Óðinn - 01.12.1916, Blaðsíða 5

Óðinn - 01.12.1916, Blaðsíða 5
ÓÐINN 69 ið fjell 1909 og taldi það eitt hið mesta slys er hent hefði þjóð vora í allri stjórnmálasögu henn- ar. En hann var bjartsýnn að eðlisfari og hafði óbilandi trú á framförum þjóðar sinnar og að engin þjóð á Norðurlöndum ætti eins glæsilega framlíð fyrir höndum eins og íslendingar. Þegar Vigfús Sigfússon flutti hingað var hann af þroskaaldri, rúmlega hálfsextugur, en þó gegndi Vigfús Sigfússon. hann lijer ýmsum trúnaðarstörfum fyrir bæjarfje- lagið, var í bæjarstjórn um skeið, sáttanefndar- maður, ráðsmaður sjúkrahússins o. fl. En meslan hluta af besta aldursskeiði æíi sinnar starfaði hann á Vopnafirði og starfaði bæði mikið og vel. Þar var liann umsvifamikill hjeraðshöfðingi ná- lega fullan mannsaldur, vinsæll og virtur, og var þar varla ráð ráðið svo ekki væri hann kvadd- ur til. í 'daglegri umgengni var V. S. einstakt prúð- menni, glaður, skemtinn og yfirlætislaus. Mjög raungóður og hjálpfús, vinfaslur og valmenni á allan veg. Vigfús var 73 ára gamall og vilui betur, er hann andaðist, fæddur 24. septbr. 1843. Hann var Norð- Mýlingur að ættt og uppruna. Faðir hans var Sigfús bóndi í Sunnudal, en móðir Dagbjört Arn- grímsdóttir. Hann fjekk ekki aðra mentun í æsku en þá, sem hann aílaði sjer sjálfur, en hann var námfús og hafði góða hæfileika og um tvítugt var hann orðinn barnakennari. Þá kvæntist hann Margrjetu Ágústsdóttur bónda á Ljótsstöðum í Vopnafirði og eignuðusl þau eitt barn, en áður hann yrði 24 ára, var hann búinn að missa bæði kon- una og barnið. Þá rjeðst hann fyrir barnakennara og ráðsmann til ekkjufrúar Maríu Grönvold á Vopnafirði og giftist henni ári síðar. Hún var val- kvendi og voru samfarir þeirra fyrirmynd í hjú- skaparlííi. Bjuggu þau á Vopnafirði og ráku þar verslun til vorsins 1898, að Vigfús keypti »Hótel Akureyri« og þau ílullust hingað. María andaðist 10. febr. 1908, en Vigfús rak gistihúsið með hjálp dætra sinna þangað til síðasll. vor, að hann seldi það á leigu og hætti sökum sjóndepru, er var að ágerast stöðugt tvö síðustu árin. — Þau María áttu sex börn: Jóhann, konsúl og kaupmann hjer í bænum, dáinn 1905, Ágústu, fyrri konu Olgeirs Friðgeirssonar konsúls í Reykjavík, dána 1897, Maren, konu Einars Gunnarssonar kaupmanns á Akureyri, Oddnýu konu Ingólfs læknis Gíslasonar Vopnafirði, Valgerði og Halldóru. Vigfús var einkennilega orðheppinn maður og eru ýms orðtök hans og talshættir flogin út á meðal manna. Var það oft, er hann sat í kunn- ingjahóp, að hann kastaði fram hnyttiyrðum, er svo voru lient á lofti. En ávalt voru þau græsku- laus, vöktu hlátur, en særðu ekki þann er þeim var beint að. Kærasta umtalsefni V. S. var saga Islands fyr og síðar og íslensk ættfræði. Lýsti sjer þar eins og víðar að hann var góður og sannur íslending- ur. Hann var mætavel að sjer í þeim fræðum öllum, og fanst sá varla maður með mönnum, sem ekki vissi og mundi þar deili á. V. S. var ráðsmaður sjúkrahússins eða gjald- keri, eins og áður var sagt. Þess má geta, til dæmis um ræktarsemi lians, að varla mun þess dæmi að nokkur sjúklingur, sem andaðistá sjúkrahúsinu, haíi verið jarðaður svo að V. S. fylgdi ekki líki hans til grafar. Kom það ekki ósjaldan fyrir þegar þeir voru jarðaðir, sem hvorki áltu hjer frændur nje neina kunningja, að Vigfús var einn á ferð með líkmönnunum á eftir kistu þeirra. * ,.Undir Ijúfnm löguni“. ,Þau eru oröin niörg kvæðin, sem Gestur hefnr sent Oðni við og við undir pessari fyrirsögn, livert öðru betra og snjallara að braglist. En, eins og sjá má hjer á eftir, setur hann nú »Eftirmála« við pau og segist ekki kveða meira af peim aö sinni. Mörg af pessum kvæðum eru kveðin undir alkunnum eldri lögum, sem áður hefur vantað við sönghæfa texta á okkar máli, ýms að minsta kosti. En önnur eru ort undir nýjum háttum, svo sem pau, sem hjer fara á eftir, og er par efni fyrir söngskáldin til að fast við, »lögin óskráð í orðunum«, eins og höf. scgir. Lög við dansa og göngukvæði vantar tilfinnanlega í nýrri sönglagagerð okkar.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.