hafsteinsstöðum. Myndin, sem hjer fylgir, er af einum mcrk- asta bóndanum i Skagafirði, Jóni Jónssyni hrepp- stjóra og dbrm. á Hafsleinsstöðum. Hann er fæddur fi. jan. 1850, sonur Jóns hreppstj. á Hóli Jón á Hafsteinsstöðum. í Sæmundarhlíð, Jónssonar á Bessaslöðum, er druknaði ungur í Hjeraðsvötnum, við selveiðar, 1824, en hann var Jónsson hreppstjóra á Bessa- stöðum. Er Jón eldri á Bessastöðum í Skagafirði talinn launsonur Halldórs Jónssonar prófasts á Hólum. 1878 kvæntist Jón á Hafsteinsstöðum Stein- unni Árnadóttur frá Ystamói í Fljótum. Bræður hennar eru Sveinn hreppstj. í Felli og Páll hrepp- stj. á Ystamói. Börn þeirra Jóns og Steinunnar eru: Valgerður, gift Bjarna Sigurðssyni í Glæsibæ; Árni Hafstað búfræðingur í Vík; Sigríður og Jón, ógift heima. Dáið hafa ung: Guðbjörg og Sveinn. Að Jóni hreppsljóra á Hafsleinsstöðum liefur

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.